Síða 1 af 1
formataði vitlaust partition :o
Sent: Mán 16. Ágú 2004 00:45
af Mysingur
ég ætlaði að formata áðan og var búinn að bakka upp allt sem ég vildi eiga og þannig... en svo, snillingurinn ég, formataði vitlaust partition í staðinn fyrir system

og þetta var einmitt það sem ég hafði bakkað allt á og það var mikið af persónulegum gögnum á þessu sem er erfitt að bæta + stór hluti af dc sherinu mínu... en það er annað mál
en síðan ég þegar ég ætla að boota (XP pro) þá kemur bara "NTLDR is missing" og það startast ekki
er einhver sem getur hjálpað mér að ná gögnunum aftur, ég yrði hinum sama ævinlega þakklátur
Sent: Mán 16. Ágú 2004 07:28
af elv
Ontrack Easy Recovery Professional .Getur náð gögnum eftir að þú hefur formatað yfir þau.Gætir þurft þó að ná í þau í raw mode en þá færðu ekki nöfnin á skránum......best að láta diskinn í aðra vél til að redda þessu.Ná gögnunum og síðan setja bara upp Windows aftur
Sent: Mán 16. Ágú 2004 07:44
af Mysingur
takk kærlega fyrir það elv, ég prófa þetta

Sent: Mán 16. Ágú 2004 08:18
af MezzUp
ég hef notað Get Data Back for NTFS með góðum árangri, en þá var reyndar partion table skemmt hjá mér, ekki búinn að formatta.
En bara hvað sem þú geriri, ekki setja neitt inn á diskinn! Þótt að partion'ið sem að þú formattaðir ekki ætti að vera ok að skrifa á, þá mundi ég ekki taka sénsinn. Windows gæti t.d. skrifað swap file á partion'ið, og ef að það er einusinni búið að skrifa yfir gögin þá snarminnka líkurnar á því að þú getur náð að recover'a gögin.
Og já eitt enn, með GDB, og e.t.v. Ontrack Easy Recovery þá þarftu að hafa autt pláss á öðrum HD(eða öðru partion'i allavega) til þess að skrifa gögin á, þ.e. getur ekki bara gert recover og skrárnar eru komnar, heldur verðurru að færa þær eitthvað fyrst.
Jæja, gangi þér vel
ps. þetta gæti tekið nokkuð langan tíma, þá er bara bíða spenntur.
Sent: Mán 16. Ágú 2004 09:12
af Mysingur
takk takk mezzup
en reyndar var þetta á öðrum disk heldur en systemið þannig að ég slekk bara á honum á meðan ég set upp windowsið aftur
gæti samt orðið smá vesen að finna pláss fyrir þetta allt þar sem þetta voru nokkrir tugir GB en það reddast vonandi
en ég er kominn með easy recovery og til í slaginn... og vona að maður verði bara reynslunni ríkari og ruglist ekki á E og F aftur í framtíðinni
læt svo vita hvernig gengur
Sent: Mán 16. Ágú 2004 11:22
af Mysingur
þá er þetta loksins búið að skanna og fann barasta alla fælana sýnist mér

og flestir í möppunum sínum og með rétt nöfn og allt
en ég þarf að finna mér eitthvað gera núna því það eru 130 GB til að copya
og enn og aftur þakka ég ykkur mezzup og og elv fyrir alla hjálpina

Sent: Mán 16. Ágú 2004 11:47
af gnarr
ég geri ráð fyrir ða þú hafir gert quick format

það er besti hlutur sem hefur verið fundinn upp.
Sent: Mán 16. Ágú 2004 12:10
af Mysingur
gerði nú bara format E: í DOS...
Sent: Mán 16. Ágú 2004 12:17
af MezzUp
Mysingur skrifaði:þá er þetta loksins búið að skanna og fann barasta alla fælana sýnist mér

og flestir í möppunum sínum og með rétt nöfn og allt
en ég þarf að finna mér eitthvað gera núna því það eru 130 GB til að copya
og enn og aftur þakka ég ykkur mezzup og og elv fyrir alla hjálpina

heh, alltaf gaman þegar menn koma aftur og segja ef að eitthvað gekk upp.
En er ekki málið bara að fá lánaðan disk hjá vini? Eða þá að velja hvað þú vilt eiga og setja á system diskinn?
Sent: Þri 05. Okt 2004 21:06
af Copyright
Ég hef þá vinnureglu að aftengja alla harðadiska sem ég er ekki að fara að formatta, þá er maður 100% á að ekkert fari úrskeiðis... svo lengi sem þú veist hvaða diskur er hvað.
Hef aldrei nokkurn tíman lent í því að formatta vitlausan disk

Sent: Þri 05. Okt 2004 21:31
af Hawley
það er svolítið erfitt að aftengja partition
Sent: Þri 05. Okt 2004 21:36
af Pandemic
tja styrikerfið efst ef ég man rétt