Síða 1 af 1
Gigabyte Radeon 5850 CrossfireX vesen
Sent: Lau 20. Okt 2012 17:54
af ZiRiuS
Ég er að lenda í einhverju skrítnu veseni.
Ég var með tvö skjákort, bæði Gigabyte Radeon 5850 1 GB og ég var að nota þau með CrossfireX og ekkert vesen þangað til viftan gaf sig á öðru þeirra. Ég ákvað bara að kaupa mér nýja viftu, set hana á kortið og smelli kortinu aftur í vélina. Þegar ég kveiki á vélinni fer allt í gang nema ég fæ ekkert á skjáinn, allt alveg eins tengt og þegar ég var með þau í CrossfireX áður. Svo fæ ég þetta ekki til að lagast nema að taka kortið með nýju viftunni úr.
Any ideas hvað sé að?
Re: Gigabyte Radeon 5850 CrossfireX vesen
Sent: Lau 20. Okt 2012 18:32
af Squinchy
En hvað gerist ef þú hefur bara kortið sem viftan bilaði á ?
Re: Gigabyte Radeon 5850 CrossfireX vesen
Sent: Lau 20. Okt 2012 18:37
af mercury
prufaðu að taka það úr eyða út drivers setja það aftur í og installa á ný.
Re: Gigabyte Radeon 5850 CrossfireX vesen
Sent: Lau 20. Okt 2012 19:58
af ZiRiuS
Squinchy skrifaði:En hvað gerist ef þú hefur bara kortið sem viftan bilaði á ?
Sama, kemur ekkert á skjáinn en allt í gangi.
mercury skrifaði:prufaðu að taka það úr eyða út drivers setja það aftur í og installa á ný.
Done and done og breytir engu.
Re: Gigabyte Radeon 5850 CrossfireX vesen
Sent: Lau 20. Okt 2012 23:22
af mercury
prufa bara kortið með nýju kælingunni í annari vél. ef það virkar ekki þá hefur þú sennilega tjónað það þegar þú skiptir um kælingu eða ekki gert það rétt

Re: Gigabyte Radeon 5850 CrossfireX vesen
Sent: Sun 21. Okt 2012 12:08
af ZiRiuS
mercury skrifaði:prufa bara kortið með nýju kælingunni í annari vél. ef það virkar ekki þá hefur þú sennilega tjónað það þegar þú skiptir um kælingu eða ekki gert það rétt

Já ég hef ekki prófað það.
Ætti kortið ekki annars að (það er rangt að tala um að rönna, ég lofa að vanda málfar mitt annars verð ég bannaður, lengi lifi ritskoðun!) þótt kælingin virki ekki? Ég veit allavega að kælingin fer í gang á kortinu þegar ég kveiki á tölvunni.
Re: Gigabyte Radeon 5850 CrossfireX vesen
Sent: Sun 21. Okt 2012 13:47
af Squinchy
Hvernig var virknin á kortinu þegar bilunin á viftunni kom fyrst fram? og hvað bennti þér á að orginal kælingin væri biluð ?
Re: Gigabyte Radeon 5850 CrossfireX vesen
Sent: Sun 21. Okt 2012 14:07
af ZiRiuS
Squinchy skrifaði:Hvernig var virknin á kortinu þegar bilunin á viftunni kom fyrst fram? og hvað bennti þér á að orginal kælingin væri biluð ?
Það ofhitnaði og vifturnar voru hættar að snúast eða farnar að gefa frá sér óhljóð og það þýddi ekki að hreinsa vifturnar, þær voru gone. En kortið virkaði samt í þennan stutta tíma sem ofhitnunin var og ég tók það strax úr þegar ég var orðinn var við hitann.
Re: Gigabyte Radeon 5850 CrossfireX vesen
Sent: Mán 22. Okt 2012 08:32
af ZiRiuS
Engar fleiri hugmyndir?