Síða 1 af 1
Að setja saman Server?
Sent: Lau 10. Júl 2004 17:34
af ErectuZ
Ég vissi ekki hvar ég ætti að pósta þessu, þannig að ég set það hingað.
Ég er að pæla í því að setja saman svona server. Það er að segja, tölvu sem ég nota til að host'a servera og svona, t.d. Teamspeak servera og þannig. Ég veit ekki hvað væri besti serverinn, en ég ætla mér ekki að spila neina leiki á henni eða neitt. Bara hafa kveikt á henni 24/7 með 1 eða fleiri servera í gangi. Nú er komið að ykkur að hjálpa mér. Ég er nú þegar með móðurborð (man ekki hvaða gerð) og 1100mhz Celeron Örgjörfa einhvers staðar í felum. Svo held ég að ég eigi 4GB harðann disk líka. En ég þarf held ég að kaupa restina. Svo á ég auðvitað kassa líka

. Hvað meira ætti ég að kaupa? Hve mikið RAM, hvernig skjákort o.s.frv.
Edit: Og ef einhver er að selja svona low end drasl mjög ódýrt, þá skal ég skoða verðið og kaupa ef það er nógu lágt

Sent: Lau 10. Júl 2004 17:44
af Steini
Var ekki einhver að selja 2 p3 900 og 800mhz vélar á til sölu þræðinum?
Sent: Lau 10. Júl 2004 17:56
af ErectuZ
Jú, en ég á nú þegar örgjörva, móðurborð og HDD

Sent: Sun 11. Júl 2004 13:27
af Grobbi
þarft bara eitthvað svona 256 ram ef þú ætllar bara að hafa teamspeak server.
Sent: Sun 11. Júl 2004 13:44
af Pandemic
ég er með 384mb í minni serverinum hjá mér
Sent: Sun 11. Júl 2004 16:45
af ErectuZ
hehe. Ekki bara Teamspeak. Líka einn leikjaserver. En í hann hef ég reyndar aðra tölvu, sem er með 60RAM

Sent: Sun 11. Júl 2004 17:05
af tms
Það fer allt eftir því hvað þú ætlar að hafa á serverinum og hvaða stýrikerfi þú ætlar að nota (windows er ekki sjálfsagt). Leikjaserverar taka oft mikið CPU og minni, kíktu á heimasíðu leiksins sem þú ætlar að serva. 1100mhz er miklu meira en nóg fyrir teamspeak eða ventrilo. Spurðu vini þína hvort þeir eiga ekki eitthvað drasl skjákort sem þeir nota ekki lengur.
Sent: Sun 11. Júl 2004 20:57
af MezzUp
verður að segja okkur hvað nákvæmlega þú ætlar að hosta...........
Sent: Sun 11. Júl 2004 23:49
af ErectuZ
Ég var að pæla í að hosta NwN server (Neverwinter Nights) og svo kannski teamspeak..
Edit: Svo á ég ekki Linux

Sent: Mán 12. Júl 2004 00:24
af Grobbi
við í kotr vorum með 2-3 counter strike servera uppi á 2000 amd athlon xp+ og eitthvað fint mobo. 256 ram minir mig 10 gb hdd og á linux
Sent: Mán 12. Júl 2004 01:08
af ErectuZ
Já, en ég er ekki að fara að hosta neina Counter-Strike servera

Sent: Mán 12. Júl 2004 03:00
af KinD^
hmm ég myndi bara nota drasl skjákort og linux er held ég besti kosturinn í það að hosta server á ef þú ætlar að hafa kveikt á vélinni 24/7 ... getur líka haft netið á sever tölvunni og bnc og fleyra

btw linux kostar ekkert

Sent: Mán 12. Júl 2004 09:28
af Stutturdreki
Rainmaker skrifaði:Ég var að pæla í að hosta NwN server (Neverwinter Nights) og svo kannski teamspeak..
Edit: Svo á ég ekki Linux

Þarft meira en 4Gb HDD fyrir NWN!.. Stýrikerfið tekur 1-1,5Gb og þá er voðalega lítið eftir, nema þú sért ekki með SoU og HoU. Aðalatriðið við góðan server er að hafa gott I/O og sæmilegt minni.. annað skiptir ekki máli.
Annars eru lágmarkskröfur (samkvæmt
heimasíðu Bioware):
CPU: PII 450Mhz (800mhz recomended)
RAM: 96Mb (256 recomended)
HDD: 2Gb (Svoldið lítið.. minnir að ég hafi verið kominn upp í 3Gb með SoU og HoU)
Sjálfur spilaði ég lengi á 866Mhz PIII, 256Mb minni og gömlu 32Mb skjákorti og það virkaði bara fínt (náttúrulega ekki með hámarks upplausn).
Leiðbeiningar fyrir
NWN Linux uppsettningu.. og nokkur mismunandi
Linux download (innannlands, Red Hat er fínt en margir eru hrifnir að öðrum útgáfum) svo geturðu örugglega fundið uppsettningar leiðbeiningar á netinu.. Annars getur verið best að nota bara Windows ef þú kannt betur á það.
Sent: Mán 12. Júl 2004 11:35
af ErectuZ
Sko, ég veit um lágmarkskröfur og allt það, en þegar maðut hostar NwN server, þá fer maður aldrei inn í leikinn sjálfann. Þetta er bara svona lítill gluggi þar sem að maður sér spilara o.s.frv. Ég er að pæla í að spila hann á annar tölvu. Þessari sem ég er á núna
