Einfaldur flakkari


Höfundur
Sook
Nýliði
Póstar: 1
Skráði sig: Sun 21. Okt 2012 02:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Einfaldur flakkari

Pósturaf Sook » Sun 21. Okt 2012 02:36

Sælt veri fólkið

Ákvað að prófa spyrja ykkur hérna út í flakkara kaup.

Málið er að ég ætla gefa foreldrum mínum flakkara í jólagjöf en hef EKKERT vit á þessu dótaríi. Þau eru fólk á besta aldri, ekki mjög tæknivædd, eru með fartölvur. Væri gott líka ef það væri hægt að tengja hann við tv til að skoða ljósmyndir.

Hvernig flakkara á maður að kaupa fyrir fólk sem kemur til með að geyma ekkert nema ljósmyndir inná honum? Væri ekki verra ef hann myndi kosta sem minnst og alls ekki yfir 20 þúsund krónur 8-[

Ég hef verið að skoða þetta á netinu sl vikurnar, hver er td munurinn á usb3 og usb2? Af hverju "heita" sumir ferðaflakkarar?

Æi vona að einhver skilji þetta....hálf samhengislaust hjá mér #-o

Kv.
SK



Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Einfaldur flakkari

Pósturaf KermitTheFrog » Sun 21. Okt 2012 09:47

Ferðaflakkarar eru 2.5" og þurfa bara USB straum. Aðrir flakkarar eru 3.5" og þurfa spennubreyti og sér rafmagnssnuru.

Ef þú vilt flakkara til að tengja við sjónvarpið þá kosta sjonvarpsflakkarar oftast yfir 20.000 kall.

Ég myndi mæla með svona ferðaflakkara þar sem þeir eru þægilegri. Svo seinna meir gætirðu keypt einfaldan margmiðlunarspilara sem þú tengir við sjónvarpið og getur tengt flakkararnn við og skoðað það sem á honum er.