Síða 1 af 1

Vinnsluminni - hvað skal velja?

Sent: Mið 28. Júl 2004 15:39
af Nemesis
Nú er ég að fara að uppfæra í ágætis tölvu og valið varðandi vinnsluminni stendur fyrst og fremst á milli þessara þriggja:

    * Corsair ValueSelect pöruð 2 stk. 256MB, DDR400 184pin, PC3200, 400MHz, CL2,5, Lífstíðarábyrgð - att.is - 11.960 kr.
    * PC3200 Mushkin Basic Green 256mb x2 - 9.500 kr.
    * 256MB DDR400 184pin, PC3200, 400mhz x2 - att.is - 7.700
Er einhver rosalegur munur á þessum minnum í frammistöðu, eða er þetta bara merkjavaran sem ég er að kaupa? Ef ég kaupi ódýrasta noname minnið, gæti það orðið flöskuháls í uppfærslunni minni? Ég vil helst ekki taka dýrasta minnið þarna ef t.d. Mushkin eða jafnvel noname minnið skilar næstum jafn góðum árangri. Eru til einhverjar samanburðartöflur? Hvað ætti ég að gera í stöðunni? :l

Sent: Mið 28. Júl 2004 15:48
af Stutturdreki
Ég er með Mushkin Basic Green (1x512Mb) og það er Default CL 2.5 3-3-8 (ef ég man rétt) í BIOS, en ekki búinn að prófa að breyta timeings (eða hvernig sem það er skrifað) á því.

Þolir FSB upp í 220 (í 225 koma villur í Prime95.. á eftir að prófa þar á milli og hærri volt).

Hef ekki reynslu af hinum tveimur..

Sent: Mið 28. Júl 2004 16:02
af Nemesis
Ef Mushkin minnið er með sömu timings og Corsair minnið, er ég þá að borga 2.500 krónur fyrir lífstíðarábyrgð eða? Þá tek ég frekar Mushkin minnið.

Er annars hægt að lesa sér til um timings einhvers staðar?

Sent: Mið 28. Júl 2004 17:42
af Steini
er samt ekki einhver ábyrgð á mushkin? 2-3 ár

Sent: Mið 28. Júl 2004 20:14
af Nemesis
Júbb. Þess vegna finnst mér kjánalegt að borga 2500 kall fyrir ábyrgð sem kemur líklegast aldrei að notum.

Sent: Mið 28. Júl 2004 22:16
af Steini
Ég efa að þú verðir ekki búinn að uppfæra eftir 3 ár, ef minnið á þá eftir að klikka

Sent: Mið 04. Ágú 2004 13:01
af Icarus
aðalmunurinn á named og noname minnunum er endingartíminn.

Sent: Mið 11. Ágú 2004 00:01
af Gestir
En hvað þá svona .. bestbuy ?

hvað er þá best fyrir peninginn ?