Síða 1 af 1

3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:10
af Xovius
Tók eftir því að tölvan var eitthvað óvenjulega hæg, komst að því að örrinn er við 90° þó ekkert sé að gerast, hún er búin að klukka sig niður í um 2MHz, og það breytist stöðugt, er núna með multiplyerinn 20 og core voltage 0.85 um það bil :S

Kælingin mín er custom water cooling loop:

Cpu block XSPC Raystorm.
Radiator 3x120mm koolance cu1020v
viftur á rad 3stk scythe gt ap15
Pump res combo xspc
Tubing primochill Primoflex pro.
Compression fittings
viftustýring scythe kaze master pro

Mynd

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:13
af dandri
Er eitthvað búið að losna hjá waterblokkinni?

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:16
af Xovius
dandri skrifaði:Er eitthvað búið að losna hjá waterblokkinni?


Ekki svo ég sjái, var að skella UV cathode kitti í hana áðan og ég gæti svosem hafa hreyft við einhverju en ég held ekki.
Ég prófaði aðeins að ýta í blokkina en ekkert hreyfist...

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:20
af AciD_RaiN
Getur verið einhver stífla í loopunni þinni?

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:23
af Xovius
AciD_RaiN skrifaði:Getur verið einhver stífla í loopunni þinni?


Held ekki, finn hitamuninn á slöngunni frá og til örrans mjög vel sem þýðir (held ég) að það sé flæði þarna...

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:26
af AciD_RaiN
Xovius skrifaði:
AciD_RaiN skrifaði:Getur verið einhver stífla í loopunni þinni?


Held ekki, finn hitamuninn á slöngunni frá og til örgjörvans mjög vel sem þýðir (held ég) að það sé flæði þarna...

Já þetta var líka soldið ólíkleg uppástunga en slíkt hefur gerst :svekktur

Er örgjörvinn að hitna svona eða gæti verið að einhver hitamælir sé bilaður?? Annað sem ég hef séð gerast en er kannski líka fremur ólíklegt...

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 20:28
af AncientGod
Gæti kubburinn verið gallaður ? prófa eithvað stress test.

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 21:05
af mundivalur
brot á slöngu eða dælan ekki á fullu ?

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 21:21
af Xovius
AncientGod skrifaði:Gæti kubburinn verið gallaður ? prófa eithvað stress test.


Er búinn að runna fínt síðustu mánuði...

mundivalur skrifaði:brot á slöngu eða dælan ekki á fullu ?


Slöngurnar eru heilar en hvernig get ég séð hvort dælan sé á fullu eða ekki?

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 21:45
af mundivalur
Þú ættir að finna/heyra suðið þegar þú leggur eyrað við draslið og það á að vera hratt hljóð hehe get ekki lýst því !
Taka slöngur einhverstaðar í sundur og ef hægt er að setja þær í dall og prufa :D

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 21:46
af AciD_RaiN
Ég er með mína D5 dælu tengda við viftustýringu þannig ég get alveg stjórnað hraðanum á henni en það er eina leiðin sem ÉG veit :baby

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 21:50
af braudrist
Eimað vatn + killcoil / PTnuke eða premixed vökvi? Ertu með dye í loopunni? Hvernig er liturinn á vatninu? Gæti líka eitthvað verið að radiatornum.

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 22:20
af Tiger
Ég held það hljóti að vera að það er eitthvað bogið við loopuna.

Hverju varstu að breyta/bæta við? Gerðist þetta allt í einu við það?

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Lau 26. Maí 2012 23:24
af Danni V8
Ég myndi fara vel yfir kælinguna. Myndi ekki þora að hafa tölvuna í gangi ef örgjörvinn fer í 90°C við idle! Sérstaklega þegar um vatnskælingu er að ræða.

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Sun 27. Maí 2012 18:21
af Xovius
Ég ákvað að taka CPU blokkina af og skella nýju thermal paste og festa aftur, nú virðist allt ganga smurt :)
Veit ekki hvað þetta gæti hafa verið...

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Sun 27. Maí 2012 18:39
af Jimmy
Rekið þig í hana og hreyft aðeins við henni?

Re: 3930K í 90° við 5% load :S

Sent: Sun 27. Maí 2012 18:46
af AciD_RaiN
Jimmy skrifaði:Rekið þig í hana og hreyft aðeins við henni?

og í kjölfarið gæti hafa myndast smá loft undir blokkinni. Hef lent í því að fá smá loftbólu undir blokkina en það var vegna þess að ég hafði ekki hugmynd um að maður mætti ekki dreyfa úr themal paste-inu til að jafna það út :face 2 kjarnar alveg helmingi heitari en hinir...