Síða 1 af 1
Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 11:14
af Katrin
Harði diskurinn í fartölvunni minni varð ónýtur seinasta sumar og ég pantaði bara nýjan og allt fínt með það.
En núna vill ég endurheimta öll gögn eða þau sem er mögulegt að endurheimta af diskinum.
Hvernig gæti ég gert það?
Með fyrirfram þakkir (:
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 11:42
af playman
Það fer bara allt eftir því hverninn hann er bilaður.
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 11:55
af jericho
Hafðu samband við einhverja tölvuverslun og kannaðu hvort þeir bjóði upp á gagnabjörgun. Þá ættir þú að fá lausn þinna mála og getur byrjað aftur að dansa.
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 12:07
af Katrin
Heyrðu lét vin bróður míns kíkja á hann þegar hann bilaði og hann vissi það ekki, svo ég veit það ekki.
Gagnabjörgun er oftast mjög dýr, jafnvel tugi þúsunda hjá tölvuverslunum :/
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 12:17
af playman
það er frekar erfitt að bjarga gögnum út af disk ef maður veit ekki hvað er að honum.
En það er rétt að gagnabjörgun getur hlaupið á tugum þúsunda, og oftast fer það eftir gagnamagni.
t.d. ef að diskurinn kveikir ekki á sér, þá er nánast víst að stýrispjaldið sé farið, lítið mál getur verið að skipta um það, og ekki svo kostnaðarsamt.
Þá er oftast bara nóg að skipta um það og hann er þá nothæfur aftur.
En ef að hann kveikir á sér og er að surga eða hakkhljóð heyrist í honum, þá þarf að opna hann og það getur verið mjög kostanaðar samt.
En í Þessum málum er ekki hægt að alhæfa neitt, og þetta eru bara hugmyndir hjá mér.
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 12:58
af CendenZ
playman skrifaði:það er frekar erfitt að bjarga gögnum út af disk ef maður veit ekki hvað er að honum.
En það er rétt að gagnabjörgun getur hlaupið á tugum þúsunda, og oftast fer það eftir gagnamagni.
t.d. ef að diskurinn kveikir ekki á sér, þá er nánast víst að stýrispjaldið sé farið, lítið mál getur verið að skipta um það, og ekki svo kostnaðarsamt.
Þá er oftast bara nóg að skipta um það og hann er þá nothæfur aftur.
En ef að hann kveikir á sér og er að surga eða hakkhljóð heyrist í honum, þá þarf að opna hann og það getur verið mjög kostanaðar samt.
En í Þessum málum er ekki hægt að alhæfa neitt, og þetta eru bara hugmyndir hjá mér.
Maður opnar ekki harðan disk nema vita 100% hvað maður er að gera, hefur rétta aðstöðu og rétt tæki og varahluti.
Það er ekki eins og maður sé að skipta um hosuklemmu á garðslöngu að opereta á svona viðkvæmum búnaði

Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 13:07
af playman
CendenZ skrifaði:playman skrifaði:það er frekar erfitt að bjarga gögnum út af disk ef maður veit ekki hvað er að honum.
En það er rétt að gagnabjörgun getur hlaupið á tugum þúsunda, og oftast fer það eftir gagnamagni.
t.d. ef að diskurinn kveikir ekki á sér, þá er nánast víst að stýrispjaldið sé farið, lítið mál getur verið að skipta um það, og ekki svo kostnaðarsamt.
Þá er oftast bara nóg að skipta um það og hann er þá nothæfur aftur.
En ef að hann kveikir á sér og er að surga eða hakkhljóð heyrist í honum, þá þarf að opna hann og það getur verið mjög kostanaðar samt.
En í Þessum málum er ekki hægt að alhæfa neitt, og þetta eru bara hugmyndir hjá mér.
Maður opnar ekki harðan disk nema vita 100% hvað maður er að gera, hefur rétta aðstöðu og rétt tæki og varahluti.
Það er ekki eins og maður sé að skipta um hosuklemmu á garðslöngu að opereta á svona viðkvæmum búnaði

Það er alveg hárrétt, ég hefði kanski átt að taka það fram, en fanst það ekki þurfa þar sem ég var meyra að tala um verkstæðiskostnað,
en ekki ef að maður myndi gera þetta heima fyrir.
Það þarf ekki nema eitt rykkorn inní harðadiskinn til þess að skemma diskana inní harðadiskinum.
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 14:38
af dori
Þó svo að það geti kannski kostað mikið að endurheimta gögn af hörðum disk þá kostar ekkert rosalega mikið að finna út hversu mikið það kostar að endurheimta gögnin af disknum.
Það er ekkert einfalt sem þú getur gert sem endurheimtir allt sem er mögulegt að endurheimta (eitthvað einfalt forrit eða slíkt). Ég myndi segja að það marg borgi sig að fara á tölvuverkstæði með diskinn og láta líta á hann þar. Það kostar kannski 2-5 þúsund að finna útúr því hvort þeir geti bjargað gögnunum og það gjald er jafnvel fellt niður ef þú ákveður að láta verkstæðið bjarga gögnunum.
En þetta er auðvitað eitthvað sem þarf að skoða gagnrýnt því að það er yfirleitt ekki hægt að ná miklu ef diskurinn er virkilega ónýtur og alltaf spurning hversu verðmætt innihaldið er.
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 15:16
af zedro
Mættu bara með hann í Dalinn (eða þína uppáhalds tölvuverslun).
Stundum þarf ekki meira en að stinga disknum í samband til að
sjá hvort honum sé viðbjargandi eður ey!
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 17:02
af methylman
Ég er nú bara vanur að taka fast verð fyrir þetta uppá 8.400 með VSK þar af er skoðunargjald 1.900
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 17:30
af braudrist
Er einhver með aðstöðu á Íslandi sem opnar harða diska? Þarf þetta ekki að vera eitthvað spes herbergi, lofttæmt eða eitthvað.
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 17:50
af Hargo
braudrist skrifaði:Er einhver með aðstöðu á Íslandi sem opnar harða diska? Þarf þetta ekki að vera eitthvað spes herbergi, lofttæmt eða eitthvað.
http://datarecovery.is/
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 18:03
af methylman
Ég hef ekki heyrt af því að það sé einhver með rykfrítt umhverfi, hér á landi til þess að gera þetta held hreinlega að markaðurinn sé of lítill til þess að það borgaði sig að setja þetta hér upp. Fyrir utan það að vera með varahluti í allar gerðir diska PÚFF
En sumir keppast við að telja fólki trú um það að þetta sé afar flókið mál og dýrt, sem það er ekki nema að skifta þurfi um t.d. BIOS kubb á stýriborði disksins. En það eru nokkrar gildrur sem þarf að varast þegar gögn glatast að öllu eða einhverju leiti. Það algengasta er að notandinn nær í gagnabjörgunarforrit á netinu
hleður því niður á tölvuna setur upp og keyrir allt þetta verður til þess að gögn glatast.
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 22:50
af Katrin
Heyrðu, svörinn hafa hjálpað mér (:
Er fyrir norðan svo ég hef bara tvo staði að velja úr og alltaf löng bið og líka dýr.
Held allavega að ég fari með hann og láti kíkja á hann og meira kemur í ljós seinna.
Takk fyrir (:
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 22:57
af rapport
spinrite...
Re: Vill endurheimta gögn af ónýtum harðadisk
Sent: Fim 06. Sep 2012 23:12
af methylman
Katrin skrifaði:Heyrðu, svörinn hafa hjálpað mér (:
Er fyrir norðan svo ég hef bara tvo staði að velja úr og alltaf löng bið og líka dýr.
Held allavega að ég fari með hann og láti kíkja á hann og meira kemur í ljós seinna.
Takk fyrir (:
Flott til þess er vaktin.is