Síða 1 af 1
Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 16:57
af bAZik
Hef aðallega verið að skoða
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2247 og
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=8037 (er ekki til eins og er).
Hvor þeirra er betri? Eru aðrar útgáfur sem gætu verið betri?
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 17:01
af Moldvarpan
Ég myndi taka MSI kortið með Twin Frozr kælingunni, ég var pínu smeikur við þessa kælingu, en eftir að ég fékk mér slíkt kort varð ég mjög hrifinn af henni.
Virkilega hljóðlát og kælir vel undir álagi. 470gtx kortið mitt með refrence blower-num var mikið háværara en 580 kortið með twin frozr kælingunni undir álagi.
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 18:55
af bAZik
Já ætli ég bíði ekki eftir MSI kortinu þá.
Er þetta ekki annars svona semí best for the buck kortið í dag?
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 19:44
af Klemmi
Bæði kort hafa sína kosti og galla.
Twin Frozr kortið kælir kortið sjálft betur og er hljóðlátara en blæs hitanum frá kortinu inn í kassann. 2 grunnar viftur eru líklegri en 1 djúp til að bila/byrja að mynda hávaða. Er aðeins ódýrara.
PNY kortið blæs loftinu út úr kassanum en hitnar meira. Er með 3 ára ábyrgð.
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 20:07
af AciD_RaiN
Persónulega myndi ég frekar taka PNY kortið. Aðal ástæðan er reyndar hvað twin frozer lookið er ljótt...
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 20:16
af Xovius
Ég er með 580 twin frozr og get svo sannarlega mælt með þessum kælingum

Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 20:55
af hjalti8
bAZik skrifaði:Hvor þeirra er betri?
msi kortið er með betri kælingu en eins og klemmi sagði þá blæs það heita loftinu inn svo það skiptir miklu máli að hafa gott loftflæði.
svo er msi kortið líka með miklu betri pcb en það skiptir svosem litlu máli því voltin eru læst @1.175V(á kjarnann) plús það er hvort eð er betra að yfirklukka vram á þessum kortum þar sem þau hafa bara tiny 192bit memory bus.
bAZik skrifaði:Er þetta ekki annars svona semí best for the buck kortið í dag?
hd7950
kostar basicly jafn mikið en er samt mun betra stock vs stock og í kringum 50% öflugra yfirklukkað vs stock 660ti sem er mjöög mikill munur.
hd7950@1100mhz er mjög raunhæf yfirklukkun fyrir ágætis týpu af 7950 og gefur svipað performance og 7970ghz sem er heldur öflugra en gtx680 með nýjum driverum(sérstaklega þegar kemur að min. fps sem skiptir miklu máli):

svo er 7950 meira future proof með 1gb auka vram og tvöfallt stærri memory bus. Annars myndi ég reyna að fá
twin frozr útgáfuna af 7950 þar sem hún kælir ekki bara kjarnan, eins og powercolour kortið sem kisildalur selur, heldur líka powerphase-ana og allan pcb-inn sem ætti að gefa þér hærra oc headroom.
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 21:31
af bAZik
^ Takk fyrir svarið. Kemur samt ekki til greina að ég kaupi AMD kort.
Hvort kortið mynduði velja ef þið væruð að fara í átt að hljóðlátari vél? Þetta verður í Corsair 550D kassa. Býst við að ef MSI kortið sé hljóðlátara og blási lofti inní kassann að þá myndi það verða heitara og þannig verða háværara en venjulega, en PNY kortið myndi vera jafn hávært sama hvað. Ekki satt?
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 21:42
af Klemmi
hjalti8 skrifaði:hd7950
kostar basicly jafn mikið en er samt mun betra stock vs stock og í kringum 50% öflugra yfirklukkað vs stock 660ti sem er mjöög mikill munur.
Þessu er ég ósammála, samanber:
http://www.anandtech.com/bench/Product/550?vs=647HD7950 kemur talsvert betur út í Crysis og Metro, 660Ti í Portal (source engine), Battlefield og Total War og almennt betur í Skyrim þó að 7950 hafi sigurinn í Ultra settings.
Get því ekki sagt að HD7950 sé neitt betri kaup ef horft er á stock vs. stock.
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 21:52
af AciD_RaiN
Sorry hjalti8 en þessi árátta að reyna að troða því á alla að 7950 sé besta kortið er farið að minna mig á votta jehóva
En til OP þá sýnist mér þetta enda á smekksatriði hjá þér.
Mínar persónulegu skoðanir en ekki heilagur sannleikur
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 21:54
af MatroX
AciD_RaiN skrifaði:Sorry hjalti8 en þessi árátta að reyna að troða því á alla að 7950 sé besta kortið er farið að minna mig á votta jehóva
En til OP þá sýnist mér þetta enda á smekksatriði hjá þér.
Mínar persónulegu skoðanir en ekki heilagur sannleikur
djöfull er ég sammála þér núna hahaha

Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 22:06
af bAZik
AciD_RaiN skrifaði:Sorry hjalti8 en þessi árátta að reyna að troða því á alla að 7950 sé besta kortið er farið að minna mig á votta jehóva
En til OP þá sýnist mér þetta enda á smekksatriði hjá þér.
Mínar persónulegu skoðanir en ekki heilagur sannleikur
Já ætli ég taki ekki bara sénsinn með MSI kortið.
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 22:29
af AciD_RaiN
bAZik skrifaði:AciD_RaiN skrifaði:Sorry hjalti8 en þessi árátta að reyna að troða því á alla að 7950 sé besta kortið er farið að minna mig á votta jehóva
En til OP þá sýnist mér þetta enda á smekksatriði hjá þér.
Mínar persónulegu skoðanir en ekki heilagur sannleikur
Já ætli ég taki ekki bara sénsinn með MSI kortið.
Svo lengi sem það er kostið sem þér líst betur á þá er það rétta valið

Óska þér alls hins besta með kortið sem þú færð þér og hlakka til að sjá kannski einhver benchmörk

Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 23:06
af hjalti8
bAZik skrifaði:^ Takk fyrir svarið. Kemur samt ekki til greina að ég kaupi AMD kort.
Hvort kortið mynduði velja ef þið væruð að fara í átt að hljóðlátari vél? Þetta verður í Corsair 550D kassa. Býst við að ef MSI kortið sé hljóðlátara og blási lofti inní kassann að þá myndi það verða heitara og þannig verða háværara en venjulega, en PNY kortið myndi vera jafn hávært sama hvað. Ekki satt?
MSI kortið ætti að vera í fínasta lagi í þessum kassa.
bAZik skrifaði:^ Takk fyrir svarið. Kemur samt ekki til greina að ég kaupi AMD kort.
Af hverju ekki?
Klemmi skrifaði:Þessu er ég ósammála, samanber:
http://www.anandtech.com/bench/Product/550?vs=647HD7950 kemur talsvert betur út í Crysis og Metro, 660Ti í Portal (source engine), Battlefield og Total War og almennt betur í Skyrim þó að 7950 hafi sigurinn í Ultra settings.
Get því ekki sagt að HD7950 sé neitt betri kaup ef horft er á stock vs. stock.
Þú verður að gera þér grein fyrir því að þessi benchmarks eru gerð á eeeldgömlum driverum. Ef þú lítur t.d. á hardocp reviewið hér að neðan þá er 7870 að performa svipað og 660ti en 660ti er ekki nálægt 7950 og hvað þá yfirklukkuðu 7950. Og svo þarf líka að líta á min. fps þar sem 660ti stendur sig mjög illa í mörgum leikjum þökk sé 192bit memory bus.
Hérna eru annars nýrri review á nýrri driverum:
http://www.hardocp.com/article/2012/11/ ... _roundup/4http://www.techspot.com/review/603-best-graphics-cards/http://www.techpowerup.com/reviews/AMD/ ... nce/1.htmlhttp://www.anandtech.com/show/6393/amds ... new-bundleAciD_RaiN skrifaði:Sorry hjalti8 en þessi árátta að reyna að troða því á alla að 7950 sé besta kortið er farið að minna mig á votta jehóva
Svo lengi sem fólk heldur að 660ti sé besta kortið fyrir peninginn í dag þá held ég áfram að predika

Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 23:17
af bAZik
hjalti8 skrifaði:bAZik skrifaði:^ Takk fyrir svarið. Kemur samt ekki til greina að ég kaupi AMD kort.
Af hverju ekki?
Því driverarnir þeirra eru crap, búinn að lenda nógu andskoti oft í driver veseni með ATi/AMD kort í gegnum tíðina. NVIDIA driverarnir hafa hinsvegar aldrei klikkað eða valdið veseni.
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 23:25
af AciD_RaiN
bAZik skrifaði:hjalti8 skrifaði:bAZik skrifaði:^ Takk fyrir svarið. Kemur samt ekki til greina að ég kaupi AMD kort.
Af hverju ekki?
Því driverarnir þeirra eru crap, búinn að lenda nógu andskoti oft í driver veseni með ATi/AMD kort í gegnum tíðina. NVIDIA driverarnir hafa hinsvegar aldrei klikkað eða valdið veseni.

Setti 2 ATI kort í vélina pabba og þessir driverar geta gert mann bilaðan

Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Mán 03. Des 2012 23:49
af nonesenze
MatroX skrifaði:AciD_RaiN skrifaði:Sorry hjalti8 en þessi árátta að reyna að troða því á alla að 7950 sé besta kortið er farið að minna mig á votta jehóva
En til OP þá sýnist mér þetta enda á smekksatriði hjá þér.
Mínar persónulegu skoðanir en ekki heilagur sannleikur
djöfull er ég sammála þér núna hahaha

x3
amd = driver issue
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Þri 04. Des 2012 01:40
af Klemmi
HARDOCP reviewið er ekki með nein AMD stock kort, bara yfirklukkaðar útgáfur. Það er því mjög ósanngjarn samanburður, að bera HIS IceQ Boost kort saman við stock nVidia kort.
Í hinum reviewunum, þá eru GTX660Ti og HD7950 kortið alveg á pari, GTX660Ti hefur stundum vinningin og HD7950 stundum...
Auk þess er vert að benda á að ódýrasta HD7950 kortið er rúmum 10% dýrara heldur en ódýrasta GTX660Ti kortið, svipaður munur líka á meðalverðum þessa korta m.v. verðVaktina.
Ég er ekki að reyna að snúa útúr á neinn hátt, en ég get ekki séð annað en að einu skiptin sem AMD kortin hafi vinningin, sé einmitt með yfirklukkuðum útgáfum á móti óyfirklukkuðum nVidia kortum.
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Þri 04. Des 2012 02:33
af Minuz1
Klemmi skrifaði:HARDOCP reviewið er ekki með nein AMD stock kort, bara yfirklukkaðar útgáfur. Það er því mjög ósanngjarn samanburður, að bera HIS IceQ Boost kort saman við stock nVidia kort.
Í hinum reviewunum, þá eru GTX660Ti og HD7950 kortið alveg á pari, GTX660Ti hefur stundum vinningin og HD7950 stundum...
Auk þess er vert að benda á að ódýrasta HD7950 kortið er rúmum 10% dýrara heldur en ódýrasta GTX660Ti kortið, svipaður munur líka á meðalverðum þessa korta m.v. verðVaktina.
Ég er ekki að reyna að snúa útúr á neinn hátt, en ég get ekki séð annað en að einu skiptin sem AMD kortin hafi vinningin, sé einmitt með yfirklukkuðum útgáfum á móti óyfirklukkuðum nVidia kortum.
660 Ti er nerfað 670 GTX, má alveg bera saman við OC'd AMD að mínu mati, langt frá því að vera eitthvað stock kort.
Bang/Buck er það sem skiptir máli + þjónusta, áreiðanleiki og reynsla hvers á eins.
Re: Hvað er besta GTX 660 Ti kortið?
Sent: Þri 04. Des 2012 10:33
af hjalti8
Klemmi skrifaði:
HARDOCP reviewið er ekki með nein AMD stock kort, bara yfirklukkaðar útgáfur. Það er því mjög ósanngjarn samanburður, að bera HIS IceQ Boost kort saman við stock nVidia kort.
Í hinum reviewunum, þá eru GTX660Ti og HD7950 kortið alveg á pari, GTX660Ti hefur stundum vinningin og HD7950 stundum...
Auk þess er vert að benda á að ódýrasta HD7950 kortið er rúmum 10% dýrara heldur en ódýrasta GTX660Ti kortið, svipaður munur líka á meðalverðum þessa korta m.v. verðVaktina.
Ég er ekki að reyna að snúa útúr á neinn hátt, en ég get ekki séð annað en að einu skiptin sem AMD kortin hafi vinningin, sé einmitt með yfirklukkuðum útgáfum á móti óyfirklukkuðum nVidia kortum.
7950 boost er refrence kort sem amd gaf út svipað eins og nvidia kortin hafa líka gpu boost.
en ok það munar kannski ekki miklu á þeim stock vs stock þegar maður ber saman avg. fps. þar sem að upprunalega 7950 er bara klukkað @800mhz stock.
en fyrir þessi auka 10% færðu auka gb vram, betri pcb,
tvöfalt stærri mem. bus sem skilar hærri min. fps og unlocked voltage sem gerir þér kleift að yfirklukka kortið svo það verði öflugra en kort sem kosta í kringum 60% meira