Síða 1 af 1
27" vs 22" og 24"?
Sent: Þri 29. Maí 2012 21:49
af Frost
Sælir. Ég bara virðist ekki get ákveðið mig hvað ég vill

Ég hef ákveðið að í sumar ætla ég að breyta skjá aðstöðunni minni. Ef þið væruð að uppfæra hvort mynduð þið hafa einn 27" skjá eða hafa 2 skjái, hinsvegar 22" og annarsvegar 24".
Endilega hendið inn ykkar áliti og þá mun ég sjá hvort það hjálpar mér eitthvað

Re: 27" vs 22" og 24"?
Sent: Þri 29. Maí 2012 22:39
af Squinchy
Ég er einmitt í sama vanda, er að rokka á milli 27" LCD Benq og 24" LED benq. Skipti um skoðun á mínútu fresti
](./images/smilies/eusa_wall.gif)
Re: 27" vs 22" og 24"?
Sent: Þri 29. Maí 2012 22:43
af vikingbay
Ugh, ég er einnig í svona pælingum. Er það bara ég eða er fáránlega lítið úrval af góðum skjáum?..
Re: 27" vs 22" og 24"?
Sent: Þri 29. Maí 2012 23:00
af Cascade
27" með 2560x1440 er klárlega málið, ég er með Dell U2711 og hann er geðveikur, allur munurinn i heiminum a að hafa þessa rosa upplausn
Re: 27" vs 22" og 24"?
Sent: Þri 29. Maí 2012 23:06
af Frost
Cascade skrifaði:27" með 2560x1440 er klárlega málið, ég er með Dell U2711 og hann er geðveikur, allur munurinn i heiminum a að hafa þessa rosa upplausn
Þessi 27" sem ég er að spá í verður reyndar bara með 1920x1080.
Re: 27" vs 22" og 24"?
Sent: Þri 29. Maí 2012 23:21
af Frussi
Er hægt að fá skjá í þessari upplausn (2560x1440) sem kostar ekki það sama og lítil eyja?
Re: 27" vs 22" og 24"?
Sent: Mið 30. Maí 2012 00:01
af KristinnK
Persónulega vil ég ekki 2560x1440 skjá. Hærri upplausn þýðir annars vegar að það þarf að kaupa öflugra skjákort til að fá sama FPS, og hins vegar spilast 1080p myndefni þá ekki í native upplausn skjásins. En þeir sem eru ekki lengur fátækir námsmenn geta sjálfsagt bæði keypt öflugra skjákort án þess að hafa ekki efni á mat í viku og haldið úti sérstakri heimabíó lausn.
Re: 27" vs 22" og 24"?
Sent: Mið 30. Maí 2012 00:13
af lollipop0
Re: 27" vs 22" og 24"?
Sent: Mið 30. Maí 2012 09:47
af Gilmore
Ég mundi frekar fá mér 2x 24" skjái, frekar en 1x 27" í 1920x1080 upplausn. Ég er búinn að prófa bæði, fílaði engan vegin 27" í 1920x1080 (1200).
Verst að þessir 27 og 30" í hærri upplausnum kosta jafnmikið og góð tölva.
Re: 27" vs 22" og 24"?
Sent: Fim 31. Maí 2012 16:04
af Frost
Ætli það sé þá ekki ákveðið. Skelli mér þá á einn 24" svo mun ég vera með annan 22".
Re: 27" vs 22" og 24"?
Sent: Fim 31. Maí 2012 17:14
af sakaxxx
ég keypti mér einhvern asus 27 tommu skjá með 1920x1080 upplausn síðasta sumar og var búinn að skila honum innanvið sólarhring frá kaupum
þetta er einfaldlega of lá upplausn fyrir svo stóran skjá ef þú ert nálægt, 24 tommu max fyrir 1080 upplausn