Tölvustóll


Höfundur
guggi69
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Mið 23. Mar 2011 22:59
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Tölvustóll

Pósturaf guggi69 » Fim 26. Júl 2012 09:46

Er mikið að skoða tölvustóla

þessi er ég mest að spá í

http://www.n1.is/n1/vorur/vorur/?ew_6_c ... 22971182F8

Ef þið vitið um eitthvern ódýrari og betri látið mig vita ;)

:guy




Blackbone
Græningi
Póstar: 38
Skráði sig: Mán 26. Sep 2011 14:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvustóll

Pósturaf Blackbone » Fim 26. Júl 2012 09:58

Er sjálfur með þennann http://www.ikea.is/products/618 og er mjög ánægður með hann, og hann er líka miiiikið ódýrari :-"

En þessi hjá n1 lítur mjög vel út :)




Höfundur
guggi69
Græningi
Póstar: 33
Skráði sig: Mið 23. Mar 2011 22:59
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvustóll

Pósturaf guggi69 » Lau 28. Júl 2012 22:46

Já ég átti svona stóll 2 leiðinlegir hlutir sem koma fyrir hann með tímanum fara boltarnir sem eru á demparanum stingast í gegnum sætið og það er mjög pirrandi og svo brotnaði armurinn sem er nátturlega bara mér að kenna ;)



Skjámynd

Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 10
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvustóll

Pósturaf Yawnk » Lau 28. Júl 2012 23:11

http://www.ikea.is/products/16390

Allaveganna EKKI fá þér þennan, vá.. ég fékk mér þennan fyrir nokkrum mánuðum, fyrsta eintakið gallað í drasl, gormarnir gallaðir þannig að í hvert skipti sem þú hallaðir þér aftur kom mjög mikill hávaði, ég fór með hann í Ikea og þeir létu mig fá nýjan, og alveg nákvæmlega sama vandamálið á honum, ég fór með hann aftur og fékk inneignarnótu, fékk sama stólinn aftur en fór bara með hann næsta dag og fékk endurgreitt, því þeir endurgreiða bara í upprunalegum pakkningum :megasmile
Kannski var þetta one time only, en ég mæli ekki með þessum stól, virðist bara sem ódýru Ikea stólarnir eru ekki að gera sig.




darkppl
Gúrú
Póstar: 543
Skráði sig: Mán 12. Júl 2010 21:40
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Tölvustóll

Pósturaf darkppl » Lau 28. Júl 2012 23:17

er með þennan markus stól úr ikea gg þæginlegur


I7-8700K|Corsair H-150i|Asus Maximus X Hero (Wifi) |32GB G.Skill Tridend Z RGB|GTX 1080ti |
Coolermaster Mastercase 5|

Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Tölvustóll

Pósturaf upg8 » Sun 29. Júl 2012 00:23



Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5496
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: Tölvustóll

Pósturaf appel » Sun 29. Júl 2012 02:55

Ég hef átt svona Mark 30 frá Á. Guðmundsson í um 5 ár og það sér ekki á honum, hann er einsog nýr.

http://ag.nwc.is/is/efni/mark_skrifbor% ... t%C3%B3lar

Kostar doldið mikið en mér finnst mikilvægt að vera með góðan stól, sérstaklega ef hann er mikið notaður.

Þessi Markus lookar ágætlega svosem miðað við verð, en myndi bara prófa stólana áður en þú kaupir. Líklegast er að IKEA stólar séu betri en aðrir í þessum verðflokki þar sem þeir eru pottþétt prófaðir og vottaðir, og lágt verð fyrir ágætis gæði.


*-*

Skjámynd

Baldurmar
FanBoy
Póstar: 784
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Tölvustóll

Pósturaf Baldurmar » Sun 29. Júl 2012 03:08

Athugaðu líka að það marg borgar sig að kaupa góðann stól, ég fjárfesti í mjög góðum stól í IKEA fyrir nokkrum árum og sé alls ekki eftir því. Kærastan mín endaði svo með að kaupa sér sama stól (hún er klæðskeri og situr því mikið). Þessi stóll er því miður ekki lengur til í IKEA virðist vera.

Fyrir manneskju sem eyðir nokkrum klukkustundum á dag í tölvustól er það bara ávísun á vöðvabólgu og þreytu/álag á fætur að vera í stól sem að þú getur ekki haft nákvæmlega eins og þér finnst þægilegt.

Það þarf að vera hægt að hækka og lækka bakið, hækka og lækka stólinn sjálfann (athugaðu líka hvort að hann fari nógu hátt miðað við borðið), stilla hallan á stólnum, stilla hallann á sessunni. Mér finnst reyndar vanta á minn stól að geta fært sessuna fram og aftur.

Athugaðu líka að leður andar ekki eins vel og tau-áklæði og því ávísun á svita, leður er hinns vegar oft stamara og því er auðveldara að "festa" sig í þá stöðu sem að maður vill vera í. Í ódýrari stólum er oft ódýrari pumpa sem slaknar með tímanum og getur valdið því að hann lekur hægt niður (nokkra cm á viku jafnvel) það getur verið óþægilegt.

Ekki gleyma að þetta er framtíðareign, t.d verður svamp sessa sem er þunn mjög óþægileg eftir 1-2 ár (fer auðvitað eftir notkun).

-edit- Kanski að bæta því við að ég er með Mark 30 plus stólinn frá Á. Guðmundsson í vinnunni, hann er mjög fínn.


Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - GTX 1070 8gb


zcar
Nýliði
Póstar: 11
Skráði sig: Fös 14. Okt 2005 10:17
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvustóll

Pósturaf zcar » Sun 29. Júl 2012 18:41



to the window.. to the wall.


aaxxxkk
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Sun 26. Feb 2012 13:46
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvustóll

Pósturaf aaxxxkk » Sun 29. Júl 2012 22:09




Skjámynd

HR
Ofur-Nörd
Póstar: 247
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 23:59
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvustóll

Pósturaf HR » Mán 30. Júl 2012 01:27

Ég get mælt með Markus í Ikea. Búinn að eiga hann í 5 eða 6 ár og mér finnst hann ekkert eldast.


Gigabyte Z68x-UD4 | Intel i7-2600K | 32GB Mushkin Blackline 1333MHz CL8 | Gigabyte GTX660Ti OC 2GB WF2X | 240GB Mushkin Chronos Stripe | Antec P280 | Dell U2410M