Síða 1 af 1

Hljóð úr tölvunni í græjurnar

Sent: Þri 17. Ágú 2004 00:09
af Tiger
Sælir, ég vill hlusta á tónlist sem ég er með í tölvunni í græjunum inní stofu... hvernig er best að gera það? Er með nýjan Harman Kardon mangara inní stofu og ASUS A7N8X móður borð með innbygðu hljóðkorti. Þarf ég að kaupa sér hljóðkort eða..?

Sent: Þri 17. Ágú 2004 01:22
af Takai
Ég veit ekkert það mikið í þessum málum en ég held að það sé nóg fyrir þig að skella þér út í búð og kaupa þér snúru til að tengja á milli tölvu og magnara. Ég er búinn að vera með allt mitt hljóð keyrt í gegnum græjurnar mínar ... bara snúra sem að er með tölvuhljóðtengi öðrumegin og left/right tengi hinummegin til að tengja í magnarann.

Farðu bara út í BT eða eitthvað og segðu þeim að þér vanti snúru til að tengja á milli tölvu og hljóðgræja og þeir ættu að geta reddað þér einhverju.

Sent: Þri 17. Ágú 2004 07:38
af MezzUp
Takai skrifaði:tölvuhljóðtengi öðrumegin og left/right tengi hinummegin

"Mini-jack male - RCA male" held ég að rétta nafnið sé á þessari snúru :)

Sent: Þri 17. Ágú 2004 09:58
af Pandemic
Bróðir minn lenti í því að snúran hans gaf alveg rosalegt suð með tónlist og öðru ef hún var leidd langa leið.

Sent: Þri 17. Ágú 2004 10:02
af gnarr
var það kanski unblanced snúra ? :lol:

Sent: Þri 17. Ágú 2004 11:15
af Pandemic
Duno sko ég lóðaði hana saman þannig. :roll:

Sent: Mið 18. Ágú 2004 04:59
af nikki
Nei, ekkert sér hjlóðkort .. það sem þú þarft er snúra sem kallast Audio input snúru svo einfalt er það, tengir hana í tölvuna og svo í magnaran, aftan á snúruni er hvitt og rautt, tengir thad aftan i magnarann, og velur video / aux á magnarum ... :wink: