Síða 1 af 1

MEDION sjáir

Sent: Fim 12. Ágú 2004 18:06
af Zn0w
Er viskulegt af mér að vera að kaupa mér 19" MEDION skjá ? þar sem ég ættla aðeinns að eiða 15k-20k í skjá.. hver er ykkar reinsla af þeim ?

Sent: Fim 12. Ágú 2004 18:10
af Gestir
Færð hann fyrir slikk í Bt.. ég myndi ekki hika...

fínir skáir þannig séð fyrir þetta lítin pening.. ef hann dugar þér fínt í 2-3 ár.. þá er þetta ljómandi fjárfesting.. ég meina.. til að mynda er GZ eða Ground Zero með SAMPO skjái sem ekki fengu ..góða dóma en þeir eru enná all flestir í fínu fjöri þar

þeir eru held ég alveg amk 3 ára gamlir...

þannig að medion kvikindið ætti að vera betri en SAmpoin..

Sent: Fim 12. Ágú 2004 22:34
af Birkir
Mér þykir það ekki góður skjár ef hann endist ekki lengur en í 2-3 ár... Ég er að nota 7 ára gamlan skjá og hann virkar fínt, mun ekki uppfæra fyrr en hann fer að gefast upp.

Sent: Fim 12. Ágú 2004 22:39
af Daz
7 ára gamlan??? 15 tommu skjár þá?

Sent: Fim 12. Ágú 2004 22:41
af Birkir
neibb 17" skjá

Sent: Fös 13. Ágú 2004 13:01
af Zn0w
Ég er með einn 15" bráðarbirðar skjá sem er hundgamall gæti giskað á svona 10-15 ára og á honum stendur : MicroScan 3GP | ADI Energy saving MPR II Monitor

Sent: Fös 13. Ágú 2004 14:17
af Steini
Ég veit það nú ekki, það var einhver hérna að segja að hann hafi fengið sér medion skjá og hann hafi bilað strax og fékk annann og hann bilaði líka....

Sent: Fös 13. Ágú 2004 16:34
af Predator
Já það var ég og þetta var svona endaði með því að ég fékk fujitsu siemens skjá og hann hefur ekki klikkað.

Sent: Lau 14. Ágú 2004 15:15
af gnarr
Zn0w skrifaði:Ég er með einn 15" bráðarbirðar skjá sem er hundgamall gæti giskað á svona 10-15 ára og á honum stendur : MicroScan 3GP | ADI Energy saving MPR II Monitor


Snilld.. ég er einmit með ADI Microscan LCD skjá í láni ;)

Sent: Sun 15. Ágú 2004 18:10
af Zn0w
Predator skrifaði:Já það var ég og þetta var svona endaði með því að ég fékk fujitsu siemens skjá og hann hefur ekki klikkað.


Það er ágætt að vita ;) maður ber nú ekki svo mikið traust til MEDION Þettta Þýska "stál" sem einginn þekkir í þýskalandi

Sent: Sun 15. Ágú 2004 18:37
af Skuggasveinn
Zn0w skrifaði:
Predator skrifaði:Já það var ég og þetta var svona endaði með því að ég fékk fujitsu siemens skjá og hann hefur ekki klikkað.


Það er ágætt að vita ;) maður ber nú ekki svo mikið traust til MEDION Þettta Þýska "stál" sem einginn þekkir í þýskalandi


Hahahahahahaha VEL ORÐAÐ!