Síða 1 af 1

Hiti á skjákortum

Sent: Lau 10. Júl 2004 11:15
af Icarus
Smá pæling... ég er með powercolor radeon 9800pro kort og ég er á því að það sé eiginlega of hætt þar sem örgjörvinn hækkaði um meira en 10 gráður þegar ég skellti því í, vitiði um eitthvað forrit til að kíkja á hitann á skjákortum ?

Sent: Lau 10. Júl 2004 11:19
af elv
Þarft að modda Pro kortið í XT til að geta séð hitan á því.
Annars hitn skjákort mjög mikið og er 60-70c á 9800 kortunum alveg eðlilegt.Spurning að bæta loftflæðið í kassanum hjá þér

Sent: Lau 10. Júl 2004 15:47
af Icarus
ætli það sé ekki málið, ætla að fara og kaupa mér fleirri viftur og svona í þetta helvíti... annars er örgjörvinn ekkert nálægt hættumörkum eða neitt þannig (51 gráða)

Sent: Lau 10. Júl 2004 17:37
af Steini
Nei ég held að það sé bara eðlilegt fyrir amd 2500+

Sent: Lau 10. Júl 2004 19:33
af Icarus
Steini skrifaði:Nei ég held að það sé bara eðlilegt fyrir amd 2500+


overclocked í 3200+, ekki gleyma því :wink: