Síða 1 af 1
Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Þri 28. Ágú 2012 13:06
af Talmir
Blessaðir spjallarar.
Ég er að setja saman innkaupalista fyrir litla server vél sem á að serva gögnum milli tveggja tölva heima ásamt því að keyra eina eða tvær virtual vélar. Hún á að vera nógu öflug til að höndla þetta ásamt því að vera sett saman úr vélbúnað sem hægt er að uppfæra eftir því sem á líður. Sú sem ég hef sett saman lista fyrir er svipuð og þessi hjá computer.is nema með 2TB disk og 0.2ghz minni vinnsluhraða per core og kostar 49.780 krónur
http://www.computer.is/vorur/2527/Getið þið gert þetta ódýrara? Money is an issue.
(Er ekki á tölvuni með listann minn, set hann inn seinna í dag)
Edit : Búinn að uppfæra speccið í að nota tvo 2gb kubba samkvæmt suggestions hér að neðan

Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Þri 28. Ágú 2012 18:12
af Talmir
Og hér er tölvan so far:
Örgjörvi
AMD - FM1 - AMD A4-3300 Llano Dual-Core 2.5GHz Retail
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... MD_A4-33007860 kr.
Móðurborð
ASROCK A55M-HVS SOCKET FM1/ AMD A55 FCH/ DDR3/ A&GBE/ MATX
http://buy.is/product.php?id_product=920875210990 kr.
Vinnsluminni
2 x Silicon Power 2GB DDR3 1333MHz (1x2GB) vinnsluminni CL9 (4 gig total)
http://tolvutek.is/vara/silicon-power-2 ... uminni-cl92 x 1490 kr. = 2980kr
Harður diskur
S-ATA3 - Seagate Barracuda 7200RPM 2,0TB 64MB
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... Seagate2TB19460
Tölvukassi
Inter-Tech Starter 6 ATX turnkassi með 500W aflgjafa, svartur
http://tolvutek.is/vara/inter-tech-star ... fa-svartur9990
Total verð er víst þá : 49790 kr. edit ( núverandi total : 51280kr ) Hugsa að ég muni mögulega skella öðrum 2gb vinnsluminniskubb í svona uppá þægindin.
Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Þri 28. Ágú 2012 18:23
af Baldurmar
HVað eru þessar virtual vélar að fara keyra ?
2GB vinnsluminni er frekar lítið fyrir tölvu með stýrikerfi + 2 önnur stýrikerfi
Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Þri 28. Ágú 2012 18:32
af Talmir
Pælingin er að þetta verður aðallega bara fileserver fyrir mig og frúnna keyrandi á debian kerfi ásamt því að hýsa code-revision server (Perforce). Svona aukadraumur er að ég hafi forritunarumhverfið mitt sett upp sem virtual vél á þessu (Mögulega debian einnig eða þá Arch (með xfce keyrandi, reyna að hafa þetta lightweight)).
Ég er annars að hallast að því að hafa 4 gig í þessu þar sem 2 gig kubbur kostar ekki nema fimmtánhundruð kall

Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Þri 28. Ágú 2012 21:29
af ponzer
Þessi vél sem þú póstaðir númer 2 er ágæt en ég sjálfur myndi fara í aðeins dýrara móðurborð til að hafa option á 4x minnisraufum.
Ef þú ætlar í einhverjar virtual æfingar þá þarftu slatta af minni - 8gb+ segi ég til að vera save.
Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Mið 29. Ágú 2012 12:56
af Talmir
Góður punktur, ég settist yfir tölvuverslanasíðurnar og skoðaði hvað var til.
Ódýrasta sem ég sá í fljótu bragði er:
http://www.computer.is/vorur/7692/ á 15.900kr en þá bætist við kostnaður á tölvuna sem er ill-viðráðanlegur

(Fátækt, yay) Þetta móðurborð hefur 2 slot sem þó ert hægt að uppfæra þá bara með stærru kubbum (þá allt að 2x8gb) þegar fram líða stundir hugsa ég

Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Mið 29. Ágú 2012 12:59
af Daz
Kaupa notað?
Alltaf einhverjir að selja LGA775 eða AM2/3 setup með quad core örgjörvum.
Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Mið 29. Ágú 2012 13:08
af AntiTrust
Myndi frekar hreinlega eltast við e-ð notað QC setup, hægt að fá það á ágætis prís í dag án GPU. QC+8GB(eða meira) RAM = flott í VM's.
2GB er samt alveg óraunhæft fyrir host vél+2VM's.
Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Mið 29. Ágú 2012 13:14
af Daz
AntiTrust skrifaði:Myndi frekar hreinlega eltast við e-ð notað QC setup, hægt að fá það á ágætis prís í dag án GPU. QC+8GB(eða meira) RAM = flott í VM's.
2GB er samt alveg óraunhæft fyrir host vél+2VM's.
Ég er að fikta í svona virtual setupi og maður er ótrúlega fljótur að klára minni. Einmitt í svona heimasettupi er örugglega oftast nóg af CPU, en idle minnisnotkun getur verið fjári há.
Athuga samt varðandi Intel QC vélar hvort þær styðji meira en 8 gb. Ekki nauðsynlegt, en það getur verið gott að hafa möguleikann. Held að AM2/3 borð séu duglegri að styðja við 16 gb og/eða DDR3.
Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Mið 29. Ágú 2012 13:16
af Talmir
Ef ég hef vélarnar mjög lightweight þá hefur mér tekist að keyra tvær virtual vélar áður á vél með 2 gig af vinnsluminni. (Ég er ekki að tala um að keyra ubuntu með öllum fítusum), en ég er búinn að uppfæra upprunalega póstinn og listann með 2 x 2gig kubbum. 4 total ætti að vera fínt fyrir mig til að byrja með.
edit : En jámm.. Allavega, ég mun nota hana eins og hún ræður við

Ég er að reyna að ná mér í ódýrann byrjunar server turn svo ég geti byrjað að nota hann sem basic file server til að byrja með. Ég mun snýða notkun mína að vélbúnaðinum í staðin fyrir í hina áttina

Það er alltaf hægt að upgrade eftir því sem peningurinn flæðir inn. Svo er svakalega erfitt að dependa á að fá notað fyrir slikk akkúrat þegar ég þarf á þessu að halda, þess vegna hef ég miðað við að versla í búðunum bara. Hef annars nótað hjá mér að uppfæra RAMið sem fyrst.
Ég met vel allar skoðanir

Keep them coming.
Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Mið 29. Ágú 2012 13:33
af AntiTrust
Hvaða hypervisor ætlaru að keyra?
Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Mið 29. Ágú 2012 13:38
af Talmir
ég er að áætla virtualbox
Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Mið 29. Ágú 2012 16:39
af CendenZ
hefuru skoðað Freenas 7 og Nas4free ?
Svo er Freenas 8 alveg þvílíkt frábrugðið Freenas 7.
Reyndar er hardware compatabiletetið ekki eins gott og í
ubuntu og Freenas 7 og Nas4free er frekar mikið böggað, en ótrúlega stabílt.
Ég er með nas4free NAS sem appletvið tengist inná, ipadinn, backuppar lappann minn og konunnar (barnamyndir) ásamt að vera torrent miðstöðin og er að reyna finna sæmilegt web portal fyrir myndirnar af stráknum svo fjöldskyldan geti bara farið á
www.mínslóð.is/le-kid og séð slideshow.
en algjörlega frábært out of the box heimavél
Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Mið 29. Ágú 2012 16:54
af AntiTrust
FreeNAS er flott en gagnast lítið sem VM host

Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Mið 29. Ágú 2012 17:09
af fannar82
1 stutt spurning,
Minns, er að pæla í að fara að prufa aðeins að fikta með Virtualvélar,
Hvernig myndu þið mæla með að keyra þær
á windows7 server (fæ frítt student leyfi)
eða ubuntu?
eða bara á windows7
Re: Ódýr heimaserver (Vantar ráðleggingar)
Sent: Fim 30. Ágú 2012 22:51
af Daz
Fyrir op:
quad core örri og móðurborð, ddr3, max 16 gb af minni. Góð byrjun á heima server, segi ég svona persónulega sem hef voða lítið vit á optimal heimaserverum.
fannar82 skrifaði:1 stutt spurning,
Minns, er að pæla í að fara að prufa aðeins að fikta með Virtualvélar,
Hvernig myndu þið mæla með að keyra þær
á windows7 server (fæ frítt student leyfi)
eða ubuntu?
eða bara á windows7
Ef þú ert með tómt box (server) sem þú ætlar að setja upp virtual á, þá bara setja upp virtual grunn kerfið, vmware ESXI, virtualbox eða eitthvað annað (ég er að fikta með ESXI, var frekar idiot proof að setja upp).
AntiTrust skrifaði:FreeNAS er flott en gagnast lítið sem VM host

En það er hægt að keyra það sem guest. Ég var reyndar að googla FreeNAS eitthvað og rakst á að 4-6gb væri svona lágmarks minniskröfur. kafaði ekki mjög djúpt, en fannst það ansi mikið.