Síða 1 af 1

GTX 560 vs Radeon 6870

Sent: Fim 07. Jún 2012 01:56
af CurlyWurly
Er að íhuga hvort kortið ég á að fá mér, veit að videocardbenchmark.net sýnir meira að segja 6850 sem betra kort en 560 en var að lesa að það væri notað eitthvað trikk til þess að láta 68xx radeon kortin fá hærra í benchmark.

TL;DR: Sparkle GTX 560 eða MSI Radeon 6870

Re: GTX 560 vs Radeon 6870

Sent: Fim 07. Jún 2012 02:37
af chaplin
Ekki taka mark á videocardbenchmark.

Þegar menn eru að tala um að eitthvað ATI kort sé öflugra en nVidia að þá er oft mikið til í því, vélbúnaðurinn á að vera öflugri og því getu til að skila betri aflköstum.

Því miður er það ekki raunin þar sem hugbúnaðurinn fyrir kortin nýtir aflið ílla. Menn reikna þó ekki með að þetta sé eftir að breytast á næstunni.

Ef við horfum þó á einföldu myndina, verðsamanburð, að þá kosta kortin jafn mikið og mv. það litla sem ég hef séð á OCN er HD6870 öflugra í heildina en GTX560, en GTX560 Ti öflugra en HD6870.

GTX 560 Ti > HD6870 > GTX 560

Sjálfur er ég með GTX 560 Ti og er hæst ánægður með það! :happy

Re: GTX 560 vs Radeon 6870

Sent: Fim 07. Jún 2012 02:51
af CurlyWurly
æji vesen er það, á eiginlega ekki þessar auka 7000kr. ég ætlaði að fá mér 6850 en var að spá í að fá mér frekar annaðhvort þessarra... veit varla hvað ég á að gera :woozy

Edit: gerði orðalag skýrara.

Re: GTX 560 vs Radeon 6870

Sent: Fim 07. Jún 2012 12:08
af hjalti8
það er alltof lítill performance munur á þessum kortum til að þetta upgrade þitt meiki sense. Eina vitið væri að safna auka 17 þúsund krónum og fara í HD7850, overclockar það og þá ertu kominn með GTX580 performance, annaðhvort það eða sleppa þessu bara alveg.

Re: GTX 560 vs Radeon 6870

Sent: Fim 07. Jún 2012 14:40
af GrimurD
CurlyWurly skrifaði:æji vesen er það, á eiginlega ekki þessar auka 7000kr. til og er nú þegar búinn að færa mig úr 6850 upp í að ætla að fá mér annaðhvort þessarra... veit varla hvað ég á að gera :woozy

Ekki worth it að fara úr 6850 upp í þessi kort, langt í frá. Getur líka overclockað mörg 6850 kort upp í 6870 performance. Myndi gera eins og hann sagði hér fyrir ofan, spara lengur og kaupa 7850 í staðinn og overclocka það smá,

Re: GTX 560 vs Radeon 6870

Sent: Fim 07. Jún 2012 15:11
af CurlyWurly
Þá fæ ég mér bara 6850, nenni engan veginn að bíða fram í ágúst til þess að geta keypt mér tölvu.

Re: GTX 560 vs Radeon 6870

Sent: Fim 07. Jún 2012 15:56
af AciD_RaiN
CurlyWurly skrifaði:Þá fæ ég mér bara 6850, nenni engan veginn að bíða fram í ágúst til þess að geta keypt mér tölvu.

Ég tók þessu eins og þú ættir það fyrir og værir að fara að uppfæra í 6870 :droolboy

Re: GTX 560 vs Radeon 6870

Sent: Fim 07. Jún 2012 16:26
af CurlyWurly
Nei, þannig að það sé alveg á hreinu þá á ég c.a. 12 ára turn núna og 4 ára fartövlu og er að fara að fjárfesta í nýjum turn eftir helgi eða rétt eftir mánaðamótin. þannig að ég er núna að velja mér skjákort og get eiginlega ekki farið yfir 30 þúsund eins og staðan er. Eins og mig langar í GTX 560 Ti :(

Re: GTX 560 vs Radeon 6870

Sent: Fim 07. Jún 2012 17:28
af Moldvarpan
viewtopic.php?f=11&t=48074

560 Ti á undir 30 ;)

Re: GTX 560 vs Radeon 6870

Sent: Fim 07. Jún 2012 17:36
af CurlyWurly
Er ekki viss um að ég vilji kaupa notað kort. Annars er ein pæling í viðbót, ætla að fá mér móðurborð sem styður crossfire en það styður ekki SLI, er þá sniðugra að taka Radeon kort til að geta farið upp í 2 seinna?

Edit 1: svo held ég líka að kortið sem þú linkaðir sé selt, stendur amk. sold strax í öðru commentinu.

Edit 2: Eru 7770 kortin ekki annars svoldið verri en 6850/gtx 560 eða ofar?

Re: GTX 560 vs Radeon 6870

Sent: Fim 07. Jún 2012 18:01
af CurlyWurly
Jæja, sýnist að það sé líklega bara mest vit í að fá mér Radeon 6850, en hvort er betra fyrir mig að taka ASUS eða Sapphire kort?