Síða 1 af 1
PCI Express
Sent: Fös 13. Ágú 2004 01:22
af Pepsi
Hvernig er það eru pci kortin betri en agp? Verða það kannski með tímanum. hvað halda menn um það?
Sent: Fös 13. Ágú 2004 02:30
af Arnar
Uhh,
ef þú ert að tala um skjákort, þá er PCI löngu úrelt í því..
En á næstu árum mun PCI-Express taka endalega við AGP/PCI
Sent: Fös 13. Ágú 2004 03:43
af Nemesis
Var þetta ekki svona:
PCI
AGP = 2x PCI
AGP-8x = 16x PCI
PCI-Express = 2x AGP-8x
Þá á ég við bandvídd.
Sent: Fös 13. Ágú 2004 03:47
af Mysingur
Sent: Fös 13. Ágú 2004 04:05
af Nemesis
Graf er það jú, en ágætinu finnst mér ofaukið hér. Þetta graf er ekki það ákjósanlegasta til að koma þessum tilteknu upplýsingum skilmerkilega á framfæri.
Sent: Fös 13. Ágú 2004 10:27
af Drulli
Arnar skrifaði:Uhh,
ef þú ert að tala um skjákort, þá er PCI löngu úrelt í því..
En á næstu árum mun PCI-Express taka endalega við AGP/PCI
Hann er bersýnilega að tala um PCI-E þó hann notaði bara pci því titillinn er PCI Express.
Sent: Fös 13. Ágú 2004 12:03
af Arnar
Vó.. sorry..
Þetta var svo ofurgreinilegt að ég ruglaðist..
greinilegt já..
En PCI-Express skjákort mun verða betri en AGP í framtíðinni þar sem PCI-Express hefur upp á að bjóða mikið meiri bandvídd
Sent: Lau 14. Ágú 2004 15:04
af gnarr
nei, þetta er ekki þannig.
PCIe er 250MBps í hvora átt meðan gamla PCI er 133MBs í aðra áttina í einu. hinsvegar er PCIe byggt þannig upp að það er hægt að nota miklu meira en eina rás í einu. tildæmis eru nánast öll móðurborð sem eru komin út og eru með PCIe með eina PCIe rauf sem notar 16 rásir, semsagt 16x PCIe og svo nokkrar raufar sem nota 1x PCIe. svo eru til önnur móðurborð sem eru með tvær raufar sem ganga á 16x og nokkrar á 1x. svo er líka von á nýjum móðurborðum sem verða með einni 32x rauf.
16x PCIe er semsagt 16x 250MB í hvora átt. semsagt 4GBps eða eins og sumir auglýsa það 8GBps vegna þess að þetta er simutanios í báðar áttir.
Sent: Mán 16. Ágú 2004 23:21
af Minuz1
Og PCIe hefur engan tilgang...
Skjákortin í dag eru að nota u.þ.b 4x AGP..... 8x er þessvegna 2x meira en þú þarft á að halda....og PCIe 4x hraðara en nokkuð sem til er..
Don't belive the hype....
Sent: Þri 17. Ágú 2004 02:31
af Birkir
PCI Express er samt gott fyrir framtíðina.. (ef þú ert að spá í þetta í sambandi við móðurborð)
Sent: Þri 17. Ágú 2004 07:49
af Daz
Minuz1 skrifaði:Og PCIe hefur engan tilgang...
Skjákortin í dag eru að nota u.þ.b 4x AGP..... 8x er þessvegna 2x meira en þú þarft á að halda....og PCIe 4x hraðara en nokkuð sem til er..
Don't belive the hype....
Ekki frekar en við þurfum örgjörva sem mælast í gígariðum eða innra minni í gígabætum? Sumir vilja það nýjasta og þá fá þeir sér það nýjasta.
Sent: Þri 17. Ágú 2004 09:29
af MezzUp
Daz skrifaði:Minuz1 skrifaði:Og PCIe hefur engan tilgang...
Skjákortin í dag eru að nota u.þ.b 4x AGP..... 8x er þessvegna 2x meira en þú þarft á að halda....og PCIe 4x hraðara en nokkuð sem til er..
Don't belive the hype....
Ekki frekar en við þurfum örgjörva sem mælast í gígariðum eða innra minni í gígabætum? Sumir vilja það nýjasta og þá fá þeir sér það nýjasta.
held að hann hafi verið að meina að skjákortin nýta ekki einusinni 8x til fulls þannig að PCI-Express gefur ekki finnanlegan mun núna
Sent: Þri 17. Ágú 2004 09:48
af gnarr
jú, maður finnur mun með PCI-e. það sendir gögn simultanious í báðar áttir, það breytir slatta.