Síða 1 af 1
NEC 2100A og Nero 6
Sent: Lau 14. Ágú 2004 00:24
af Icarus
Jæja.. ég fjárfesti mér í NEC 2100A DVD skrifara og er bara helvíti ánægður með gripinn fyrir utan það smáatriði að Nero vill bara skrifa á fjögurra hraða. Veit einhver hvað er að og hvernig má laga það ?
Sent: Lau 14. Ágú 2004 00:26
af Birkir
Ertu viss um að diskarnir styðji meira en 4x ?
Sent: Lau 14. Ágú 2004 00:26
af Icarus
sry... 2500A

Sent: Lau 14. Ágú 2004 00:27
af Icarus
Birkir skrifaði:Ertu viss um að diskarnir styðji meira en 4x ?
Það á ekki að skipta máli til að byrja með. Nero býður manni bara að velja hraða og maður velur bara í kringum diskana. Annars keypti ég mér 8x traxdata diska svo ég er nokkuð viss um að þetta eigi að virka þannig séð.
Sent: Lau 14. Ágú 2004 00:34
af Mysingur
gætu þetta ekki bara verið DVD RW

Sent: Lau 14. Ágú 2004 00:36
af Mysingur
arg! hvert fór breyta takkinn
en ég er annars með svona sjálfur og hann er að skrifa alveg á 8x
Sent: Lau 14. Ágú 2004 01:25
af Icarus
Mysingur skrifaði:gætu þetta ekki bara verið DVD RW

þá er ég andskoti heppinn

DVD-R eru diskarnir... á einn rewritable..

Sent: Lau 14. Ágú 2004 18:03
af zaiLex
ertu viss um að þetta séu dvd
-R og að skrifarinn skrifi það á 8x? Það er held ég algengt að dvd skrifarar skrifi -R á 4x +R á 8x, minn skrifari gerir það allavegana
Annars geturu prófað að uppfæra nero forritið.
Sent: Sun 15. Ágú 2004 03:59
af Icarus
zaiLex skrifaði:ertu viss um að þetta séu dvd
-R og að skrifarinn skrifi það á 8x? Það er held ég algengt að dvd skrifarar skrifi -R á 4x +R á 8x, minn skrifari gerir það allavegana

Annars geturu prófað að uppfæra nero forritið.
Samkvæmt því sem stendur á tolvulistinn.is skrifar skrifarinn bæði + og - á 8x
Sent: Sun 15. Ágú 2004 13:17
af zaiLex
updeitaðu firmware/nero eða prófaðu annað forrit, ef það virkar ekki er tölvulistinn full of bs
