Síða 1 af 2
Besti 27" skjárinn fyrir 65.000kr?(Búinn að kaupa, bilaður)
Sent: Mán 22. Okt 2012 20:39
af Glazier
Fæ 65.000 kr. á næstu dögum til að eyða í tölvuskjá (og ekki krónu meir).
Þannig mig vantar álit frá ykkur, hvaða skjá á ég að kaupa (27") sem má kosta allt að 65.000 kr?
Er eiginlega kominn inn á þennan:
http://tb.is/?gluggi=vara&vara=7492Einhver sem vill reyna að breyta ákvörðun minni áður en hann verður keyptur?

Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 20:42
af Vectro
Á svona skjá, flottur á þessu verði. Verður ekki svekktur.
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 20:55
af Glazier
Vectro skrifaði:Á svona skjá, flottur á þessu verði. Verður ekki svekktur.
Gaman að heyra frá einhverjum sem er sáttur allavega..

En einhver sem veit hvernig Tæknibær tekur á dauðum pixlum?
Finst ég nefnilega lesa svoldið mörg review á netinu þar sem þessi skjár er með dauða pixla

Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 20:59
af xerxez
Ég á einn svona og er mjög sáttur. Ég veit svo sem ekki hvaða reglur gilda hjá þeim en ég fékk allavega nýjan skjá þegar ég tók eftir dauðum pixli í mínum skjá.
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 21:00
af Glazier
xerxez skrifaði:Ég á einn svona og er mjög sáttur. Ég veit svo sem ekki hvaða reglur gilda hjá þeim en ég fékk allavega nýjan skjá þegar ég tók eftir dauðum pixli í mínum skjá.
Var þinn keyptur hjá Tæknibæ?
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 21:07
af appel
Pathetic upplausn fyrir svona stóran skjá.
Menn eru að fá sér 12" skjái með 1920x1080 á fartölvum, svo kemur MIKLU stærri skjár með sömu upplausn? Pathetic. Upplausnin ætti að vera allavega einu notchi fyrir ofan 1920x1080.
Svo er 4K að detta inn (eða "Ultra HD" einsog það kallast víst núna), þannig að þessir skjáir ættu að vera fara detta í almennilega hárfína upplausn bráðum vonandi.
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 21:10
af Glazier
appel skrifaði:Pathetic upplausn fyrir svona stóran skjá.

Og erum við að tala um að þetta komi í næsta mánuði eða eftir 6 mánuði eða meira?
Og ef ég ætla að fá 27" skjá þá kemur hann til með að kosta töluvert meira en 65 þús. þegar þetta kemur, ég hef 65.000 kr. til að eyða í skjá núna.. ekki eftir hálft ár þeim mun meira

Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 21:14
af sakaxxx
appel skrifaði:Pathetic upplausn fyrir svona stóran skjá.
Menn eru að fá sér 12" skjái með 1920x1080 á fartölvum, svo kemur MIKLU stærri skjár með sömu upplausn? Pathetic. Upplausnin ætti að vera allavega einu notchi fyrir ofan 1920x1080.
Svo er 4K að detta inn (eða "Ultra HD" einsog það kallast víst núna), þannig að þessir skjáir ættu að vera fara detta í almennilega hárfína upplausn bráðum vonandi.
sammála ég keypti mér 27 tommu acer með 1080p upplausn fyrir ári síðan og var búinn að skila honum næsta dag þetta er einfaldlega alltof lág upplausn nema þú sért mjög langt frá honum
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 21:16
af Glazier
Ég kem til með að vera með 2 skjái.. einn 22" Samsung SyncMaster 2243BWX sem ég er með núna og nota í ljósmyndir, nýji skjárinn verður síðan notaður í bíómyndagláp

Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 21:18
af Moldvarpan
Upplausn er ekki allt. Ég hef t.d. akkurat enga þörf í hærri upplausn, mjög fínt að vinna með 1920x1080. Í hvað þarft þú stærri upplausn en þetta Appel?
Ég fékk mér
http://www.att.is/product_info.php?cPath=6&products_id=7640&osCsid=c609b4f432fa57fa0bec5390fbaff3c9 og er sáttur við hann.
Ódýr og góður skjár.
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 21:25
af DerrickM
Held að þessi sé ódýrastur, veit ekki með gæðin samt:
http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=3492
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 21:27
af appel
Intel warns of impending high-resolution explosion
http://www.bit-tech.net/news/hardware/2 ... xplosion/1Þetta er örugglega fínn skjár, þessi 27", og 1920x1080 er sæmileg upplausn, nota hana sjálfur í vinnunni... ekki það að það sé mikið annað í boði. 65k fyrir 27" er ekki mikið. Finnst þó 27" vera nokkuð stór skjár fyrir svo "litla" upplausn. Mér finnst að ef skjáir eru orðnir stærri en 24" þá á upplausnin að vera 2560x1600. 1920x1080 þýðir að þú getur haft tvo glugga hlið við hlið, sem mér finnst nokkuð lítið fyrir ultra-multitasking.
En nei, ef þú vilt ekki bíða lengur en 6 mánuði þá er pointless að vera bíða eftir einhverju sem á eftir að kosta miklu meira en 65 þús. Líklegast er 2 ár þangað til við fáum skjái á ásættanlegu verði sem eru með almennilega "ultra hd" eða "retina" eða hvað sem menn vilja kalla háa upplausn.
Ok, sendi sjálfum mér viðvörun fyrir þráðarán

Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 21:37
af Glazier
Var ekki að leyta að ódýrasta skjánum.. var að leita að besta skjánum fyrir 65.000 kr.
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 21:38
af Moldvarpan
Alltí góðu að ræða það sem í boði er og það sem er á döfinni.
En comment eins og
Pathetic upplausn fyrir svona stóran skjá.
,,, það er full djúpt í árina tekið.
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 21:47
af mercury
appel skrifaði:Líklegast er 2 ár þangað til við fáum skjái á ásættanlegu verði sem eru með almennilega "ultra hd" eða "retina" eða hvað sem menn vilja kalla háa upplausn.
http://www.guru3d.com/news_story/4k_res ... ition.html
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 21:56
af audiophile
Ég persónulega hata lága upplausn. Það er bara sorglegt að ennþá séu flestar 15" fartölvur með 1366x768 þegar þær eiga að vera með allavega 1600px á lengri kant og auðvitað helst FullHD.
Ég hef ekki mörg fögur orð að segja um Apple en ég þakka þeim innilega fyrir að hafa komið af stað þessari upplausnar-standpínu-keppni.

Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 22:22
af appel
audiophile skrifaði:Ég persónulega hata lága upplausn. Það er bara sorglegt að ennþá séu flestar 15" fartölvur með 1366x768 þegar þær eiga að vera með allavega 1600px á lengri kant og auðvitað helst FullHD.
Ég hef ekki mörg fögur orð að segja um Apple en ég þakka þeim innilega fyrir að hafa komið af stað þessari upplausnar-standpínu-keppni.

Þegar ég byrjaði í tölvubransanum, líklega 1995, þá var yfirmaður minn með 20" skjá og 1600x1200 upplausn, sem jú var vissulega "high end" á þeim tíma (var einhver unix vél). 2-3 árum síðar var ég með 19" trinitron í 1600x1200.
17 árum síðar hvar erum við? Standardinn í kringum 20-21" og 1920x1080.
2.073.600 pixelar nú vs. 1.920.000 pixlar fyrir 17 árum, heil 8% aukning í pixla fjölda.
Frekar "pathetic" þróun.
Svo er þetta alltaf spurning um "hvað þarf maður"... en nokkuð sorglegt að sjá þessa litlu snjallsíma með álíka hárri upplausn og fartölvur eru með nýjar í dag.... lýsir dálítið metnaðarleysinu í þróun á upplausn.
Svo eru allskonar anti-aliasing algorithmar notaðir til að "smootha" út t.d. tölvuleiki, því annars sérðu allt voðalega pixelletað og aliasað. Ef þetta væri alvöru upplausn þá myndi augað sjá um að gera það fyrir þig.
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 22:45
af Hvati
Ef þú ert að skoða skjái í þessum verðflokki þá get ég mælt með BenQ
GW2750HM. VA-LED skjáir ftw
Review frá
Tftcentral.
Verst bara að svona HDMi tengdir skjáir falla undir sjónvarpstolla.
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mán 22. Okt 2012 22:57
af Farcry
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mið 24. Okt 2012 22:29
af Glazier
Keypti skjáinn sem ég var með í huga í upphafi.. og viti menn, dauður pixl í skjánum.
Sendi Tæknibæ tölvupóst í kvöld, ef ég verð ekki búinn að fá svar um 3 leytið á morgun hringi ég í þá og ætla að heyra hvað þeir gera í þessu.
Hringdi amk. áður en ég keypti skjáinn og spurði útí pixla ábyrgð þá var mér sagt að ef skjárinn kemur með dauða/fasta pixla úr kassanum eða eitthvað kemur
í ljós á fyrstu dögunum þá skipti þeir honum út fyrir nýjann en ef það líður lengri tími þá þurfi þeir að vera 5 eða 6 til að honum sé skipt út.
Þannig samkvæmt því þá ætti ekki að vera mál fyrir mig að fá nýjann skjá hjá þeim.
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000 kr ?
Sent: Mið 24. Okt 2012 23:01
af Klemmi
Glazier skrifaði:Keypti skjáinn sem ég var með í huga í upphafi.. og viti menn, dauður pixl í skjánum.
Sendi Tæknibæ tölvupóst í kvöld, ef ég verð ekki búinn að fá svar um 3 leytið á morgun hringi ég í þá og ætla að heyra hvað þeir gera í þessu.
Hringdi amk. áður en ég keypti skjáinn og spurði útí pixla ábyrgð þá var mér sagt að ef skjárinn kemur með dauða/fasta pixla úr kassanum eða eitthvað kemur
í ljós á fyrstu dögunum þá skipti þeir honum út fyrir nýjann en ef það líður lengri tími þá þurfi þeir að vera 5 eða 6 til að honum sé skipt út.
Þannig samkvæmt því þá ætti ekki að vera mál fyrir mig að fá nýjann skjá hjá þeim.
Þeim ber lagaleg skylda til að gera við skjáinn/skipta honum út fyrir þig, sama hvað ábyrgð framleiðanda segir.
Hlutur eru annað hvort gallaðir eða ekki. Þú átt rétt á úrbótum á öllum göllum, hlutir þurfa ekki að vera x mikið gallaðir til að þeir falli undir ábyrgð.
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000kr?(Búinn að kaupa, bilað
Sent: Mið 24. Okt 2012 23:35
af Benzmann
alls ekki versla við tæknibæ eða computer.is sama búllan kinda
ég verslaði þarna mjög mikið á tímabili, og uþb. 70% af öllu tölvudóti sem ég hef verslað þarna hefur bilað, hef verslað þarna fyrir meira en 5miljónir( fyrir fyrirtæki)og ég mun alls ekki stíga fet inn í þessa verslun aftur
og svo er þjónustan hjá þeim alveg fáránleg þegar viðkemur að gera við eh, keypti hjá þeim aflgjafa, og svo kom í ljós að hann var bilaður, svo ég fór með hann til þeirra "SAMDÆGURS" kanski 2tímum seinna, og þeir söguðust ætla að láta tæknimenn sína líta á þetta og að þetta myndi taka c.a viku "#%$#$"#$
ég sagði við þá að ég hafði keypt þetta samdægurs hjá þeim, en samt sögðu þeir að þetta væri svona, og svo hef ég lent í ýmist öðru hjá þeim, þegar viðkemur að þjónustu.
versla aldrei við þá aftur.
Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000kr?(Búinn að kaupa, bilað
Sent: Mið 24. Okt 2012 23:37
af Glazier
Ætla nú að gefa þeim smá séns og sjá hvað þeir segja við þessu

Óþarfi að mæta fúll og pirraður sannfærður um að þeir neiti að skipta um skjá við mig

Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000kr?(Búinn að kaupa, bilað
Sent: Fim 25. Okt 2012 00:03
af Benzmann
Glazier skrifaði:Ætla nú að gefa þeim smá séns og sjá hvað þeir segja við þessu

Óþarfi að mæta fúll og pirraður sannfærður um að þeir neiti að skipta um skjá við mig

já, skulum gefa þessu viku

Re: Besti 27" skjárinn fyrir 65.000kr?(Búinn að kaupa, bilað
Sent: Fim 25. Okt 2012 00:14
af nonesenze
af hverju eru engir að selja þessa í dag?
http://www.samsung.com/us/computer/monitors/LS27EFHKUF/ZAvoru alltaf á einhvern 70þ... á einn og er svo mikið góður, á líka benQ 24" og hann lítur svo illa út tengdur við sömu tölvu í litum og bara öllu, samsung WTF