Síða 1 af 1
Overclock Software..
Sent: Sun 11. Júl 2004 03:55
af surtur
herna þetta er þannig að ég keypti mér GeForce FX 5700Ultra Kort og það fylgdi með því forit sem heitir "overclock GOSU".
Þegar ég ræsi þetta get eg hækkað "gpu" og "dram" var að spá gæti þetta farið einhvað illa með kortið að setja þetta í botn ?
Sent: Sun 11. Júl 2004 04:49
af fallen
Ekki hækka allt í botn strax, þú steikir eitthvað á því :>
Hækkaðu þetta hægt og hægt og runnaðu prime95 (or sumthn else?) er ekki alveg klár á því, en það ætti að reporta errora
Sent: Sun 11. Júl 2004 11:14
af Predator
Hækkaðu um svona 5mhz í einu, keyrðu svo 3Dmark 2003 og sjáðu hvort það komi eitthver artifacts og ef það koma artifacts þá áttu að lækka um 5-10Mhz gildir það sama á bæði core clock og minninu. Prime95 er notað til að sjá hvort örgjörvinn sé að gera villur eftir oc.
Sent: Sun 11. Júl 2004 12:28
af Andri Fannar

hann var að tala um
skjákort
Sent: Sun 11. Júl 2004 13:23
af surtur
þetta var default "gpu: 300" og "dram 906" en ég set þetta stundum í "gpu: 475" "dram: 951"
Sent: Sun 11. Júl 2004 15:17
af viddi
mitt FX 5200 kort er default á Core = 250 MHz og Memory = 400 MHz
en ég keyri það á Core = 305 MHz og Memory = 480 Mhz
Sent: Sun 11. Júl 2004 17:32
af fallen
Eeeeenda sagðist ég ekki vera klár á því hvaða forrit hann ætti að nota
Sent: Sun 11. Júl 2004 20:56
af MezzUp
Fallen skrifaði:Eeeeenda sagðist ég ekki vera klár á því hvaða forrit hann ætti að nota
Nota quotes svo að maður viti við hvern þú ert að tala
svamli var að svara Emilf held ég

Sent: Sun 11. Júl 2004 21:09
af Steini
surtur skrifaði:þetta var default "gpu: 300" og "dram 906" en ég set þetta stundum í "gpu: 475" "dram: 951"
og hefur þú prufað að runna 3dmark03
Hér er linkur ef þú þarft
Sent: Sun 11. Júl 2004 21:52
af kristjanm
Að hækka klukkuhraðann svona gífurlega á GPU ætti að valda því að kortið verði óstöðugt.
Endilega prófaðu að keyra einhvern tölvuleik á þessum stillingum, þar muntu sjá að skjákortið ræður ekki við tölvuleikinn.
Til þess að finna út hvað það hæsta er sem þú getur yfirklukkað skjákortið áttu að hækka lítið í einu, og keyra helst eitthvað skjákorts benchmark eins og Aquamark eða 3DMark inn á milli til að sjá hvort skjákortið ráði við það.