Síða 1 af 1

Vandamál með SSD disk *"LEYST"****

Sent: Fös 23. Nóv 2012 10:34
af olafurfo
Sælir vaktarar, nú vantar mig hjálp frá ykkur !!

Ég var að kaupa mér SSD disk (OCZ Vertex 3 240gb) sem ég setti í vélina mína, splúnkuný msi gt70 með uppsettum 750 gb hdd.

Ég ætlaði að stytta mér leið með að clone-a diskana og boota beint upp af ssd en það fór fljótt í vaskinn og núna get ég ekki sett upp Windows 8 á SSD disknum..
er ekki allveg klár á hvað er í gangi en þegar ég skoða disk management sé ég að honum er skipt í partition (sjá eftirfarandi mynd)
Mynd

Í stuttu máli langar mig að hafa Disk 1 með eina partition (bara primary) með windows 8 en ég get ekki eytt þessum partition út, get gert delete en ekki shrink eða extend, get ekki eytt EFI partinum og kann svosem ekkert á þetta partition dæmi.. :P

Svo þegar ég reyni að setja upp Windows 8 fæ ég annarsvegar we couldn't create a new partition or locate an existing one ef ég boota tölvuna á disknum en ef ég keyri hann í my computer og DVD þá þarf ég að uninstalla bluetooth driver sem kemur alltaf með villu þegar ég reyni að gera það (virkar ekki í uninstall applications heldur)

Einhver með hentuga lausn á þessum málum hjá mér ?


Jæja þar sem hitt leystist poppaði upp annað vandamál hjá mér. Þegar ég boota núna af SSD disk (eftir fyrsta restart og næstu 40) kemur upp check cable connection pxe-m0f exiting intel pxe rom
Ég er búinn að googla þetta framm og til baka, helsta er að þetta gæti verið firmware update fyrir sSD diskinn sem ég er með nema núna er ég ekki með neina tölvu til að boota upp af (nema 10" lappann minn núna) og update-a firmware á disknum.

Búinn að gera eftirfarandi hluti :

Swappa HDD og SSD slottin framm og til baka
Búinn að fara yfir boot up röðina og líka disable-a allt sem er í henni nema HDD
Í HDD röðun er OCZ agility 3 fyrir ofan og WD 750 fyrir neðan
Búinn að taka batterý úr sambandi og setja aftur í samband (til að athuga hvort það væri rétt sett í.. dno?)
ekkert tengt og öll USB port disabled en breytti engu
Get ekki installað windows á HDD NÉ SSD
SSD leyfir ekki útaf einhver partition dæmi
HDD leyfir ekki útaf 0x80300024

Er kominn á það er verða að spurja vaktarana hérna !! [-o<

Endilega hjálpið mér þar sem ég er .. tjahh.. með nýja tóma tölvu.. ekki gaman :dissed

Re: Vandamál með SSD disk

Sent: Fös 23. Nóv 2012 10:37
af BugsyB

Re: Vandamál með SSD disk

Sent: Fös 23. Nóv 2012 10:49
af playman
Ertu búin að prófa að "strauja" hann í install setup? bara quick format, alls ekki extended format.
Í windows setupinu þarftu að líka að deleta öllum partitions á SSD áður en þú "straujar" hann.

Ef hann á að vera system diskur þá eru alltaf 2 partition annað er main (primary) partition fyrir kerfið sjálft,
Svo er alltaf 100mb partition sem inniheldur boot fæla og eithvað fleyra. Það er þessi EFI partition hjá þér og honum MÁ EKKI EYÐA
Þessi 600mb partition er ég ekki viss um, spurning hvort að það sé eitthvað win8 specific, er allaveganna flokkaður sem recovery partition í "gamla" kerfinu.

Þar sem að þú ert svo líka með nokkur partitions á gamla diskinum þá myndi ég frekar mæla með að
setja inn kerfið nýtt frá grunni, það er alltaf öruggara, og minkar líkur á hugsanlegu conflicti.

Ekki nota þetta Partition tól frá Bugsy þar sem að þú þarft ekki að nota það við þetta "vandamál" sem þú ert með.

Eins myndi ég sterklega ráðleggja þér að afrita gögn sem þú mátt ekki missa af 750gb diskinum á annan disk, eyða svo öllum partitions af honum
og gera full format á hann.
Ekki tengja hann svo fyrr en þú ert búin að setja upp stýrikerfið að nýu, þar sem að windows á það til að setja in fæla á geymslu diska, svo
ef að 750gb diskurinn myndi t.d. bila, þá gætiru ekki startað windowsinu upp vegna þess að einhverjar skrár vantar, sem væru þá staðsettar á bilaða
disknum.

Re: Vandamál með SSD disk

Sent: Fös 23. Nóv 2012 11:22
af olafurfo
Jæja, kominn aftur á spjallið á nýuppsetti stýrikerfi ^^,

ég sótti tólið sem Bugsy sendi mér, eyddi öllum partitions af HDD svo núna lítur hann svona út

Mynd

Eins og ég sagði var ég með glæ nýja vél og var allveg sama um gögnin.. partition svæðin voru eitthvað að villa fyrir windows 8 uppsetningu..

Þakka þér samt fyrir innleggið Playman :) og BugsyB !!!!

Re: Vandamál með SSD disk *nýtt vesen****

Sent: Fös 23. Nóv 2012 18:11
af olafurfo
Einhver med hugmynd ?

Re: Vandamál með SSD disk *nýtt vesen****

Sent: Lau 24. Nóv 2012 02:01
af BugsyB
er þetta ekki að virka núna - bara eitt partion

Re: Vandamál með SSD disk *nýtt vesen****

Sent: Sun 25. Nóv 2012 12:44
af olafurfo
Nei eftir að vera búinn að reyna í um 20 klukkustundir ákvað ég að henda windows 7 upp og... allt gekk upp :D