Síða 1 af 1
27" tölvuskjár?
Sent: Fös 29. Jún 2012 16:37
af N7Armor
Sæll hétna ég er að fara kaupa nýjan tölvuskjár á næstu víku, ég þarf ráð hvernig skjár ég á að fá mér helst 27'' og budget i kringum 50 þúsund eða meira

væri geðveikt lika ef það væri led baklýsingu
ég veit ekki með þennan skjár
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=7640 
Re: 27" tölvuskjár?
Sent: Fös 29. Jún 2012 16:47
af agust1337
Veistu, 27" frekar gagnslaust því að allt frá 24-27 er 1920x1080 og verður bara óskýrara, ég myndi frekar taka 24 eða 25". En ef þér langar í 27" fáðu þér þá 27".

Bara tip
Edit: Nema ef þú færð þér 16:10 þá færðu 1920x1200
Re: 27" tölvuskjár?
Sent: Fös 29. Jún 2012 17:03
af dori
agust1337 skrifaði:Veistu, 27" frekar gagnslaust því að allt frá 24-27 er 1920x1080 og verður bara óskýrara, ég myndi frekar taka 24 eða 25". En ef þér langar í 27" fáðu þér þá 27".

Bara tip
Edit: Nema ef þú færð þér 16:10 þá færðu 1920x1200
Í kringum 50 þúsund kallinn já. En það eru alveg til 27" skjáir sem eru með 2560x1440 upplausn.
Annars er 1900x1080 alveg í lagi á 27" skjá. Bara ef þú situr ekki inní honum.
Re: 27" tölvuskjár?
Sent: Fös 29. Jún 2012 17:07
af agust1337
Þessi skjár er 1920x1080 sem hann er að hugsa um
Re: 27" tölvuskjár?
Sent: Fös 29. Jún 2012 17:16
af upg8
1920x1080 er allt í lagi fyrir marga, hentugt að geta líka tengt PS3 eða 360 við svona stóra skjái.
Skjávarpar eru rosalega gagnslausir... 50" sjónvörp eru rosalega gagnslaus...
Það fer allt eftir því hversu nálægt skjánum þú ert og það eru ekki allir að vinna með grafík.
Re: 27" tölvuskjár?
Sent: Fös 29. Jún 2012 20:56
af Viktor
agust1337 skrifaði:Veistu, 27" frekar gagnslaust því að allt frá 24-27 er 1920x1080 og verður bara óskýrara, ég myndi frekar taka 24 eða 25". En ef þér langar í 27" fáðu þér þá 27".

Bara tip
Edit: Nema ef þú færð þér 16:10 þá færðu 1920x1200
Gagnlaust í myndvinnslu kannski, en vissulega betri upplifun fyrir flesta að t.d. spila tölvuleiki. Finnst t.d. skemmtilegra að spila FIFA á 42" flatskjá heldur en 22" Full HD skjá, þó þeir séu báðir 1080.
Re: 27" tölvuskjár?
Sent: Lau 30. Jún 2012 16:03
af N7Armor
Re: 27" tölvuskjár?
Sent: Lau 30. Jún 2012 16:08
af upg8
sáttur?
Re: 27" tölvuskjár?
Sent: Lau 30. Jún 2012 18:48
af N7Armor
já já mjög sáttur

nema það er dautt pixel alveg lengst til hægri á skjánum ætlar skipta skjáin á mánudaginn út af þessu

vona það sé hægt að fá nýjan skjá út af þessu.....
Re: 27" tölvuskjár?
Sent: Lau 30. Jún 2012 18:57
af upg8
100% Pixla ábyrgð í Tölvutek
Re: 27" tölvuskjár?
Sent: Lau 30. Jún 2012 19:07
af N7Armor
ja

heldurru að það sé allt í lagi að skila allt ef pokan og plastið innihalda ekki, ég var eiginlega buinn að henda þessu allt
Re: 27" tölvuskjár?
Sent: Þri 17. Júl 2012 00:44
af arnaru
upg8 skrifaði:100% Pixla ábyrgð í Tölvutek
Myndi drífa mig með hann þar sem 100% pixlaábyrgð er bara í 14 daga frá kaupum á vörunni.
Kv. Arnar