Síða 1 af 1

Vantar álit á tölvu

Sent: Mið 21. Júl 2004 01:06
af Takai
Loksins er ég nokkurnsveginn búinn að komast að niðurstöðu með hvað ég ætla að fá mér í nýja tölvu ... eftir að vera búinn að spurja um mikið á "Erm hjálp ... við uppfærslu" og skoða mikið og núna vantar mér bara álit.

Asus K8N-E Deluxe
http://www.asus.com/products/mb/socket754/k8n-e_d/overview.htm

Amd Athlon 64 3000+
http://www.amd.com/us-en/Processors/ProductInformation/0,,30_118_9485,00.html
(fann ekkert nákvæmara)

Mushkin Blue PC3200 512mb - er ekki viss með cl þar sem að ég á eftir að sjá hvað ég finn í búð (kaupi líklega alla parta í Danmörku)
http://www.mushkin.com/epages/Mushkin.storefront/40fdad7c0281d11a2740c0a80102067b/Product/View/990992
eða þá að ég kaupi þetta ef að ég finn þetta ekki úti

Powercolor x800 pro 256mb
http://www.tul.com.tw/global/productlist.aspx?folderid=1&cat1=12&cat2=101&cat3=263

Núna vantar mér bara álit.

Sent: Mið 21. Júl 2004 07:37
af Mysingur
flott

Sent: Mið 21. Júl 2004 12:29
af Icarus
hver er eiginlega verðmunurinn á 3000 og 3200 ?

Sent: Mið 21. Júl 2004 12:39
af Mysingur
Icarus skrifaði:hver er eiginlega verðmunurinn á 3000 og 3200 ?

það eru heil 6k

Sent: Mið 21. Júl 2004 18:06
af Icarus
þá myndi ég taka 3200 :)

Sent: Fim 22. Júl 2004 08:36
af gnarr
ertu að segja mér að þér finnist þessi 3-5% hraðamunur verða 6.000kr virði?

Sent: Fim 22. Júl 2004 12:02
af Icarus
gnarr skrifaði:ertu að segja mér að þér finnist þessi 3-5% hraðamunur verða 6.000kr virði?


er hann bara 3-5% ?

er ekki mikið inní 64bit málunum en ég hélt að það væri aðeins meiri munur á milli 3000 og 3200.

Sent: Fim 22. Júl 2004 12:11
af Drulli
Örgjörvarnir eru báðir 2GHz, 3200+ er með 1024kb en 3000+ 512kb í L2 Cache.

Sent: Fim 22. Júl 2004 18:56
af Icarus
Drulli skrifaði:Örgjörvarnir eru báðir 2GHz, 3200+ er með 1024kb en 3000+ 512kb í L2 Cache.


ætti þá ekki að muna aðeins meira en 3-5% í afköstum ef það munar svona miklu á cache ?

Sent: Fim 22. Júl 2004 19:46
af wICE_man
Nei, þeir græða ekki jafn mikið á stærra skyndiminni (eða tapa öllu heldur ekki jafn miklu á litlu skyndiminni) og P4 eða XP út af innbyggðu minnisstýringunni sem lækkar biðtíma fyrir vinnsluminnið.

Sent: Sun 25. Júl 2004 13:06
af Hlynzi
Mushkin vinnsluminnið er náttla algjör merkjavara. Ég hef reyndar meiri trú á Corsair.

Einhversstaðar las ég að það væru eingöngu 3 framleiðendur fyrir vinnsluminnis kubbana sjálfa.

Sent: Sun 25. Júl 2004 15:32
af Daz
áhugaverð grein um "name" minni og "noname". Munar 30-40% í verði en bara 2% í performance.

Sent: Sun 25. Júl 2004 18:25
af MezzUp
Daz skrifaði:áhugaverð grein um "name" minni og "noname". Munar 30-40% í verði en bara 2% í performance.

ætli menn líti ekki kannski líka á líftíma og ábyrgð?

Sent: Mán 26. Júl 2004 00:43
af Takai
Hlynzi skrifaði:Mushkin vinnsluminnið er náttla algjör merkjavara. Ég hef reyndar meiri trú á Corsair.

Einhversstaðar las ég að það væru eingöngu 3 framleiðendur fyrir vinnsluminnis kubbana sjálfa.


Ertu þá að meina að Mushkin sé ekkert það gott eða? ... því að eins og mér hefur sýnst þá er corsair (allavega sem að ég hef séð á verði hérna heima) aðeins dýrari ... þannig að mér sýnist þá corsair vera meira "merki".

En með cacheið á örrunum ... stór munur í tölum en er þetta virkilega svona lítill munur á öllum sviðum (3-5%) ??

Sent: Mán 26. Júl 2004 12:18
af Takai
Já þetta corsair verð ... var að skoða dagskrá vikunnar og komst að því að 512mb pc3200 cl 2.5 er á sama verði og mushkin blue sem að ég var að skoða

Sent: Mán 26. Júl 2004 12:21
af axyne
Hlynzi skrifaði:Einhversstaðar las ég að það væru eingöngu 3 framleiðendur fyrir vinnsluminnis kubbana sjálfa.


held ég hafi séð það einhvernstaðar líka.

síðan eru bara einhverjir gaurar sem setja á þetta nýja límmiða og segjast vera að selja Bestu vöruna.

Sent: Mán 26. Júl 2004 19:07
af MezzUp
axyne skrifaði:
Hlynzi skrifaði:Einhversstaðar las ég að það væru eingöngu 3 framleiðendur fyrir vinnsluminnis kubbana sjálfa.


held ég hafi séð það einhvernstaðar líka.

síðan eru bara einhverjir gaurar sem setja á þetta nýja límmiða og segjast vera að selja Bestu vöruna.

hmm, var Hlynzi ekki að tala um að það væri 3 framleiðendur á svörtu kísil(?)kubbana, hinsvegar eru margir sem gera PCB plöturnar og festa saman??