Síða 1 af 1
suð í þráðlausum headfone
Sent: Mið 28. Mar 2012 01:27
af bulldog
Sælir vaktarar.
Ég er með Philips wireless sbc hc 8440
http://www.ceviews.org/169/philips-sbc-hc8445-wireless-headphones/. Þetta er að vísu linkur á 8445. Það kemur smá suðmeð svona 4-5 sek millibili en það sem ég er að hlusta á heyrist fullkomnlega og aftur og aftur kemur þetta pirrandi suð. Getur verið að loftnetið sé að gefa sig ? driverinn fyrir hljóðið ? hvað annað dettur ykkur í hug ? Allar ábendingar væru vel þegnar því að þetta er að gera mig brjál .........
Re: suð í þráðlausum headfone
Sent: Mið 28. Mar 2012 02:04
af astro
bulldog skrifaði:Sælir vaktarar.
Ég er með Philips wireless sbc hc 8440
http://www.ceviews.org/169/philips-sbc-hc8445-wireless-headphones/. Þetta er að vísu linkur á 8445. Það kemur smá suðmeð svona 4-5 sek millibili en það sem ég er að hlusta á heyrist fullkomnlega og aftur og aftur kemur þetta pirrandi suð. Getur verið að loftnetið sé að gefa sig ? driverinn fyrir hljóðið ? hvað annað dettur ykkur í hug ? Allar ábendingar væru vel þegnar því að þetta er að gera mig brjál .........
Á að vera hægt að velja um 2 rásir á sendinum, ertu búinn að prufa það ?
Ef það er þráðlaus heimasími, router, fartölva eða wi-fi græja nálægt sendinum sem gæti verið að trufla, allt í lagi að skoða það.
Ég veit nú ekki á hvaða týðni eða rás svona þráðlausir adapterar fyrir heyrnartól eru á en það er bara fyrir þig að grafa dýpra og útiloka

GL
Re: suð í þráðlausum headfone
Sent: Mið 28. Mar 2012 04:16
af DJOli
Ætli þau séu ekki bara á 2.4ghz.
Minnir að routerar og aðgangspunktar meðal annars, sendi á 2.4ghz.
Re: suð í þráðlausum headfone
Sent: Mið 28. Mar 2012 05:58
af axyne
Búinn að útiloka hljóðgjafann ?
Er ekki svona suð annars bara aukabúnaður í gegnum analog sendingu?
Eftir að hafa googlað aðeins þá ertu allavega ekki einn með þetta vandamál.
Ættir að fá betra S/N radio ef þú trukkar hljóðið inná sendinn eins mikið og þú getur. notar síðan hækka/lækka takkann á heyrnatólunum.
Re: suð í þráðlausum headfone
Sent: Mið 28. Mar 2012 06:27
af DJOli
Svo gæti líka verið að þetta sé aflgjafinn í tölvunni, þ.a.s. ef innstungan er ekki jarðtengd, og þá jarðtengt í vegginn.
Með jarðtengingu er átt við kló með tveim litlum málmbitum sitthvorum megin.