Síða 1 af 1
Hver er munurinn ??
Sent: Þri 14. Ágú 2012 22:30
af kristjanhelgi96
ég er að leita að fartölvu fyrir skóla og pínu tölvuleikjastúss og fann eina hér
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... 4-CM-84506en ég var að pæla munar mikklu að hafa skjákort og örgjörva i sitthvoru lagi er það mikklu betra en að hafa það saman hver er munurinn ??
Re: Hver er munurinn ??
Sent: Þri 14. Ágú 2012 23:11
af J1nX
hvað meinarðu með í sitthvoru lagi?
Re: Hver er munurinn ??
Sent: Þri 14. Ágú 2012 23:21
af Nariur
Innbygðar skjástýringar eru hræðilegar fyrir leiki, þær geta keyrt gamla leiki en ekki mikið meira.
Re: Hver er munurinn ??
Sent: Þri 14. Ágú 2012 23:23
af kristjanhelgi96
það stendur samt skjákjarni ekki skjástýring eða er það kannski það sama ?
Re: Hver er munurinn ??
Sent: Þri 14. Ágú 2012 23:56
af marri87
Þessi örgjörvi hefur varla roð í i3 örgjörva
http://www.notebookcheck.net/AMD-A-Series-A8-4500M-Notebook-Processor.74884.0.html fjórða málsgrein. Einnig er þessi skjákjarni, flott orð yfir skjástýringu, ekki alveg að gera sig, sérstaklega bara með 1333 MHz minni.
http://www.notebookcheck.net/AMD-Radeon ... 836.0.html ofarlega í class 3.
Aftur á móti fyrir tæplega 8000 kr í viðbót færðu Toshiba vél, sem er ekki verra, Ivy Bridge i5 örgjörva, 1600 MHz minni og töluvert öflugra skjákort, AMD 7670 (komið upp í class 2 á notebookcheck) í þessari hérna vél
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... S_L850-14J
Re: Hver er munurinn ??
Sent: Mið 15. Ágú 2012 17:13
af kristjanhelgi96
Takk kærlega fyrir ábendinguna

met það mikið
Re: Hver er munurinn ??
Sent: Mið 15. Ágú 2012 19:15
af AntiTrust
Ef tölvan verður samt fyrst og fremst skólatölva og leikjaspilun aukahlutur þá myndi ég gleyma því að taka tölvu með discrete skjákorti, það kemur yfirleitt svakalega niður á batterýsendingu. Ekki nema þetta sé þá tölva með Optimus lausn sem er þá bæði með ondie og discrete GPU og svissar á milli eftir þörfum.
Re: Hver er munurinn ??
Sent: Mið 15. Ágú 2012 20:12
af paze
Fyndið að engin hérna veit hvað skjákjarni er.
Það er ekki það sama og skjástýring, snillingar.
Re: Hver er munurinn ??
Sent: Mið 15. Ágú 2012 20:17
af AntiTrust
paze skrifaði:Fyndið að engin hérna veit hvað skjákjarni er.
Það er ekki það sama og skjástýring, snillingar.
Það hefði þá kannski verið sniðugt að láta fylgja með þær upplýsingar að skjákarni er þegar skjákort er sambyggt örgjörvanum og skjástýring er skjákort sambyggt við móðurborðið.
Re: Hver er munurinn ??
Sent: Fim 16. Ágú 2012 02:38
af Nariur
paze skrifaði:Fyndið að engin hérna veit hvað skjákjarni er.
Það er ekki það sama og skjástýring, snillingar.
Vissulega er það ekki sami hluturinn, en það er svipað öflugt. Munurinn er lítill.