Síða 1 af 1
Socket 939 móðurborð og örri
Sent: Mán 16. Ágú 2004 10:00
af cue
Hvar getur maður fengið socket 939 og örgjörva fyrir það hérna á Íslandi?
Ég get bara alls ekki fundið þetta hérna á fróni.
Sent: Mán 16. Ágú 2004 10:00
af gnarr
ég efast um að það séu komnir einhverjir 939 í sölu hérna.
Sent: Mán 16. Ágú 2004 10:53
af Drulli
Það er mjög erfitt að finna 3500+ út í BNA og af hinum er lítið til.
En á vaktinni stendur að tölvulistinn selji FX-53, er það ekki s939 1mb cache örrinn ?
Sent: Mán 16. Ágú 2004 11:42
af gnarr
mér skillst það jú
Sent: Mán 16. Ágú 2004 12:27
af wICE_man
Það bergmálar svo hátt hérna að maður gæti haldið að þið byggjuð í helli
Tölvulistin er með sérpantanir á S939 og búinn að vera með það í nokkrar vikur. Flestar netverslanir í BNA og Bretlandi hafa verið með þessa örgjörva á lager en í augnablikinu er tímabundinn skortur á þeim vegna galla í nýuppsettu forriti hjá AMD sem sér um pantanir og fluttninga á vörum þeirra, það er víst komið í lag og því ættu þeir aftur að verða útbreiddir, það virðast allavega ekki vera framleiðsluvandræði.
Annars er skrítið að þeir séu ekki komnir í útbreiddari sölu hér, það eru rúmir tveir mánuðir síðan þeir fóru í almenna sölu.
Sent: Mán 16. Ágú 2004 12:31
af cue
Þetta er rétt hjá ykkur, þeir eru með 939 örgjörva, en 3.8GHz kostar 90.000 kall!
Kannski maður bíði út mánuðin

Sent: Mán 16. Ágú 2004 14:27
af Birkir
3.8GHz ? Hvar fannstu það ?
Sent: Mán 16. Ágú 2004 14:47
af gnarr
hann er líklegast að tala um 3800+.
Sent: Mán 16. Ágú 2004 14:54
af Arnar
Ég er með FX-53 s939 allavega
Kostaði "bara" 60þús
Sent: Mán 16. Ágú 2004 15:00
af gnarr
það er ´náttla súper verð miðað við verðið hérna heima. en hvenrig er þetta með FX örgjörfana. koma þeir ekki með ólæstann multi?
Sent: Mán 16. Ágú 2004 16:43
af Arnar
Ójú
allir A64 hafa hálf-ólæstan multi..
Þá bara niður.. þannig ef hann kemur með multiplier 11, þá er hægt að nota allt fyrir neðan.
Það er útaf þessu cool'n'silent dóti..
Og svo FX örrarnir hafa alveg ólæstan multiplier
Mitt móðurborð leyfir 4x upp í 24x..

Sent: Þri 17. Ágú 2004 08:06
af gnarr
magnað. hvernig minni ertu með, og með hvaða multi og FSB ertu að keyra hann?
Sent: Mið 18. Ágú 2004 02:22
af nikki
Éfa að það sé komið á klakann ...
