Síða 1 af 1

AMD Athlon 64, Abit KV8 Pro og BIOS

Sent: Þri 20. Júl 2004 22:31
af Drulli
Hefur einhver hérna reynslu af þessu borði ?

Ég keypti mér semsagt tölvu um daginn:
AMD Athlon 64 3000+ CG (stendur ClawHammer í CPUZ en ég hélt að AX væri Newcastle CG),
Abit KV8 Pro (rev. 1.0),
Corsair 512mb XMS Pro DDR500
og fleira í vélina.

Þannig er mál með vexti að ég uppfærði BIOSinn strax í 1.5, sem er nýjasti BIOSinn) og þá fann ég hvergi AGP/PCI Lock'inn. Eftir smá googling og browse komst ég að því að einn af aðal plúsunum við Pro kubbasettið hefði verið tekinn úr nýjustu BIOS uppfærslunni, semsagt AGP/PCI Lock.

Ég skellti mér þá á þessa "hröðu" síðu Abit manna og náði í BIOS v.1.4. Í BIOS var þá AGP/PCI Lock'inn mættur og stillti ég hann á "Fixed" og prufaði að setja FSB'inn í 210. Save'aði og bootaði upp í WinXP. Fyrst fór ég í OC Guru og þar stóð Multiplier 9, FSB 210, CPU Freq. 1890 Mhz, AGP Freq. 200mhz og PCI Freq. 100mhz. Ég prófaði einnig að fara í CPU-Z og gá þar og þar var multiplier'inn einnig í 9. Í BIOS stóð að multiplier'inn væri 10.

Þar sem multiplier'inn á klárlega ekki að vera í 9 og ég get ekki breytt því í BIOS, þar sem aðeins rev. 1.1 borð geta það þá skil ég ekki upp né niður í þessu. Einhver hérna sem gæti komið með gáfulega skýringu á þessu vandamáli mínu ?

Má kannski bæta við að DIMM1 hjá mér stiður ekki 512mb minni. Allavega held ég það. Þegar ég var að setja tölvuna upp fyrst setti ég 512mb Corsair kubbinn í DIMM1 og hún bootaði sér aldrei upp, fékk 04 eða blank out screen error message.
Ég prufaði þá eitthvað noname 256mb ddr266 minni í D1 og hún bootaði sér. Þar næst setti ég noname 512mb ddr333 minni í D1 og ekki bootaði hún þá. Þannig ég prufaði að setja Corsair minnið í D2 og þá bootaði hún sér.
Svo prufaði ég bæta við noname 512mb minninu í D1 með Corsair í D2 og þá gat ég bootað henni en bios sýndi bara Corsair minnið.

Þar sem ég bý á Akureyri þá buðu Tölvuvirkni-menn/konur að hafa þetta móðurborð þangað til ég kæmi næst til Rvk og þá myndu þeir bara skoða það og láta mig fá nýtt ef þetta reyndist gallað.
Ég er þessvegna að vonast eftir því að þeir verði búnir að fá rev. 1.1 af þessu borði þá.

Mér finnst þetta setup ekki vera að skila sínu, fæ einungis 2350 stigí 3DMark03.

Sent: Mið 21. Júl 2004 13:30
af Drulli
Þar sem enginn er búinn að svara mér hérna ákvað að reyna finna meira um þetta annarstaðar.

Það er víst þannig að maður á að RMA'a borðunum til Abit ef maður missir AGP/PCI Lock'inn í BIOS v1.5. Hvernig er það, þarf ég að senda þetta út eða er einhver umboðsaðili hérna á Íslandi sem sér um svona ?

Einnig hefur fólk verið að segja að borðið bogni mikið, miðað við önnur borð, og DIMM1 virki ekki alltaf útaf því. Þeir hafa þá leyst það þannig að hafa móðurborðið ekki í kassanum og taka HSF af til að segja minnið í. Setja svo HSF á og því næst í kassann. Kannski maður prufi þetta við tækifæri.

Sent: Mið 21. Júl 2004 18:54
af OverClocker
Skilaðu bara borðinu þangað sem þú keyptir það, þeir hljóta að geta skilað því áfram.

Re: AMD Athlon 64, Abit KV8 Pro og BIOS

Sent: Fim 22. Júl 2004 08:33
af gnarr
Drulli skrifaði:Mér finnst þetta setup ekki vera að skila sínu, fæ einungis 2350 stigí 3DMark03.


Skjákortið skiptir næstum 100% máli í 3DMark03, svo að ef þú ert með þessa tölvu og GeForce4MX, þá er þetta mjög eðlilegt skor.

Sent: Fim 22. Júl 2004 10:45
af Drulli
Já, bara svo leiðinlegt að skila þessu og þurfa að bíða aftur eftir nýju drasli :/ erfitt að búa á Akureyri :)

Ég keypti mér R98SE kort þangað til fleiri útgáfur af nýju línunum koma til landsins. Ég var bara með GF2MX og nennti ekki að keyra 3000+ AMD64 með GF2 :)

Ég gerði fleiri test og núna virkaði ekkert minni í Dimm1 og aðeins 256mb og 512mb noname minnin virkuðu eftir CMOS restart í D2. Ef ég setti Corsair minnið strax í D2 eftir CMOS restart þá gat ég ekki bootað. Þannig ég setti 512mb noname í og svo Corsair og þá virkaði Corsair minnið.

Ég prufaði svo Corsair minnið í gömlu tölvunni minni sem er:
AMD Athlon XP 1700+,
Soltek SL-75DRV4
og GF2MX.
Minnið virkaði í þessari tölvu svo ég er farinn að halda að móðurborðið mitt sé stór gallað :/

Sent: Fim 22. Júl 2004 10:50
af gnarr
prófaðu að íta soldið vel fast á miðjuna á minninu þegar þú ert að setja það í. það er þekkt vandamál á sumum abit móðurborðum að sumar minnistegundir smella ekki nógu vel í nema maður íti veeel fast. ég lenti í þessu, og þurfti að íta svo fast að það var farið að braka í minninu og móðurborðinu. svo kom svona hár smellur og þá virkaði allt ;)

Sent: Fim 22. Júl 2004 10:54
af Drulli
Ok, ég prufaði samt að setja minnið í án þess að hafa HSF á í gær. Held ég hafi samt bara prufað Dimm1 og svo nennti ég ekki að taka HSF af aftur :) Ég prufa þetta þegar ég er búinn í vinnunni.

Sent: Fim 22. Júl 2004 11:01
af Drulli
Svo er það reyndar fleira. Ég keypti mér Seagate 200GB UltraATA en ég sé hann bara sem ATA100 í boot'inu.

Svo líka þegar ég fer inn í Abit EQ? (minnir að það heiti það, forritið sem sýnir hitann) þá laggar tölvan mín gríðarlega. Er ekki búinn að setja nein þung forrit í tölvuna nema 3DMark og það er allt í lagi nema ég keyrði 3DMark03 áður en ég fór í vinnuna og þá stoppaði "leikurinn" í 1 sec á svona 3-5 sec fresti. Eins og tölvan væri að frjósa og missti frame'a. Þannig ég hoppaði yfir nokkra frame'a á svona 3-5 sec fresti.

Bætt við: Þá var ég reyndar með noname 512mb kubbinn í. Gæti það verið það ? Í hin skiptin sem ég prufaði 3DMark03 var ég með Corsair en Abit EQ fór samt alltaf "laggandi" í gang.

Sent: Fim 22. Júl 2004 13:39
af goldfinger
afþví að þú hefur kannski keypt

Seagate Barracuda 200GB ATA100 8MB buffer

en ekki:

Seagate Barracuda SATA 200GB 7200RPM 8mb Buffer

Það eru til 2 gerðir af Seagate diskum... IDE og SATA :wink:

Þú hefur einfaldlega keypt þér IDE disk

Sent: Fim 22. Júl 2004 13:46
af Drulli
Ég veit að það eru til 2 gerðir, hélt að allir IDE diskar væru ATA133 í dag.

Sent: Fim 22. Júl 2004 15:36
af MezzUp
Drulli skrifaði:Ég veit að það eru til 2 gerðir, hélt að allir IDE diskar væru ATA133 í dag.

nei allsekki, margir ATA100 diskar framleiddir í dag (held ég), enda finnurru engann performance mun á ATA100 eða ATA133

Sent: Fim 22. Júl 2004 15:53
af axyne
t.d eru allir PATA diskar frá western digital eingöngu ATA100

Sent: Sun 25. Júl 2004 12:46
af Hlynzi
Láttu kíkja á þetta, svo getur verið líka lausn að hækka voltin á vinnsluminninu (DIMM 1 og 2) um 0.1 volt eða svo. Það virkar á sum móðurborð.

En annars ef ekki, þá held ég að þetta sé klárt ábyrgðarmál, tjekkaðu líka í manualnum, hvaða minni þetta á að supporta.