Síða 1 af 1
Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Þri 01. Maí 2012 19:10
af AncientGod
Hallo tók í sundur skjákort og þreif það og tók í burtu svona hvíta límiða eða hvað það myndi kallast þannig ég er að spá hvar get ég fengið þannig til að skipta út og er þetta nauðsýnlegt, er því miður ekki með mynd

Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Þri 01. Maí 2012 19:16
af Kristján
þetta eru thermal pads fyrir VRM á skjákortinu og vona að þú hafir ekki hent þeim eða eyðilagt því þeir verða að vera til staðar.

veit ekki hvar þetta getur fengist en mundi hringja í miðbæjarradíó eða íhlutir eða jafnl vel einhverja tölvuverslun sem gæti verið með svona.
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Þri 01. Maí 2012 19:18
af AncientGod
Þeir voru svo illa farnir, slitnir og bara orðnir svartir af skít

er með þetta samt við hliðinna á mér ætti ég að reyna að nota þetta ?
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Þri 01. Maí 2012 19:21
af astro
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Þri 01. Maí 2012 19:21
af Kristján
bjallaðu í miðbæjarradio eða íhlutir og skoðaðu hvort þeir eru með svona fyrir þig
fyrst þú með kortið í sundur þá er alveg eins gott að skipta um þá fyrst þeir eru orðnir eitthva lélegir.
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Þri 01. Maí 2012 19:23
af AncientGod
astro skrifaði:http://start.is/product_info.php?cPath=80_76_46&products_id=814
takk en þetta er of stórt eða virðist vera það, það er stórt heatsink á kortinu, þetta er Foxcon GeForce 8800 GTS, já ætla að prófa að hringja og sjá hvað er sagt.
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Þri 01. Maí 2012 23:21
af methylman
Það er til thermal lím þú blandar saman að jöfnu lími og herði en ég veit ekki hvort þetta fæst hérna heima.
En ef það fæst er Miðbæjarradíó með umboð fyrir Artic Silver
http://www.arcticsilver.com/arctic_silv ... hesive.htm
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Þri 01. Maí 2012 23:23
af GullMoli
Arctic Silver Thermal Adhesive is a permanent adhesive. Components you attach with Arctic Silver Thermal Adhesive will
stay attached forever.
Ég veit ekki alveg hvort maður vilji vera skella svona á skjákortið sitt.
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Þri 01. Maí 2012 23:26
af methylman
Ég hef notað þetta til þess að festa heatsink á skjákort, en það er annað hægt ef kortið er með götum og heatsink sömuleiðis það er að nota nylonskrúfur og rær það fæst í Íhlutum

Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Þri 01. Maí 2012 23:35
af Klaufi
Sýnist að meirihlutinn sé að misskilja hvað hann vantar..
Hann vantar einfaldlega "Thermal Pads"
Getur veriðð að ég hafi rekið augun í þetta í hillunum hjá Tölvutækni?
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Þri 01. Maí 2012 23:52
af AncientGod
Já akkurat þar sem ég er komið með orðið yfir því hvað þetta kallast, sem sagt thermal pads, ætla prófa að hringja í íhlutir og miðbæjarradio.
ætla líka að gá hvort þetta sé til í tölvutækni eins og klaufi benti á.
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Mið 02. Maí 2012 00:19
af AciD_RaiN
Það er einhversstaðar hægt að fá svona heila mottu sem þú klippir svo niður. Hef reyndar ekki séð þær í búðum hérna heima en það er gott að eiga svona...
Er ég nokkuð eitthvað að misskilja eða ertu ekki að leita þér að einhverju svona

Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Mið 02. Maí 2012 00:34
af AncientGod
Kristján skrifaði:
ég er leyta að þessu sem kristján sýndi á þessari mynd.
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Mið 02. Maí 2012 00:37
af AciD_RaiN
Getur keypt EK thermal pad sheet hjá frozencpu
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Mið 02. Maí 2012 00:47
af AncientGod
helst á íslandi, þetta væri rándýrt að panta erlendis.
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Mið 02. Maí 2012 01:54
af playman
erm.... ég setti bara krem í staðin fyrir einhverja pads... það virkar allaveganna enn hjá mér

Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Mið 02. Maí 2012 02:02
af vikingbay
Ég hef séð menn nota thermal paste á þetta, ég veit hinsvegar ekki hvort það er góður staðgengill. Finnur sennilega eitthvað um það á google.
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Mið 02. Maí 2012 06:58
af Ulli
setti Thermal paste á mitt 5870 og er með það oc.
Re: Tók í sundur skjákort, vantar svar
Sent: Mið 02. Maí 2012 07:38
af Hargo
Hef margoft lent í því að þessir púðar skemmist. Það er í góðu lagi að nota thermal paste í staðinn. Þarft stundum að setja aðeins meira en venjulega ef að heatsinkið klemmist ekki alveg upp við. Mín reynsla er sú að thermal paste-ið kælir betur en þessir púðar.