Síða 1 af 1

skjá&korta hjálp..

Sent: Fim 15. Nóv 2012 18:48
af HalistaX
Er með AMD HD6850 í turninum mínum og 23" skjá og þegar ég vaknaði í morgun var Catalyst hugbúnaðurinn(eitthvað tengt skjákortinu) að uppfæra sig. Eftir uppfærslu ákvað ég að restarta vélina enda ekki gert það mikið lengi og þegar hún startaði sér er svona svartur rammi í kringum myndina á skjánum. Tölvan segir að upplausnin sé 1920x1080 og sama hvað ég geri í Resolution settings þá næ ég ekki að breyta þessu. Rámar eitthvað í að þetta hafi verið svipað áður en ég instalaði nýjustu driverunum er hún var ný en er búinn að athuga drivera dótið allt og er það up to date.
Hvernig get ég losnað við þennan svarta ramma svo myndin fylli uppí skjáinn??

Re: skjá&korta hjálp..

Sent: Fim 15. Nóv 2012 21:39
af Hnykill
Myndin er bara stillt á "center" en ekki Stretch"..

Hægri klikka músinni á desktop og fara í personalize, og niðri til vinstri er lítil mynd sem undir stendur "desktop background".. ýta á það og þar niðri til vinstri er flipi þar sem þú getur valið Center eða stretch eða fill og lalalala.. :megasmile

gera stretch.. ætti að virka

Re: skjá&korta hjálp..

Sent: Fim 15. Nóv 2012 21:56
af HalistaX
Hnykill skrifaði:Myndin er bara stillt á "center" en ekki Stretch"..

Hægri klikka músinni á desktop og fara í personalize, og niðri til vinstri er lítil mynd sem undir stendur "desktop background".. ýta á það og þar niðri til vinstri er flipi þar sem þú getur valið Center eða stretch eða fill og lalalala.. :megasmile

gera stretch.. ætti að virka

Virkar ekki :/ Ég kem músini ekki inná svarta rammann, hún stoppar bara eins og ef þú ferð með músina þína alveg útí enda vinstramegin(eða jafnvel hægra megin, hún 'hverfur' svona eins og hún á að gera.) :(

Re: skjá&korta hjálp..

Sent: Fim 15. Nóv 2012 23:56
af Farcry
Lenti í þessu sjálfur þarft að finna scaling option i catalyst og stilla overscan
http://www.justin.my/2011/12/cannot-dis ... md-radeon/

Re: skjá&korta hjálp..

Sent: Fös 16. Nóv 2012 00:00
af HalistaX
Farcry skrifaði:Lenti í þessu sjálfur þarft að finna scaling option i catalyst og stilla overscan
http://www.justin.my/2011/12/cannot-dis ... md-radeon/

Þakka þér kærlega fyrir! Guð minn almáttugur var þetta að gera mig brjálaðan hahaha :P

Re: skjá&korta hjálp..

Sent: Fös 16. Nóv 2012 00:02
af Hnykill
Ef þetta er flatskjár, Setja skjáinn á 60 Hz og ýta á Auto Size á skjánum ?

nújæja komið :Þ

Re: skjá&korta hjálp..

Sent: Fös 16. Nóv 2012 00:06
af Farcry
HalistaX skrifaði:
Farcry skrifaði:Lenti í þessu sjálfur þarft að finna scaling option i catalyst og stilla overscan
http://www.justin.my/2011/12/cannot-dis ... md-radeon/

Þakka þér kærlega fyrir! Guð minn almáttugur var þetta að gera mig brjálaðan hahaha :P

Ekkert mál man hvað þetta fór í taugarnar á mér á sinum tíma :)