Síða 1 af 1

Fail Dagsins - Braut Örgjörva

Sent: Sun 11. Nóv 2012 19:27
af Kjáni
Var að fikta í eithverju rusl tölvu sem ég fann inn í geymslu og ákvað að gera hana upp og sjá hvernig hún virkar. :happy

Ég rykhreinsaði allt og þreif allt vel og vandlega í kassanum og þá er komið að því að taka örgjörvan upp og skipta um krem \:D/ woop woop, svakalega skemtilegt hjá mér með tónlist á og alles.

En nóg um það, ég aflæsi festingar á örgjörvanum og ætla að taka hann út og úps helmingur af örgjörvanum var eftir í socketinu og hinn var fastur við kælingu, virkilega gaman að lenda í svona atviki :face Nokkrar myndir fyrir ykkur að hlægja yfir :megasmile

Mynd Mynd Mynd

Re: Fail Dagsins - Braut Örgjörva

Sent: Sun 11. Nóv 2012 19:39
af worghal
ættir að geta sett plattann aftur á með spes lími, en annars er alltaf gotta að twista kælinguna þegar þú ert að losa þær af, þá losnar dótið og verður mikið auðveldara að fjarlægja og ekkert skemmist :D

veit um nokkur atvik þar sem fólk bókstaflega reif gömlu amd örrana upp úr læstum sockets þegar kælingin var tekið beint upp. :lol:
edit: kanski ekki bara gömli, félagi minn gerði það um daginn með nýjann amd :lol:

Re: Fail Dagsins - Braut Örgjörva

Sent: Sun 11. Nóv 2012 19:41
af Kjáni
Hehehehe, ég var búin að tvísta þetta smá og var búin að hita upp örgjörvan :happy málið var að kælikremið eða hvað sem þetta var, var úr sama efni og örgjörvi er festur saman hehehe :megasmile en núna fékk ég hugmynd um að breyta þessu í lyklakippu en veit ekki hvernig ég á að þrífa þetta, þetta efni er frékkat þykkt og sterkt. :baby

Re: Fail Dagsins - Braut Örgjörva

Sent: Sun 11. Nóv 2012 20:04
af AciD_RaiN
Hvernig örgjörvi er þetta?? Það er alveg hægt að laga þetta :P

Re: Fail Dagsins - Braut Örgjörva

Sent: Sun 11. Nóv 2012 20:09
af Kjáni
Þetta er eithverð Intel Pentium 478 Socket, allveg sama um það fór bara að hlægja þegar þetta gerðist :megasmile en Veit eithvern hvernig ég get þrífið af þetta svarta dót ? langar að breyta þessu í lyklakippu :happy

Re: Fail Dagsins - Braut Örgjörva

Sent: Sun 11. Nóv 2012 20:16
af AciD_RaiN
Kjáni skrifaði:Þetta er eithverð Intel Pentium 478 Socket, allveg sama um það fór bara að hlægja þegar þetta gerðist :megasmile en Veit eithvern hvernig ég get þrífið af þetta svarta dót ? langar að breyta þessu í lyklakippu :happy

Best að gera það með rakvélablaði held ég. Annars ef þú ætlar að gera lyklakippu úr þessu þá væri sterkur leikur að líma ðetta aftur á með epoxy blöndu og gera lyklakippu úr þessu þannig ;) Bara mín 2cent ...

Re: Fail Dagsins - Braut Örgjörva

Sent: Sun 11. Nóv 2012 20:32
af beggi90
Ekki ónýtt.
Þarft núna bara að vesenast í að þrífa hann vel og festa aftur.

Re: Fail Dagsins - Braut Örgjörva

Sent: Sun 11. Nóv 2012 20:43
af Kjáni
beggi90 skrifaði:Ekki ónýtt.
Þarft núna bara að vesenast í að þrífa hann vel og festa aftur.
Já oks það er gott að vita en mér er eignlega sama þar sem þetta var eldgamall 478 örgjörvi og ég var með annan ofan í skúffu hehehe núna er maður að skella upp windows til að sjá hvernig þetta er að keyra.

Gerði þennan þráð bara svo að fólk gæti hlegið eithvað smá á sunudeginum hehehe :megasmile

Re: Fail Dagsins - Braut Örgjörva

Sent: Mán 12. Nóv 2012 06:59
af upg8
Mér finnst best að kveikja á tölvunni í smá stund áður ég tek kælingar af örgjörvum, sérstaklega þegar kælingarnar koma með svona álímdu kælikremi. Mýkir límið aðeins.

Re: Fail Dagsins - Braut Örgjörva

Sent: Mán 12. Nóv 2012 12:09
af Saber
Það lítur út fyrir að þú hafir bara rifið IHS-ið af, eitthvað sem margir klikkhausar gera þegar þeir eltast við að kæla örgjörvann sem mest.