Síða 1 af 1

Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 11:48
af Yawnk
Sælir, ég er með Thermaltake 730W smart aflgjafa í tölvunni hjá mér sem var keyptur í Tölvutek, fyrir um það bil mánuði síðan, hefur virkað fínt.
En nú í morgun, kveikti ég á tölvunni, rétt um 7 leytið, fer í skólann, kem aftur um 11, og heyrði basically í tölvunni niðri þegar ég kom inn, aflgjafinn er á alveg 100% snúning með viftuna, varla líft hérna inni það er svo hátt, þetta var ekki svona í morgun.

Ég reyndi að restarta og blása með þrýstilofti, en ekkert virkaði... en þegar ég restartaði kom bara System Restore og færði aftur um svolítinn tíma, hvað er í gangi?

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 11:53
af playman
Búin að prófa annann aflgjafa?

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 11:54
af Yawnk
playman skrifaði:Búin að prófa annann aflgjafa?

Nei, ég á engan annan til að prófa!

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 12:04
af worghal
Fardu aftur med hann i tolvutek og segdu theim ad thu viljir alvoru aflgjafa.
Er thetta ekki i annad sinn sem thu lendir i vandraedum med thessa tegund af aflgjafa ?

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 12:08
af Yawnk
worghal skrifaði:Fardu aftur med hann i tolvutek og segdu theim ad thu viljir alvoru aflgjafa.
Er thetta ekki i annad sinn sem thu lendir i vandraedum med thessa tegund af aflgjafa ?

Jú.... þetta er annar aflgjafinn sem ég fæ frá þeim sem bilar ](*,)
Fyrst springur einn, og svo þetta rugl, allt á einum mánuði? what are the odds.

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 12:19
af Kjáni
Sló rafmagnið kannski út hjá þér ? og eithver kveikti svo aftur á ?

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 12:19
af Yawnk
Get ég ekki stjórnað viftuhraðanum á aflgjafanum? eða er það ekki hægt því hann tengist bara við móðurborðið í gegnum power eða slíkt?

@Kjáni
Nei ekkert slíkt..

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 12:28
af oskar9
Leysir öll þín vandamál

http://tl.is/vara/25931

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 12:31
af Yawnk
oskar9 skrifaði:Leysir öll þín vandamál

http://tl.is/vara/25931

Nákvæmlega :face
Ég hringdi í Tölvutek, þarf að fara með tölvuna til þeirra....í andskotans tíunda skiptið.
Spurði líka um aðra aflgjafa, þeir hafa líka Antec, er það betra en Thermaltake? Inter-Tech er náttúrulega út úr kortinu..

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 12:35
af oskar9
Yawnk skrifaði:
oskar9 skrifaði:Leysir öll þín vandamál

http://tl.is/vara/25931

Nákvæmlega :face
Ég hringdi í Tölvutek, þarf að fara með tölvuna til þeirra....í andskotans tíunda skiptið.
Spurði líka um aðra aflgjafa, þeir hafa líka Antec, er það betra en Thermaltake? Inter-Tech er náttúrulega út úr kortinu..


hef ekki prufað Antec en margir mæla með þeim, Inter tech eru illa lélegir

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 12:38
af worghal
Yawnk skrifaði:
oskar9 skrifaði:Leysir öll þín vandamál

http://tl.is/vara/25931

Nákvæmlega :face
Ég hringdi í Tölvutek, þarf að fara með tölvuna til þeirra....í andskotans tíunda skiptið.
Spurði líka um aðra aflgjafa, þeir hafa líka Antec, er það betra en Thermaltake? Inter-Tech er náttúrulega út úr kortinu..

reyndu að fá endurgreitt og fjárfestu í Corsair aflgjafa eða cooler master en coolermaster skorar topp einkunn.

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 12:59
af Yawnk
worghal skrifaði:
Yawnk skrifaði:
oskar9 skrifaði:Leysir öll þín vandamál

http://tl.is/vara/25931

Nákvæmlega :face
Ég hringdi í Tölvutek, þarf að fara með tölvuna til þeirra....í andskotans tíunda skiptið.
Spurði líka um aðra aflgjafa, þeir hafa líka Antec, er það betra en Thermaltake? Inter-Tech er náttúrulega út úr kortinu..

reyndu að fá endurgreitt og fjárfestu í Corsair aflgjafa eða cooler master en coolermaster skorar topp einkunn.

Hmm.. heldurðu að það sé líklegt að ég fái endurgreitt? gera þeir svoleiðis?
Ef ég myndi nú fá endurgreitt, þá hefði ég bara efni á annað hvort af þessum :

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=7682

http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=3545

Hvor?

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 13:19
af Akumo
Þetta vesen í kringum þessa tölvu þína er alveg ótrúlegt..

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 13:25
af Yawnk
Akumo skrifaði:Þetta vesen í kringum þessa tölvu þína er alveg ótrúlegt..

Ég veit það! hehehe, þetta er orðið hlægilegt bara.. veit ekki hversu oft ég hef farið með hana í Tölvutek, allaveganna 10x, orðið svolítið þreytt, ég skil bara ekki hvað er að gerast, er ég bara svona gríðarlega óheppinn?
Hef einmitt tekið eftir því að allir rafmagnshlutir sem ég kaupi bila fljótlega, samt fer ég eins vel með þá og móðir með nýfætt barn ;)
Eina sem ég á sem hefur ekki bilað so far er sjónvarpið mitt... 7-9-13.

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 13:28
af playman
Er ekki bara eithvað vesen með rafmagnið heima hjá þér?

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 13:33
af Yawnk
playman skrifaði:Er ekki bara eithvað vesen með rafmagnið heima hjá þér?

Nei alls ekki, ekkert vandamál með það.
Svo fyrir utan mitt rafmagn, rafmagnið ætti að vera stabílt í RVK 104, myndi ég halda.

*Svo er ég ekki endilega að tala um að raftækin mín bili varðandi rafmagnið, eins og hátalarnir mínir, takkinn fór á þeim ;) og bara þannig bilanir.

Re: Thermaltake 730W Smart viftu vandamál

Sent: Mið 03. Okt 2012 18:44
af Yawnk
Jæja, fór með hann í Tölvutek, þeir tóku tölvuna mína inn í flýtiþjónustu, tók ekki nema 1-2klst, flott þjónusta :)
Fékk aflgjafann skiptan fyrir sömu tegund, s.s annan Thermaltake 730W Smart.
Dagsetningin í dag er 3/10/2012, hversu lengi ætli þessi dugi ;)