Síða 1 af 1
intel 915
Sent: Fim 08. Júl 2004 21:06
af gutti
smá forvitni ef mar kaupi þetta nýja móðurborð frá intel þarf að fá nýja örgjörva
http://www.ecs.com.tw/extra/915/9154.htm spá í enda ásgúst ?? hva ykkur álit á þetta

Sent: Fim 08. Júl 2004 21:33
af gumol
Það fer allt eftir því hvernig örgjörva þú ert með núna.
Sent: Fim 08. Júl 2004 21:36
af gutti
intel 2.8 overclock í 3.30 ghz
Sent: Fim 08. Júl 2004 21:44
af gumol
Nei, verður að eiga P4 775 pinna örgjörva.
Sent: Fim 08. Júl 2004 21:48
af gutti
þá verða mar að kaupa örgjörva og móðurborð saman en spurning hva mundi þetta kosta ?

Sent: Fim 08. Júl 2004 22:59
af kristjanm
Hvað þetta myndi kosta fer allt eftir því hvernig móðurborð/örgjörva þú ætlar að fá þér.
Ég myndi segja allt frá 30.000-60.000.
Intel ætla að lækka verðin á örgjörvunum sínum nokkuð mikið 22. ágúst, svo að talan ætti að breytast þá.
Og já, (gömlu) örgjörvarnir eru 478 pinna, en nýju móðurborðin styðja aðeins 775 pinna örgjörva, þú þarft semsagt að kaupa bæði nýtt móðurborð og örgjörva.
Sent: Fim 15. Júl 2004 10:26
af Bendill
kristjanm skrifaði:Hvað þetta myndi kosta fer allt eftir því hvernig móðurborð/örgjörva þú ætlar að fá þér.
Ég myndi segja allt frá 30.000-60.000.
Intel ætla að lækka verðin á örgjörvunum sínum nokkuð mikið 22. ágúst, svo að talan ætti að breytast þá.
Og já, (gömlu) örgjörvarnir eru 478 pinna, en nýju móðurborðin styðja aðeins 775 pinna örgjörva, þú þarft semsagt að kaupa bæði nýtt móðurborð og örgjörva.
Alveg rólegur! 30 til 60 þúsund skeljar, heldurðu að þetta verði frítt? Þetta á eftir að kosta að minnsta kosti 50 - 90 þúsund skeljar....
Öll ný kubbasett frá Intel eru ógeðslega dýr (til að byrja með allavega), þú borgar að minnsta kosti 20.000 kr.- fyrir móðurborðið...

Sent: Fös 16. Júl 2004 18:47
af kristjanm
Bendill: Ég er ósammála.
Intel eiga eftir að framleiða örgjörva fyrir alla verðflokka og móðurborðaframleiðendur líka.
Ég vill benda á að Intel er að reyna með mikilli hörku að troða nýju tækninni sinni á markaðinn.