Síða 1 af 1

A4Tech X7 G-800V lyklaborð

Sent: Fim 29. Mar 2012 16:41
af sveik
Hefuru einhver reynslu af þessu lyklaborði?
A4Tech X7 G-800V
Er það hávaðasamt? er að spá í lyklaborði á þessu verði. Einhverjar aðrar hugmyndir?

Re: A4Tech X7 G-800V lyklaborð

Sent: Fim 29. Mar 2012 16:50
af Yawnk
sveik skrifaði:Hefuru einhver reynslu af þessu lyklaborði?
A4Tech X7 G-800V
Er það hávaðasamt? er að spá í lyklaborði á þessu verði. Einhverjar aðrar hugmyndir?

Sæll, ég nota þetta sjálfur og hef notað í langan tíma :) OG ÉG ELSKA ÞAÐ!! Mæli sérstaklega með þessu.
Hávaðasamt... tjaaa myndi nú ekki segja það ;) bara venjulegt.
Það er líka vatnsheld, elska þessa gúmmítakka og 16 takkar sem þú getur forritað, til dæmis ýtt á einn þá kemur upp browser.. ofl.
Elska það, frábært fyrir verðið :)

Re: A4Tech X7 G-800V lyklaborð

Sent: Fim 29. Mar 2012 17:17
af Leviathan
Hef átt 2 svona og þau skemmdust bæði þegar það helltist yfir þau, takkar fóru að leiða í hvorn annan þannig að ef ég sló inn "a" fékk ég "qa" eða "as". Annars var ég bara sáttur með það.

Re: A4Tech X7 G-800V lyklaborð

Sent: Fim 29. Mar 2012 18:56
af Yawnk
Leviathan skrifaði:Hef átt 2 svona og þau skemmdust bæði þegar það helltist yfir þau, takkar fóru að leiða í hvorn annan þannig að ef ég sló inn "a" fékk ég "qa" eða "as". Annars var ég bara sáttur með það.

Mér var sagt eitt af starfsmönnum Kísildals þegar þetta var keypt, að ef þú t.d hellir yfir það, eða eitthvað hellist ofan í það EKKI SNÚA ÞVÍ Á HVOLF.
ef þú gerir það, þá fer vatnið undir takkana, þú átt að láta það frekar á ofninn yfir nóttina, eða eitthvað líkt, því að það eru göt undir því fyrir vatnið að leka úr.

Re: A4Tech X7 G-800V lyklaborð

Sent: Fim 29. Mar 2012 19:04
af worghal
ef að þú ert stanslaust að hella yfir lyklaborðið þitt, þá held ég að vandamálið liggi einfaldlega í notandanum.

Re: A4Tech X7 G-800V lyklaborð

Sent: Fim 29. Mar 2012 19:13
af Yawnk
worghal skrifaði:ef að þú ert stanslaust að hella yfir lyklaborðið þitt, þá held ég að vandamálið liggi einfaldlega í notandanum.

Nákvæmlega :happy