Síða 1 af 1
Blanda saman minni
Sent: Mið 17. Okt 2012 23:35
af bjornvil
Sælir
Ég er með þrjá kubba,
1x Corsair 2GB DDR2 800Mhz 5-5-5-18
1x ExcelRAM 1GB DDR2 667Mhz 5-5-5-15
1x OCZ 1BG DDR2 667Mhz 5-5-5-15
1GB kubbarnir eru í vélinni núna og hef ég ekki lent í neinum vandræðum með þá.
Er einhver leið fyrir mig að nota alla þessa kubba saman til að vera með total 4GB af minni?
Móðurborðið er MSI P6N SLI V2
Takk fyrir!
Re: Blanda saman minni
Sent: Mið 17. Okt 2012 23:55
af bjornvil
Ég held að þetta sé ekki hægt, en endilega leiðrétta mig ef ég hef rangt fyrir mér.
Re: Blanda saman minni
Sent: Fim 18. Okt 2012 00:19
af Eiiki
Já þú opnar kassann þinn og setur vinnsluminnið í rauf sem er laus.
Þessi 2gb kubbur sem er 800mhz mun samt koma til með að vinna á sama klukkuhraða og lægst klukkaða minnið þitt, þ.e. 667mhz.
EDIT: Verður að vera slökkt á tölvunni þegar þú setur minnið í

Re: Blanda saman minni
Sent: Fim 18. Okt 2012 00:19
af AciD_RaiN
Eiiki skrifaði:Já þú opnar kassann þinn og setur vinnsluminnið í rauf sem er laus.
Þessi 2gb kubbur sem er 800mhz mun samt koma til með að vinna á sama klukkuhraða og lægst klukkaða minnið þitt, þ.e. 667mhz.
Jebb það passar

Bara confirma rétta svarið...
Re: Blanda saman minni
Sent: Fim 18. Okt 2012 01:13
af bjornvil
Eiiki skrifaði:Já þú opnar kassann þinn og setur vinnsluminnið í rauf sem er laus.
Þessi 2gb kubbur sem er 800mhz mun samt koma til með að vinna á sama klukkuhraða og lægst klukkaða minnið þitt, þ.e. 667mhz.
EDIT: Verður að vera slökkt á tölvunni þegar þú setur minnið í

Huurrr durr
Ég er nú ekki alveg fæddur í gær

Það sem ég er að spá er líka hvernig skal setja minnið í til að nýta það sem best. Þetta móðurborð styður dual channel þannig að ef ég vill nýta það vill ég væntanlega vera með 1GB 667Mhz í slot 1 og 3 og þá 2GB kubbinn í slot 2 ekki satt?
Einnig, er ekki vandamál með mismunandi timing?
Re: Blanda saman minni
Sent: Fim 18. Okt 2012 19:50
af bjornvil
Hefur einhver vit á þessu sem ég skrifa hér fyrir ofan... eða er ég að flækja þetta of mikið fyrir mér og ætti bara að henda kubbunum í og sjá hvað gerist.
Re: Blanda saman minni
Sent: Fim 18. Okt 2012 20:08
af Squinchy
bjornvil skrifaði:1GB 667Mhz í slot 1 og 3 og þá 2GB kubbinn í slot 2 ekki satt?
Jebb