Síða 1 af 1
Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 11:10
af jobbzi
Sælir
Er einhver með reynslu af Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W frá tölvutek og er hann að standa sig og fann þennan á tölvutek á 19.900kr er það ekki
bara gott verð fyrir 1000W aflgjafa? ég er að fara skipa um aflgjafa á mánud. er með 500W núna en ég þarf að stækka við mig vegna íhluti sem eru í tölvuni
er líka búinn að vera skoða Aerocool Strike-X 800W hjá kísildal en hann er svo dýr fynnst mer á 21.500 fyrir 800W miðað við þennan sem er 1000W hjá Tölvutek
eða er hann bara eitthvað drasl miðað við þetta sem er hjá kísildal??
væri fínt ef einhver commentar um þessa 2 aflgjafa og hjálpar mer smá að ákveða mig hvorn þið mynduð taka
Tek það framm að þessi aflgjafi hjá Kísildal er 80Plus Silver en ekki hjá tölvutek og hef ekki hugmynd hvað þetta 80Plus Silver er eða hvað er verið að meina
Endilega commenta og segið mer hvorn þið myndið taka frekar
Linkur af þeim Báðum:
http://tolvutek.is/vara/inter-tech-ener ... 40mm-viftahttp://kisildalur.is/?p=2&id=1977Takk fyrir framm:)
Jobbi

Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 11:45
af Eiiki
Þú tekur Aerocool aflgjafann frá kísildal. Ekki spurning.
Hvað ertu annars að fara að keyra á öllum þessum wöttum?
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 12:20
af AciD_RaiN
Hvað sem þú gerir ekki taka Inter-Tech
Og 22 þús er alls ekki dýrt fyrir 800w PSU Það getur verið ansi dýrt að spara í þessum hlutum

Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 15:17
af playman
80Plus sínir hver nítnin hanns er, hvað þú ert að fá mörg wött af þessum 1000w auglístum
þú færð aldrey öll 1000w úr honum, það verður alltaf eithvað affall.
Eins líka hvað hann er að standa sig vel undir álagi.
Mæli með að lesa þetta hérna.
http://en.wikipedia.org/wiki/80_PLUS
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 16:34
af jobbzi
Eiiki skrifaði:Þú tekur Aerocool aflgjafann frá kísildal. Ekki spurning.
Hvað ertu annars að fara að keyra á öllum þessum wöttum?
ég er bara að ná að keyra tölvuna mína allveg upp þannig
með þessum aflgjafa sem ég er með núna er ég ekki allveg að fá nógu mikið rafmagn á dótið í tölvuni:P
ertu með einhverju reynslu af Aerocool?
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 16:35
af jobbzi
AciD_RaiN skrifaði:Hvað sem þú gerir ekki taka Inter-Tech
Og 22 þús er alls ekki dýrt fyrir 800w PSU Það getur verið ansi dýrt að spara í þessum hlutum

Þú segir mer ekki að taka hann ertu búinn að heyra eitthvað slæmt um hann?
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 16:43
af AncientGod
ég er með InterTec 750w og hann er búin að vera í gangi hjá mér næstum 24/7 í meira ein 1 og hálft ár, allt í top standi sama spenan og gæða aflgjafi.
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 16:47
af jobbzi
AncientGod skrifaði:ég er með InterTec 750w og hann er búin að vera í gangi hjá mér næstum 24/7 í meira ein 1 og hálft ár, allt í top standi sama spenan og gæða aflgjafi.
Gott að heyra því að mer langar svoldið að kaupa mer hann því að hann er ekkert svo dýr miðað við amperin sem eru í honum og hvað hann er öflugur en fólk er að segja mer ekki að kaupa hann :/ er að reyna að ákveða mig
en ertu allveg sáttur með þinn og hann virkar fínt ekkert búinn að bila eða neitt?
ég er bara að hugsa því að ég þekki ekki merkið þetta Inter-Tech og ekki heldur reynar Aerocool:/
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 16:48
af SolidFeather
Það segir sig nú bara sjálft að 1000w aflgjafi sem kostar þetta lítið og er ekki með neina skráningu yfir nýtni getur ekki verið það góður. Maður þarf nú ekki að vera beyttasti hnífurinn í skúffunni til að sjá það.
Safnaðu þér örlítið meiri pening og keyptu þér Corsair HX 850W, eða bara eitthvað allt annað en ódýrt drasl.
Þetta er bara ekki búnaður sem þú tekur einhverja sénsa með, ef hann klikkar þá gæti hann tekið eitthvað með sér.
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 16:56
af dandri
Corsair HX750 er líka mjög solid.
Hef enga reynslu af hinum merkjunum
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 17:05
af AciD_RaiN
Hef verið með Inter-Tech og hann var bara ekki að gera sig fyrir sig. Svo eins og einhver sagði hérna þá hefur maður heyrt fleiri hryllingssögur af Inter-Tech en af Gumma í byrginu

Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 17:07
af SteiniP
playman skrifaði:80Plus sínir hver nítnin hanns er, hvað þú ert að fá mörg wött af þessum 1000w auglístum
þú færð aldrey öll 1000w úr honum, það verður alltaf eithvað affall.
Þetta virkar ekki svoleiðis.
1000W aflgjafi með 80% nýtni getur alltaf gefið 1000W en hann er að draga meira afl úr veggnum heldur hann en getur nýtt.
Þá myndi semsagt 1000W aflgjafi með 80% nýtni undir 100% álagi myndi draga 1250W (80% af 1250=1000) úr veggnum en gefa frá sér 1000W. Þessi auka 250W breytast bara í hita.
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 17:10
af mundivalur
Er með smá reynslu af Inter-Tech 700w og nr.1 þá eru snúrurnar of stuttar ! svo eru þeir svakalega misjafnir ,einn við hliðina á mér fékk sér 700w og vifta á honum er alltaf í botni
minn átti það til að slá út rafmagninu í herbergi eða fleirum við restart ! man ekki meira enda búinn að losa mig við þetta hehe
Þessir aflgjafar eru flokki low-med eða það er mín skoðun!
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 17:15
af jobbzi
mundivalur skrifaði:Er með smá reynslu af Inter-Tech 700w og nr.1 þá eru snúrurnar of stuttar ! svo eru þeir svakalega misjafnir ,einn við hliðina á mér fékk sér 700w og vifta á honum er alltaf í botni
minn átti það til að slá út rafmagninu í herbergi eða fleirum við restart ! man ekki meira enda búinn að losa mig við þetta hehe
Þessir aflgjafar eru flokki low-med eða það er mín skoðun!
Hvernig aflgjafa fékstu þer þá í staðin?
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 17:17
af AncientGod
ég er allveg sáttur með hann, er með cooler master haf922 kassa og hann er nú ekki lítil og snúrurnar ná út um allt meira að segja verður slatti eftir á mínum, hann er drullu hljóðlátur, hefur aldrei bilað síðan ég setti saman tölvuna er ánægður með hann, bara að prófa ef hann fer að bila þá skilar þú honum og færð endurgreitt tölvutek eru góðir í því ekkert vesen með bilaðar vörur hafa alltaf tekið við hlutum með bros á vör eða hjálpað man að leysa vandamálið.
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 18:18
af mercury
í hvað ætlaru að nota öll þessi amper taktu frekar þann sem kísildalur er með. inter tech er bara með 1stk 8pin power fyrir móðurborð og 2x 6+2pin fyrir skjákort meðan að hinn er með 2stk 8pin power fyrir móðurborð og 4x6+2pin fyrir skjákort. svo þú getur þá amk keyrt 2 stk skjákort.
svo er 800w aflgjafinn silfur vottaður en hinn ekkert vottaður yfir höfuð.....
augljóst hvað þú átt að taka.
Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 18:55
af mundivalur
Taka kísildals aflgjafann

Re: Inter-Tech Energon EPS-1000 1000W aflgjafi, 140mm vifta
Sent: Fim 26. Apr 2012 22:56
af jobbzi
Takk allir
Ég mun taka aflgjafan frá Kísildal
