Síða 1 af 1

Vantar álit á nýrri tölvu. p4 + x800

Sent: Fim 08. Júl 2004 21:24
af The dude
málið er að ég ætla að fara stækka við mig og langar að vita álit ykkar snillingana..

Minni: 3 x Kingston 512MB DDR400
Skjákort: ATi Radeon X800 Pro 256MB
Harður Diskur: 2 xWestern Digital WD1600PB 160 GB 7200 sn/mín ATA100 8 MB biðminni (buffer)! Fluid Dynamic Bearing
Móðurborð: Abit AI7
Geisla skrifari: Samsung SW-252FEN, 52x/32x/52x
Örgjörvi: Intel P4 2.80 GHz 800 MHz brautarhraði, 478 pinna og 512k flýtiminni

er þetta ekki fín samsetning?eða?

og ég er í vandræðum með turni fyrir þetta...mæliði með einhverjum

Sent: Fim 08. Júl 2004 21:50
af Andri Fannar
á hvaða verði er þetta ?

Sent: Fim 08. Júl 2004 22:34
af WarriorJoe
Taka 2x kingston minni, myndi sennilega frekar fá mér 3-3.2 ghz örgjörva.. Og bíða eftir x800XT / Geforce 6800 Ultra, þess virði að bíða, munurinn á xt & pro er það mikill.. Einnig mæli ég með turninum Antec Sonata frá boðeind, mjög hljóðlátur og hefur fengið frábæra dóma.. Kostar 12.900 helld ég..

Ef þú ætlar að oc'a er 2.8 mjög fínn örri til þess og er einmitt til ákveðin týpa af 2.8 örgjörvum sem þú ættir þá á að fá þér, aðrir hérna vita hvað þessi týpa heitir minnir mig..

Sent: Fim 08. Júl 2004 23:15
af kristjanm
Alls ekki taka þrjá minniskubba, taktu heldur tvo eða fjóra.

Til að geta keyrt minni á Dual-Channel þarftu að vera með annaðhvort 2, 4 eða 6 minniskubba í vélinni. Þú getur ekki keyrt Dual-Channel ef þú ert með 1, 3 eða 5 minniskubba. Svo er 1GB alveg nóg.

Annars er þetta mjög fín samsetning, að því að mér virðist.

Sent: Fim 08. Júl 2004 23:18
af Manager1
Taka frekar 2x Samsung 160gb harða diska í staðin fyrir þetta WD rusl :P

Sent: Fim 08. Júl 2004 23:38
af WarriorJoe
Ah já gleymdi að segja það.. Ekki tala WD .. Taktu Samsung/Seagate..

Sent: Fös 09. Júl 2004 00:27
af gumol
Og mundu svo næst að hafa lýsandi titil. "Hjálp!" segir ekki neitt um innihaldið.

Sent: Fös 09. Júl 2004 01:04
af machinehead
WarriorJoe skrifaði:Og bíða eftir x800XT / Geforce 6800 Ultra, þess virði að bíða, munurinn á xt & pro er það mikill


Sumir eru bara ekki tilbúnir að eyða meira en 50k(sem er andskoti nóg) í skjákort, ég mæli með X800Pro því það er mjög gott, kannski ekki nógu fyrir þessa "perfectionists" en samt mun betra en þau sem eru á markaði í dag!

Sent: Fös 09. Júl 2004 11:02
af Steini
Já en það er spurning hvort hann sleppir minninu og er þá kominn með cirka verðmuninn á milli xt og pro kortanna (minnið kostar einhver 12þúsund held ég)