Síða 1 af 1

Q9650 eða I7 2600K?

Sent: Mán 11. Jún 2012 15:23
af 322
Mig langar að lappa aðeins upp á gömlu vélina mína.

Ég er með Q9650 í gömlu vélinni og þarf að finna móðurborð, það er eitthvað að stríða mér.
Spurningin er hvort ég ætti að selja CPU og fá mér 2600K og nýtt móðurborð eða hvort ég ætti bara að halda mér við Q9650 og finna mér mjög gott móðurborð á eBay?

Þessi vél er notuð til að rendera video þegar hún er að vinna, ásamt öðru venjulegu vefrápi.

Hvað segið þið? Halda mér við Q9650 eða fara I7 SB leiðina?

Re: Q9650 eða I7 2600K?

Sent: Mán 11. Jún 2012 15:52
af Eiiki
Þetta er pínu spurning um budget.
Ef þú ert með DDR3 minni sem þú þarft ekki að upgrade-a þá kostar uppfærslan allavega 60k. Annars 70k með 8GB minnum.
Getur líka verið vesen að finna eðal 775 borð. Þ.a. i7 SB leiðin fær mitt atkvæði

En ef þú ert alveg búinn að afskrifa móðurborðið þá myndi ég prufa að baka það áður en ég færi út í að kaupa nýtt drasl.

Re: Q9650 eða I7 2600K?

Sent: Mán 11. Jún 2012 17:19
af mundivalur
Þú verður mjög glaður með i7 2600k :happy
http://www.anandtech.com/bench/Product/49?vs=287

Re: Q9650 eða I7 2600K?

Sent: Mán 11. Jún 2012 17:33
af dori
Mun betra að reyna að ná að uppfæra platforminn fyrst að þú þarft hvort eð er nýtt móðurborð. Ég myndi reyna að baka það fyrst og svo reyna að fá notað móðurborð og prufa það. En ef það gengur ekki þá er það bara að uppfæra í Sandy Bridge (eða Ivy... bæði gott). Miklu frekar skipta um platform en að kaupa nýtt svona móðurborð, alltof mikill kostnaður fyrir "úreldan" platform.

Re: Q9650 eða I7 2600K?

Sent: Mán 11. Jún 2012 21:34
af 322
Gallinn er sá að ef ég skipti yfir í Sandy Bridge þá þarf ég nýtt móðurborð, nýjan örgjörva, ný minni og nýja kælingu.

Á hinn vegin þarf ég bara nýtt móðurborð.

Ég var eitthvað að gúggla þetta áðan og flest svörin voru á báðum áttum, þótt margir sögðu þetta vera no brainer þá voru ekki allir endilega sammála.
Þessi vél er svona auka vél, og ég nota hana þegar það er mikið að gera hjá mér, geri efni klárt á meðan það er unnið á hinni. Svo er hún bara notuð í almennt vefvarf af konunni.

Það er ekkert að móðurborðinu í gamla jálknum en þar sem tölvuaðstaðan var að breytast hjá mér ætla ég að fá mér nýjan (notaðan) kassa fljótlega og var að spá í að fá mér almennilegt móðurborð í leiðinni (Þegar ég skrifaði upphafsinnleggið sat konan við hliðin á mér :megasmile varð að segja að móðurborðið væri að stríða mér til þess að réttlæta skiptin ef hún væri að lesa).
Gamli kassinn er eiginlega stílbrot á nýju aðstöðunni, og víst maður er að fara að taka allt í sundur langar manni að gera eitthvað skemmtilegt í leiðinni. Móðurborðið sem er í er MSI P43T-C51 og mér finnst það ekki spennandi.

En svo kemur aftur að því að ef maður er að fara að breyta einhverju hversu langt á maður að ganga?

Re: Q9650 eða I7 2600K?

Sent: Mán 11. Jún 2012 22:03
af dori
322 skrifaði:og víst maður

fyrst maður...

Anyways... Ef móðurborðið virkar og það eina sem þú vilt er að fá þér nýjan kassa og vilt bara skipta um móðurborð í leiðinni af því að þér finnst það drasl þá er þetta eiginlega no brainer.

Þú selur tölvuna eins og hún leggur sig og uppfærir bara allt í einu. Nýr kassi, móðurborð, minni og örgjörvi þ.e.a.s. þarft ekkert á annarri kælingu en stock að halda ef þú ert ekki að fara í villta yfirklukkun...

Annað hvort myndi ég gera það eða bara kaupa nýjan kassa. Það er ekkert vit í því að uppfæra móðurborð fyrir einhvern gamlan arkitektúr þegar það sem þú ert með virkar fullkomlega.

Re: Q9650 eða I7 2600K?

Sent: Mán 11. Jún 2012 22:24
af gardar
Skipta móðurborðinu út og taka 775 móðurborð sem styður DDR3, þá er auðveldara að uppfæra í framtíðinni :)

Re: Q9650 eða I7 2600K?

Sent: Mán 25. Jún 2012 11:29
af bulldog
þegar sandy-e kemur þá mun ég selja minn i7 2600k. Það verður bara gaman að uppfæra.

Re: Q9650 eða I7 2600K?

Sent: Mán 25. Jún 2012 11:41
af mundivalur

Re: Q9650 eða I7 2600K?

Sent: Mán 25. Jún 2012 12:17
af bulldog
Ég meinti Ivy-e :) sorry