Var núna áðan að skoða aðeins tölvuna hjá vini mínum (bios og þannig) með yfirklukkunar mál hjá honum og ég tók eftir að hann er með fsb á 133 (eða 134) en minnið er að keyra á 167 minnir mig ...
Hann er með Intel pention 4 2.6 eða 2.8 ghz vél (er ekki viss hvort að það sé ht á henni eða ekki)
512 mb pc2700 (á 333mhz default)
Msi móðurborð .. man ekki nafn, en framleiðslunafnið eða hvað sem að þetta er var "ms 6585"
Þetta er tölvulistapakkatölva.
Þá er spurningin ... er hann að keyra þetta í lélegri vinnslu vegna þess hvað minnið er að keyra mikið hraðar en cpu eða??
Og ætti hann að reyna að oc fsb á örgjörvanum til að reyna að komst nær minnistölunni??