Síða 1 af 1
er skjákortið mitt gallað?
Sent: Fös 06. Apr 2012 19:33
af worghal
jæja, ég er að lenda í smá vandræðum með skjákortið mitt.
ég ætlaði að fara í battlefield og joina server, en svo þegar það er búið að loada þá er grafíkin eitthvað skrítin og ég sé gáma sem eru nálægt mér líka risa stóra uppi í fjöllum og er að fá einhver artifacts og svona.
er joina leikinn aftur og það virðist hafa lagast en svo crashar display driverinn.
ég loka leiknum og joina aftur og fæ svona galla

og á meðan allt þetta er að gerast þá er skjákortið mitt að hlaupa á 70-80 gráðum með viftuna í 70% hraða, en hingað til hefur aðeins þurft að fara upp í 61% í þungri vinnslu.
er kortið gallað eða er driverinn eitthvað að stríða mér?
éger með nýjasta driverinn.
EDIT: í idle eða léttri vinnslu þá er kortið mjög kalt og hljóðlátt.
EDIT 2: ég opnaði wow og þá lítur allt svona út

EDIT 3: prufaði að opna wow aftur og fékk þetta

stærri mynd
http://myndahysing.net/upload/51333742057.png
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Fös 06. Apr 2012 20:13
af Moquai
Prufaðu að eyða út öllum driverum með t.d. driver sweeper og nota eldri/nýrri driver, getur svo líka runnað furmark og checkað hvort að það eru artifacts þar líka.
En myndi byrja að útiloka áður maður fer að spyrja sig hvort að skjákortið sé gallað.
WoW Crashar alltaf hjá mér þegar ég er með hann í DX11, fæ sem sagt display driver has stopped working, getur prufað það líka.
Og þegar þú installar nýrri driver frá nVidia veldu Custom -> Clean Install.
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Fös 06. Apr 2012 20:16
af worghal
þetta er í fyrsta skipti sem eitthvað svona gerist.
en ég hef ekki slökkt á tölvunni í dágóðann tíma og tók eftir því aðann að overclockið mitt var farið úr 4.8 niður í 3.6Ghz...
gæti verið eitthvað tengt því

Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Fös 06. Apr 2012 20:21
af braudrist
voltin á örgjörvanum getur framkallað skrýtna hluti. Eitt sinn þegar voltin hjá mér voru unstable þá virkaði allt nema LCD skjárinn á fan controllernum
Ég mundi prufa að fara aftur í stock settings og kannski prufa líka leiki sem keyra ekki DX11
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Sun 08. Apr 2012 15:22
af worghal
jæja, ég náði að laga þetta í tvö daga en svo kom þetta aftur. skiptir engu máli með hvaða driver ég er á

EDIT: ég prufaði að setja örgjörfann á stock settings svona ef hann er að valda þessu en svo virðist ekki vera.
það er allt stock og þetta heldur áfram að gerast. einnig er kanski vert að minnast á að ef ég opna wow og hann byrjar að láta svona þá lokast önnur forrit á borð við VLC eða Photoshop.
einnig er kanski vert að minnast á að kortið er EKKI yfirklukkað. allt stock.
EDIT 2: jæja, ég prufaði að færa kortið niður um eitt PCI slot og það virkar fínt. hvaða gæti þetta þýtt fyrir móðurborðið

Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Sun 08. Apr 2012 17:20
af Garri
Hér í gamla daga þegar ég var að gera við svona gripi, þá tók ég oft hluti úr sambandi og setti í samband aftur, stundum eftir að hafa notað hreint/nýtt strokleður á snertur (á gulum blýöntum) Oft sem þetta eitt lagaði vélarnar, minni, örgjörvi og kort.
Hef orðið var við mjög lélega SATA kapla undanfarið. Losna við titring og missir kontakta sem ég er viss um að útskýri einhvern hluta af BOSD í SSD diskunum sem skv. því eru þá viðkvæmari fyrir að "missa" samband en venjulegir diskar.
Gætir prófað að þurrka af kontöktum með nýju strokleðri og síðan setja það í gamla slottið, ef bilunin heldur áfram, þá er slottið eða rásir því tengdar, bilaðar.
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Sun 08. Apr 2012 19:00
af kubbur
ég lennti í þessu einusinni, þá hafði ég asnast til að setja pci express slottið á 100 mhz, svissaði yfir í auto og lagaðist allt
svo er líka spurning um að rykhreinsa kortið
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Sun 08. Apr 2012 19:02
af worghal
kubbur skrifaði:ég lennti í þessu einusinni, þá hafði ég asnast til að setja pci express slottið á 100 mhz, svissaði yfir í auto og lagaðist allt
ég gerði restore default á tölvunni, það breytti engu, en ég skipti um PCI-E rauf og þá virkar þetta en driverinn heldur samt áfram að crasha.
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Sun 08. Apr 2012 19:03
af kubbur
gætir prufað að rykhreinsa kortið
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Sun 08. Apr 2012 19:04
af AciD_RaiN
worghal skrifaði:kubbur skrifaði:ég lennti í þessu einusinni, þá hafði ég asnast til að setja pci express slottið á 100 mhz, svissaði yfir í auto og lagaðist allt
ég gerði restore default á tölvunni, það breytti engu, en ég skipti um PCI-E rauf og þá virkar þetta en driverinn heldur samt áfram að crasha.
Driverinn var alltaf að crasha hjá mér þegar ég var með kortið of hátt klukkað.
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Sun 08. Apr 2012 19:17
af worghal
AciD_RaiN skrifaði:worghal skrifaði:kubbur skrifaði:ég lennti í þessu einusinni, þá hafði ég asnast til að setja pci express slottið á 100 mhz, svissaði yfir í auto og lagaðist allt
ég gerði restore default á tölvunni, það breytti engu, en ég skipti um PCI-E rauf og þá virkar þetta en driverinn heldur samt áfram að crasha.
Driverinn var alltaf að crasha hjá mér þegar ég var með kortið of hátt klukkað.
eins og ég nefni hér að ofan þá er kortið ekkert klukkað.
Edit: skjákortið var að crasha núna og frysti skjáinn en skype var enþá virkt og svona

Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Sun 08. Apr 2012 20:10
af mundivalur
Hefur þú ekkert annað skjákort til að prufa

Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Sun 08. Apr 2012 20:22
af worghal
bara rusl gömul skjákort
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Sun 08. Apr 2012 23:27
af braudrist
Þetta gæti hljómað skringilega, en prufaðu að svissa skjákaplinum yfir á hitt DVI tengið.
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Mán 09. Apr 2012 00:24
af mercury
hvernig aflgjafa ertu með ?
slappur aflgjafi getur bæði fuckað upp overclocki og sömuleiðis geta skjákort orðið skelfileg..
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Mán 09. Apr 2012 00:40
af worghal
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Mán 09. Apr 2012 01:08
af mercury
spurning um að prufa einhvern annan. sambærilegan. 700w+ ef það var nóg að skipta um slot þá er annaðhvort slot1 gallað eða aflgjafinn.
Re: er skjákortið mitt gallað?
Sent: Mán 09. Apr 2012 01:10
af mercury
mercury skrifaði:spurning um að prufa einhvern annan. sambærilegan. 700w+ ef það var nóg að skipta um slot þá er annaðhvort slot1 gallað eða aflgjafinn.
gætir mögulega prufað að flasha í annan bios.