Síða 1 af 1
GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fim 16. Ágú 2012 22:22
af Hnykill
http://www.guru3d.com/article/gigabyte- ... oc-review/Þetta er Gigabyte útgáfan, en fremst á Guru3d.com eru fleiri framleiðendur.
Góð afköst í þessu.
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fim 16. Ágú 2012 22:29
af CurlyWurly
Snilld, þá ættu einhverjir að fara að losa sig við 560 kortin sín

Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fim 16. Ágú 2012 22:56
af Svansson
Veit einhver þau koma til landsins?
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fim 16. Ágú 2012 22:58
af mercury
djöfull er það að koma vel út.
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fim 16. Ágú 2012 23:00
af Svansson
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fim 16. Ágú 2012 23:02
af CurlyWurly
VÁ, mér sýnist í fljótu bragði að þessi kort séu nánast jafn góð eða betri en 560 Ti í SLI... þetta er sjúkt!
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fim 16. Ágú 2012 23:04
af Yawnk
Hvað ætli þau eiga eftir að kosta hér á skerinu?
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fim 16. Ágú 2012 23:07
af CurlyWurly
Yawnk skrifaði:Hvað ætli þau eiga eftir að kosta hér á skerinu?
Og hvað ætli þau eigi eftir að rífa verðið á Radeon 7850 kortunum mikið niður? þau virðast vera að skora talsvert hærra, í raun ekkert mikið lægra en 670 á testum!
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fim 16. Ágú 2012 23:19
af mercury
Ætla að giska í fljótu bragði í kringum 50-60þús...
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fim 16. Ágú 2012 23:21
af Klemmi
mercury skrifaði:Ætla að giska í fljótu bragði í kringum 50-60þús...
Ef við náum að fá einhver eintök hjá PNY fljótlega, þá sýnist mér að þau verði á 56.900kr.-

Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fim 16. Ágú 2012 23:43
af CurlyWurly
Klemmi skrifaði:mercury skrifaði:Ætla að giska í fljótu bragði í kringum 50-60þús...
Ef við náum að fá einhver eintök hjá PNY fljótlega, þá sýnist mér að þau verði á 56.900kr.-

Veistu þá eitthvað um það hvort það verða GTX 650 eða venjuleg (non-Ti) GTX 660 sem að verða í 30-40 þúsund verðflokkinum?
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fim 16. Ágú 2012 23:49
af Klemmi
CurlyWurly skrifaði:Klemmi skrifaði:mercury skrifaði:Ætla að giska í fljótu bragði í kringum 50-60þús...
Ef við náum að fá einhver eintök hjá PNY fljótlega, þá sýnist mér að þau verði á 56.900kr.-

Veistu þá eitthvað um það hvort það verða GTX 650 eða venjuleg (non-Ti) GTX 660 sem að verða í 30-40 þúsund verðflokkinum?
Hef ekki séð neinar staðfestar fregnir um það, en gossipað að þau eigi að koma út um miðjan september.
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fös 17. Ágú 2012 00:13
af Benzmann
EVGA eru komnir út með líka, fékk póst frá þeim í morgun um það

pæling að skella sér á 2stk svona í staðinn fyrir 550 kortin sem ég er með

ef svo þá flyt e´g þau sjálfur inn

Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fös 17. Ágú 2012 01:02
af KristinnK
Þetta kort virðist vera
svipað öflugt og HD 7870:
Tom's Hardware skrifaði:But, I believe the truth is that GeForce GTX 660 Ti performs within 5%, plus or minus, of the Radeon HD 7870.
En HD 7870 er 20$ ódýrara en GTX 660 Ti, og kom út fyrir næstum hálfu ári. Miðað við hvernig AMD svöruðu GTX 670/680 (með verðlækkunum og hærri tíðnum (HD 7970 GHz Ed. og HD 7950B)) þá mun róðurinn örugglega verða þyngri fyrir GTX 660 Ti.
Að auki er GTX 660 Ti aðalega takmarkað af minnisbandvídd, það missti 25% bandvídd miðað við GTX 670, sem var ekki kort með mikla bandvídd til að byrja með. Og leikir morgundagsins munu hafa textures með hærri upplausn, sem þýðir meira minnisflæði, og mig grunar að það mun performa hlutfallslega verr miðað við HD 7870 í nýjum leikjum, miðað við þá eldri.
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fös 17. Ágú 2012 05:47
af Danni V8
Spurning að fara að uppfæra úr 560 Ti SLI í 660 Ti SLI.....
Þarf ég að vera með 3rd generation Intel móðurborð (með PCI Express Gen 3.0 stuðningi) til að nýta svona kort til fulls? Með öðrum orðum, er ég að fara að sjá einhvern stórkostlegan mun ef ég myndi setja svona kort í tölvuna mína, sem er með Sandy Bridge? Veeeiiit ekki alveg hvort ég tími að fara í full-on uppfærslu alveg strax, i5 2500K er alveg að duga vel ennþá.
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fös 17. Ágú 2012 10:22
af Klemmi
KristinnK skrifaði:Tom's Hardware skrifaði:But, I believe the truth is that GeForce GTX 660 Ti performs within 5%, plus or minus, of the Radeon HD 7870.
En HD 7870 er 20$ ódýrara en GTX 660 Ti, og kom út fyrir næstum hálfu ári. Miðað við hvernig AMD svöruðu GTX 670/680 (með verðlækkunum og hærri tíðnum (HD 7970 GHz Ed. og HD 7950B)) þá mun róðurinn örugglega verða þyngri fyrir GTX 660 Ti.
Ekki það að ég vilji dissa Tom's Hardware, en miðað við flest önnur review, þá er meðalmunurinn milli GTX660Ti og HD7870 nær 10-13% heldur en 5%. Auk þess eru þessi kort á sama verði, ekki 20$ munur, allavega ef litið er á NewEgg verðin.
Óyfirklukkuðu GTX660Ti kortin draga minna rafmagn, mynda minni hita og eru hljóðlátari en HD7870.
Með þetta fyrir sjónum, þá held þurfa AMD að skera verðið hjá sér ágætlega niður (40-50$) til að vera spennandi kostur á móti GTX660Ti, svo ég held að GTX660Ti sé engin spurning, best bang for the buck í dag

Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fös 17. Ágú 2012 10:52
af audiophile
Það liggur við að maður vilji uppfæra úr GTX 570 í þetta.

Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fös 17. Ágú 2012 11:14
af mind
Klemmi skrifaði:Ekki það að ég vilji dissa Tom's Hardware, en miðað við flest önnur review, þá er meðalmunurinn milli GTX660Ti og HD7870 nær 10-13% heldur en 5%. Auk þess eru þessi kort á sama verði, ekki 20$ munur, allavega ef litið er á NewEgg verðin.
Óyfirklukkuðu GTX660Ti kortin draga minna rafmagn, mynda minni hita og eru hljóðlátari en HD7870.
Með þetta fyrir sjónum, þá held þurfa AMD að skera verðið hjá sér ágætlega niður (40-50$) til að vera spennandi kostur á móti GTX660Ti, svo ég held að GTX660Ti sé engin spurning, best bang for the buck í dag

Tom's hardware er ekki óháður aðili, þeir voru það fyrir einhverjum árum þó.
Sé ekki hvernig GTX660Ti er best bang fyrir buck kort frekar en eitthvað annað, það eru kort beint fyrir neðan og ofan sem eru lítið dýrari/ódýrari og skila afköstum í samræmi við það. Þú sérð það kannski ekki strax, en GTX660Ti er ekki til í búðarhillu sem stendur.
Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fös 17. Ágú 2012 12:11
af Klemmi
mind skrifaði:Sé ekki hvernig GTX660Ti er best bang fyrir buck kort frekar en eitthvað annað, það eru kort beint fyrir neðan og ofan sem eru lítið dýrari/ódýrari og skila afköstum í samræmi við það. Þú sérð það kannski ekki strax, en GTX660Ti er ekki til í búðarhillu sem stendur.
Miðað við afköstin þá sýnist mér þú vera að fá mest fyrir peninginn í þessum kortum ef horft er til FPS/$, auk þess sem nýja 6xx línan er skemmtilega efficient, þetta kort er að draga svipað mikið rafmagn og GTX560/GTX560Ti þrátt fyrir að afkasta talsvert betur, hentar því ágætlega í annars ódýr setup.
Annars eru þessi kort komin inn á síðuna hjá bæði okkur og Tölvulistanum, mögulega fleirum, við eigum von á okkar kortum á þriðjudaginn næsta, því leyfi ég mér að kalla það best bang for the buck í dag

Re: GeForce GTX 660 Ti komið út ..
Sent: Fös 17. Ágú 2012 12:21
af vesley
Klemmi skrifaði:mind skrifaði:Sé ekki hvernig GTX660Ti er best bang fyrir buck kort frekar en eitthvað annað, það eru kort beint fyrir neðan og ofan sem eru lítið dýrari/ódýrari og skila afköstum í samræmi við það. Þú sérð það kannski ekki strax, en GTX660Ti er ekki til í búðarhillu sem stendur.
Miðað við afköstin þá sýnist mér þú vera að fá mest fyrir peninginn í þessum kortum ef horft er til FPS/$, auk þess sem nýja 6xx línan er skemmtilega efficient, þetta kort er að draga svipað mikið rafmagn og GTX560/GTX560Ti þrátt fyrir að afkasta talsvert betur, hentar því ágætlega í annars ódýr setup.
Annars eru þessi kort komin inn á síðuna hjá bæði okkur og Tölvulistanum, mögulega fleirum, við eigum von á okkar kortum á þriðjudaginn næsta, því leyfi ég mér að kalla það best bang for the buck í dag

Kæmi mér líka ekki á óvart ef þetta kort mun "performa" gríðarlega vel þegar það er yfirklukkað, hvað þá þegar fólk mun modda Biosinn á kortinu. Þetta kort er merkilega líkt 670 og örugglega ekki langt frá því að performa svipað.
Enda kæmi mér ekki á óvart ef salan á gtx 670 muni minnka á næstu vikum eftir að þetta kort kom út, þannig að það kæmi mér ekki á óvart ef gtx 670 muni lækka örlítið í verði.
