Síða 1 af 1

sífelldar hljóðtruflanir

Sent: Fös 13. Ágú 2004 22:15
af Mysingur
ég er hér með innbyggt 5.1 hljóð í AI7, realtech AC97 heitir það víst... en það eru alltaf einhverjir skruðnngar og læti í hátölurunum.
Þetta er reyndar allt í lagi þegar ég mute-a mic og line in en það heyrist samt alltaf smá. Ég er búinn að prófa bæði hátalara og heyrnartól en það skiptir engu máli þetta heyrist alltaf, og svo var ég að komast að því að ég get ekki tekið upp út af þessu því að truflanirnar koma alltaf inn á.
Er eitthvað sem er hægt að gera í þessu?

Sent: Fös 13. Ágú 2004 22:18
af Nemesis
Þetta hljómar annaðhvort eins og hátalararnir séu að pikka upp einhverja eigintíðni úr tölvunni, t.d. hörðu diskunum eða eitthvað, eða að einhver snúra sé laus eða e-ð þessháttar, þá koma svona skruðningar.

Sent: Fös 13. Ágú 2004 22:25
af Mysingur
nei það er engin snúra laus... búinn að tékka á því mörgum sinnum
en þetta er ekkert í hátölurunum því þetta kemur inn á upptökur þótt það sé slökkt á hátölurunum
og svo lækkar þetta alltaf þegar ég set mic og line in á mute :?
en svo er svo skrýtið að ég er búinn að prófa að mute-a allt í vol control en þetta hættir ekki

Sent: Lau 14. Ágú 2004 01:11
af Nemesis
bilað? :l

Sent: Lau 14. Ágú 2004 15:24
af gnarr
nei, það er ekkert bilað hjá þér. málið er það að vegna þess að þú ert með innbygt hljóðkort á móðurborðinu, þá vantar alla þétta og allt sem sér um að hljóðkortið fá fasalaust rafmagn. þetta þýðir að í hvert skipti sem að einher hlutur í tölvunni þinni notar rafmagn, það breytist fasatíðnin á rafmagninu sem hljóðkortið fær, og það endar með því að það koma truflanir í hljóðið.

Þetta er hlutur sem ég spáði mikið í fyrir rúmum 2 árum, þegar ég keypti mér tölvu síðast. ég leitaði heillengi að góðu móðurborði sem að var með góða og stóra þétta fyrir pci raufarnar og með góðu rafmagnskerfi overall. ég endaði á að taka Abit BD7 borð, vegna þess að það var eina móðurborðið á íslenska markaðnum þá sem að var með 4fasa rafmagni. svo var það einmit líka með mjög góða þétta fyrir pci slotin. svo fékk ég mér líka mjög gott powersupply, en það hjálpar líka mikið til. léleg powersupply eru ekki með góðum spólum og þéttum, svo að það kemur oftast "lélegt" rafmagn úr þeim.

vegna þess að ég spáði í þetta, þá er ég að ná allt að 95db snr, með sama og engu thdc.

Sent: Lau 14. Ágú 2004 19:54
af Mysingur
ok ég skil... svona næstum því :?
en er semsagt ekkert hægt að gera í þessu nema kannski prófa nýtt PSU...
ég var nefnilega einmitt að spá í að fá mér nýtt út af hávaða en er þá ekki eitthvað sem þú mælir með?

Sent: Sun 15. Ágú 2004 20:53
af Daz
Ég myndi nú ekki útiloka að þetta sé vegna truflana frá öðrum hlutum tölvunnar, t.d. frá örgjörvaviftunni. Allir hlutir sem búa til segulsvið geta valdið truflunum á hljóðkortum.

Sent: Sun 15. Ágú 2004 21:17
af Mysingur
segjum þá að þetta sé örgjörvaviftan sem gerir segulsvið og bögga hljóðkortið, hvað væri þá hægt að gera í því ?

en ég er svo að taka eftir því að þegar ég er t.d. að installa forritum eða loada borð í leikjum, þá er euins og hljóðið heyrist í takt við hreyfinguna á status bar :shock: :?

Sent: Mán 16. Ágú 2004 07:36
af elv
Fáðu þér pci hljóðkort....það ætti að ekki að vera eins næmt fyrir truflunum og innbyggða kortið.Audigy kortin eru fín og kosta ekki mikið getur fengið það á um 5000kr

Sent: Mán 16. Ágú 2004 07:48
af Mysingur
kannski kominn tími á að láta loksins eitthvað verða af þessum hljóðkorts og psu kaupum... en er ekki audigy 2 ZS annars inn í dag?
og hver er svo munurinn á venjulegu ZS og ZS platinum

Sent: Mán 16. Ágú 2004 09:23
af gnarr
jú, það gæti breytt heilmiklu að setja pci kort í staðin fyrir innbygða kortið. góð pci kort filtera rafmagnið líka áður en þau nota það í signal processeringu.