Síða 1 af 1
Gott budget móðurborð?
Sent: Fim 14. Jún 2012 02:12
af CurlyWurly
Er að fara að setja saman turn og ætla að hafa i5 2500K örgjörva í honum. Veit ekkert hvaða móðurborð ég á að fá mér en vil helst halda mér undir 24000 kr. Þetta er hugsað í leikjaturn.
Flest virðist benda á að Z77 boðin henti best en þó væri ég alveg sáttur við Z68 borð ef það breytir ekki miklu. Hef verið að skoða
þetta og
þettaEinnig væri fínt að vita hvort það sé hægt að gera eitthvað ágætis OC þar sem ég hef hugsað mér að gera það seinna meir þegar þess er þörf, t.d. til að ráða við leiki. Einnig er áætlunin að byrja í 6850 korti og bæta svo við öðru þegar þess þarf.
Allar ábendingar vel þegnar.
Re: Gott budget móðurborð?
Sent: Fim 14. Jún 2012 02:20
af AciD_RaiN
Var að setja saman turn í dag með ASUS borðinu sem þú linkaðir á og það er að koma mjög vel út fyrir þennan pening

Re: Gott budget móðurborð?
Sent: Fim 14. Jún 2012 02:21
af CurlyWurly
Er 16x + 4x ekkert vesen ef ég ætla í crossfireX, þeas í stað 16x + 8x?
Re: Gott budget móðurborð?
Sent: Fim 14. Jún 2012 02:55
af AciD_RaiN
CurlyWurly skrifaði:Er 16x + 4x ekkert vesen ef ég ætla í crossfireX, þeas í stað 16x + 8x?
Veistu ég var ekki búinn að taka eftir þessu. Þetta borð styður allavegana crossfire veit ég því ég var með það í huga þegar ég keypti þetta borð

Re: Gott budget móðurborð?
Sent: Fim 14. Jún 2012 15:52
af CurlyWurly
Er semsagt bara lítill munur á að vera með aðra raufina að keyra í 4x í staðinn fyrir að báðar keyri í 8x? mér finnst ég búinn að leyta endalaust af svari á netinu en fólk er aldrei sammála.
Re: Gott budget móðurborð?
Sent: Fim 14. Jún 2012 16:17
af gardar
fer eftir því hvort þú ætlir að vera að keyra eitthvað mega skjákort á þessu
Re: Gott budget móðurborð?
Sent: Fim 14. Jún 2012 18:28
af CurlyWurly
6850 er nú ekkert rosalegt, er það nokkuð?
Re: Gott budget móðurborð?
Sent: Fös 15. Jún 2012 00:17
af CurlyWurly
Renndi yfir að því er ég held öll móðurborð á öllum netsíðum hjá tölvufyrirtækjum og fann eiginlega ekkert annað á þessu verði en tók eftir
Gigabyte S1155 Z77-D3H og
Gigabyte S1155 Z68XP-UD4 BLACK og fór að spá hvort að nokkrir auka þúsundkallar væru þess virði að fara upp í annaðhvort þeirra, hef stundum heyrt að Gigabyte sé besti framleiðandinn á móðurborðum (þótt það sé örugglega persónuleg skoðun hvers og eins) og svo þarf ég í rauninni ekki Z77 chip fyrir SB örgjörva þannig það væri kannski ekkert vitlaust að fá mér bara aðeins dýrara Z68 borð með þeim mun fleiri fítusum.
Re: Gott budget móðurborð?
Sent: Lau 16. Jún 2012 02:32
af CurlyWurly
Enginn sem hefur neitt til að leggja? SLI þess virði fyrir auka 6 þús eða ekki?
Re: Gott budget móðurborð?
Sent: Lau 16. Jún 2012 02:34
af gardar
Ætlarðu í SLI eða ekki? Þú verður að gera þetta upp við sjálfan þig