Síða 1 af 1

Spurning varðandi SLI

Sent: Lau 21. Apr 2012 19:12
af Sh4dE
Sælir vaktarar ég er með tengd hjá mér tvö 9800gtx kort og var að prufa að spila skyrim sem er sagt að eigi að styðja SLI og var með MSI afterburn til að monitora hitann á kortunum og vinnsluna.
En þegar að ég skoða yfirlitið þá er bara annar GPU að vinna og þá bara master og hann fer alveg uppí 105°C á meðan hinn stendur bara idle hjá.

Eru einhverjar skýringar á þessu eða er ég eitthvað að misskilja þetta SLI hugtak að geta náð helmingi betri vinnslu með tveimur kortum??

Kveðja Gísli

Re: Spurning varðandi SLI

Sent: Lau 21. Apr 2012 19:19
af AciD_RaiN
Er móðurborðið að styðja SLI ?

Ef svo er getur maður þurft að fara í nvidia settings og breyta einhverjum stillingum þar...

Re: Spurning varðandi SLI

Sent: Lau 21. Apr 2012 19:26
af Sh4dE
Ég er með EVGA 132-CK-NF78 móðurborð sem á að styðja 3-SLI með nForce 780i SLI chipsetti og svo er ég líka búinn að stilla SLI-ið inní NVIDIA control panel. Og MSI afterburn sýnir að það séu tvö kort tengd saman annað sem master og hitt sem slave undir masternum.
Kv Gísli

Re: Spurning varðandi SLI

Sent: Lau 21. Apr 2012 19:34
af Benzmann
getur oft verið svona vandamál þegar þú ert með SLI kveikt á sem er alveg eðlilegt, prófaðu að nota HWmonitor til að sjá þetta, ég sé það þannig hjá mér þegar ég er með kveikt á SLI

Re: Spurning varðandi SLI

Sent: Lau 21. Apr 2012 19:41
af littli-Jake
Er ég sá eini sem hefur áhigjur af því að skjákortið hans sé að fara yfir 100°c? Við erum að tala um að það er sambærilegur hiti og heldur hærri en meðal bílvél er að fara í.

Re: Spurning varðandi SLI

Sent: Lau 21. Apr 2012 19:51
af Sh4dE
Hámarkið á Nvidia 9800 GTX kortunum er 105°C sem gerir það að verkum ef að það helst þannig hjá mér í nokkrar sec þá crashar driverinn og hitinn dettur niður aftur en já HW monitor sýnir alveg sömu hitatölur sem segir mér mjög líklega það sama og MSi afterburner að annað kortið virðist bara ekki vera að vinna með hinu þótt það þykist gera það.
Ég sá reyndar gamla pósta á erlendu forumi sem að bentu á að það væri vesen með SLI á 9800 GTX á Win7 64 bit en ég hélt að nýju driverarnir ættu að vera búnir að koma í veg fyrir það.
Kv Gísli

Re: Spurning varðandi SLI

Sent: Lau 21. Apr 2012 19:53
af AciD_RaiN
Ertu að nota 301.10 stable eða 301.24 beta driver? Það hafa stundum komið upp vandamál með beta driverana en held að það sé samt ekkert algengt :P

Re: Spurning varðandi SLI

Sent: Lau 21. Apr 2012 19:54
af andribolla
Ertu búin að setja SLI brúnna á milli kortana?

Re: Spurning varðandi SLI

Sent: Lau 21. Apr 2012 20:17
af Sh4dE
Hérna eru hitatölur eftir 10 min spilun í medium á skyrim Mynd og já ég er með SLI brúnna á sínum stað á milli skjákortanna.
Og svo er ég með driver version 296.10
Kv Gísli

Re: Spurning varðandi SLI

Sent: Lau 21. Apr 2012 20:20
af Oak
Also, a 9800 GTX and a 9800 GTX+ will not SLI. They must be the exact same type of card.

Er þetta ekki bara ástæðan.

Re: Spurning varðandi SLI

Sent: Lau 21. Apr 2012 20:33
af Sh4dE
Ég er ekki viss en ég er líka búinn að lesa á mörgum forum-um úti að þú getir tekið bæði kortinn en þau eru bæði 65 nm technologie og sett þau í SLI vandræða laust enn annars er hérna önnur mynd af BIOS version á kortunum getur maður ekki sett bara sama BIOS á bæði kortin og þá ættu þau að vinna saman? Mynd

Re: Spurning varðandi SLI

Sent: Lau 21. Apr 2012 20:46
af mundivalur
Sýnist þetta vera virka ! það er slatta hita munur því að annað kortið fær vel heitt loft og lítið bil á milli kortanna :D
Þessi kort þurfa mikið loftflæði og hitna mikið idle 55-62° og svo load 80-90°