Síða 1 af 1

Hljóð vesen

Sent: Mið 03. Okt 2012 23:53
af joishine
Jæja er kominn með nýja vél nánast sem fiffaði auðvitað restart vandamálið, en með þessu nýja kom spes vandamál.

Þetta er s.s

Fatal1ty fp-in9 SLi móðurborð
Intel E6600 Örri
ATi Radeon HD4850 skjákort
4 GB minni

þannig er málið að ég setti upp audio driverinn, er sem Realtek HD Audio Driver R190 - og strax eftir rs og ég setti lag á var eins og headphones væru sprungin, það urgaði ruglað í þeim og e-ð, prófaði þau við simann og musik og allt í fínu.

Tókst að fiffa þetta aðeins með því að lækka vel í öllu og svo lengi sem það er ekki hátt hljóð er þetta í lagi, en ef það er hækkað fer að urga og skruðningast á fullu.

Reyndar þegar það er ekkert í gangi, þá er feedback suð í heyrnartólunum, þegar ekkert er í gangi heyrist þetta - eins og það sé e-ð mega boost í gangi eða e-ð. Einhver sem þekkir þetta ?

Re: Hljóð vesen

Sent: Fim 04. Okt 2012 00:03
af IL2
Smá pæling. Er tölvan jarðtengt?

Re: Hljóð vesen

Sent: Fim 04. Okt 2012 00:04
af Daz
Ertu búinn að prófa tengi framan á og aftan á? Velurðu hvaða "device" þú ert að tengja s.s. "Headphones, speakers, mic" osfrv? Ég þarf að tengja mín heyrnatól aftan á tölvunni og segja að þau séu "Front speakers". Annars fæ ég skruðning.

Re: Hljóð vesen

Sent: Fim 04. Okt 2012 02:10
af joishine
Heimskt svar kannski, en hvernig veit ég hvort tölvan sé jarðtengd ?

Og það virkaði ekki að rugla í hvaða device þetta er, reyndar ef ég setti "Line Out" fór feedbackið en bara hægra eyrað virkaði :(