Síða 1 af 1

Panta Skjákort af Ebay

Sent: Mán 09. Ágú 2004 03:00
af Gestir
Ein stutt Spurning..

hversu sniðugt er að panta sér t.d Skjákort á Ebay ???

þetta er fáránlega ódýrt oft.. ég meina ´.. ég sá Powercolor 9800XT 256mb kort á 140 dollara og það höfðu 3 boðið í þetta og þetta var að renna út !!!

panta senda ,.. líklegast hingað komið upp að dyrum fyrir 160 dollara.. sem er ekki Dick !!!

hmm er þetta virkilega svona einfalt ??

Sent: Mán 09. Ágú 2004 09:49
af axyne
nei tollurinn tekur þig í rassinn :twisted:

Sent: Mán 09. Ágú 2004 11:24
af Daz
Ef þú finnur kortið svona ódýrt má gera ráð fyrir að það sé eitthvað flókið að borga það (taki ekki paypal) og/eða það sé ekki sent út fyrir USA og/eða það sé seljandi með mjög lítið/lélegt feedback. Þau 9800xt kort sem ég sá núna voru öll nærri því að kosta 250 $.
En annars er alveg öruggt að þú borgar 24,5% vsk ofan á kaupverð + sendingarkostnað og ef varan er orðin svona dýr þarftu líklega að borga 1500 + vsk kr tollskýrslugjald.

Sent: Mán 09. Ágú 2004 18:19
af Gestir
En þegar ég vitna í þessa stráka hérna sem eru alltaf að hamra á því að þú borgir EKKI skatt eða Toll af tölvuvörum ??

líka svo framarlega sem að stykkið kosti ekki meira en 23.000 ka

hmm..

Sent: Mán 09. Ágú 2004 18:25
af MezzUp
GimliGamli skrifaði:En þegar ég vitna í þessa stráka hérna sem eru alltaf að hamra á því að þú borgir EKKI skatt eða Toll af tölvuvörum ??

líka svo framarlega sem að stykkið kosti ekki meira en 23.000 ka

hmm..

það er enginn tollur á tölvuvörum, punktur!

það er hinsvegar 24,5% virðisaukaskattur, sumir hafa þó bent á að þú megir koma með hlut að upphæð x kr.- í landið tollfrjálst, en spurningin er, fellur virðisaukaskattur líka undir "tollfrjálst"? best væri fyrir þig að hingja í tollstjóra(r sum) og spyrja

ps. þú hefur líklega ruglast afþví að sumir skrifa um hluti sem að þeir vita ekki nógu mikið um, án þess að taka það fram :evil:

Sent: Mán 09. Ágú 2004 18:36
af gutti
Á tölvuvörum er bara 24.5 %vsk ekki tollgjald ég forvitni hjá tollstjóra í vor :wink: nefnilega að panta skjákort bráðum

Sent: Mán 09. Ágú 2004 18:41
af axyne
ef þú lætur senda þetta sem "gift" og biður um að verðmætið verði skráð minna en 7.000 kr. þá ættirðu að sleppa við allan toll.

ég sendi postinum e-mail um daginn að spyrja um þetta.

Gjafir eru tollfrjálsar og vsk frjálsar ef þær kosta innan við 7þús.

Sent: Mán 09. Ágú 2004 20:58
af Daz
MezzUp skrifaði:
GimliGamli skrifaði:En þegar ég vitna í þessa stráka hérna sem eru alltaf að hamra á því að þú borgir EKKI skatt eða Toll af tölvuvörum ??

líka svo framarlega sem að stykkið kosti ekki meira en 23.000 ka

hmm..

það er enginn tollur á tölvuvörum, punktur!

það er hinsvegar 24,5% virðisaukaskattur, sumir hafa þó bent á að þú megir koma með hlut að upphæð x kr.- í landið tollfrjálst, en spurningin er, fellur virðisaukaskattur líka undir "tollfrjálst"? best væri fyrir þig að hingja í tollstjóra(r sum) og spyrja

ps. þú hefur líklega ruglast afþví að sumir skrifa um hluti sem að þeir vita ekki nógu mikið um, án þess að taka það fram :evil:


Eða þá að einhver (nefni engin nöfn) hefur ekki lesið sínar upplýsingar nógu vel því að 23000 kr reglan gildir um það sem maður kemur með til landsins, ekki um það sem er sent til landsins.

Svo er nú ekki alltaf hægt að fá hlutina merkta sem gjafir eða undir 7000 og ef ég er að kaupa mér 30 þúsund króna skjákort vil ég helst tryggja það í flutningi líka, veit ekki hvernig það virkar með gjafamerkingu.

Sent: Mán 09. Ágú 2004 21:20
af gumol
Daz skrifaði:Eða þá að einhver (nefni engin nöfn) hefur ekki lesið sínar upplýsingar nógu vel því að 23000 kr reglan gildir um það sem maður kemur með til landsins, ekki um það sem er sent til landsins.

Með öðrum orðum, akkurat það sem MezzUp var að segja.

Sent: Mán 09. Ágú 2004 22:10
af Daz
gumol skrifaði:
Daz skrifaði:Eða þá að einhver (nefni engin nöfn) hefur ekki lesið sínar upplýsingar nógu vel því að 23000 kr reglan gildir um það sem maður kemur með til landsins, ekki um það sem er sent til landsins.

Með öðrum orðum, akkurat það sem MezzUp var að segja.

Reyndar ekki, því flestir sem ég hef séð tala um þessa "23000 kr reglu" hér á spjallinu tengja hana beint við það að koma inní landið sjálfur.

Skiptir voða litlu svosem svo lengi sem svona misskilningur er leiðréttur fljótt :)

Sent: Þri 10. Ágú 2004 00:49
af Pectorian
Don´t do it :!: :!: , Félagi minn reyndi þetta í gegnum pay pal og allt en gaurinn hirti 100 dollara og sendi ekki neitt. Félagi minn kvartaði en það gekk ekki neitt. Þá er nú allavega betra að borga aðeins meira og fá þá vöruna.

Sent: Þri 10. Ágú 2004 15:34
af DaRKSTaR
Pectorian skrifaði:Don´t do it :!: :!: , Félagi minn reyndi þetta í gegnum pay pal og allt en gaurinn hirti 100 dollara og sendi ekki neitt. Félagi minn kvartaði en það gekk ekki neitt. Þá er nú allavega betra að borga aðeins meira og fá þá vöruna.


lítil áhætta að kaupa af ebay með paypal, bara passa upp á að skoða fb hjá gaurnum og sjá til þess að hann sé paypal verified þá eru nánast engar líkur á því að hann rippi þig off.. já og alltaf þá meina ég alltaf að kaupa tryggingu ef menn eru að kaupa dýra hluti.. svona money back tryggingu, getur keypt hana um leið og þú borgar hlutinn..

Sent: Þri 10. Ágú 2004 23:51
af Gestir
hmm

þannig að LOKASVAR ER.... GERA ÞETTA EÐA EKKI ??

:idea: :idea: :idea: :idea:

Sent: Þri 10. Ágú 2004 23:59
af axyne
ef þú ert kaldur gaur og veist að tollurinn mun hirða af þér og telur þig spara á þessu frá e-bay. þá myndi ég segja Go for it !

en ef þú vilt hafa þetta einfalt og geta auðveldlega farið með kortið í viðgerð(notað ábyrgðina) og ert reiðubúinn að borga aukalega fyrir það. þá myndi ég líka segja got for it ! :wink: