Síða 1 af 2
Minimal footprint tölva?
Sent: Sun 11. Mar 2012 21:07
af appel
Síðast keypti ég mér "silent pc" tölvu, og fannst það góð kaup, enda ekkert meira pirrandi en að hafa hávaðasama tölvu í íbúðinni.
En hinsvegar einsog allar tölvur þá étur þetta rafmagn og spúir út þurru heitu lofti sem er ekki gaman af í lítilli íbúð.
Þannig að ég vil núna taka þetta skrefinu lengra og setja saman tölvu sem er:
1) Mjög hljóðlát
2) Ekki með milljón viftur sem spúa út heitu þurru lofti
3) Frekar lítil, þ.e. ekki stóran atx turn, kannski medium.
4) Allt þetta án þess að fórna performance, en ég vil helst geta keyrt leiki einsog SC2 á full quality án þess að lagga.
Helst vil ég ekki kaupa mér ferðatölvu eða iMac, en það gæti þó komið til greina... allavega vil sjá svör við þessum pósti áður en ég pæli í því.
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Sun 11. Mar 2012 23:57
af GuðjónR
Veit einhver um gott micro móðurborð fyrir i2600/i2700 og dead silent kassa?
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 00:11
af Xovius
appel skrifaði:Síðast keypti ég mér "silent pc" tölvu, og fannst það góð kaup, enda ekkert meira pirrandi en að hafa hávaðasama tölvu í íbúðinni.
En hinsvegar einsog allar tölvur þá étur þetta rafmagn og spúir út þurru heitu lofti sem er ekki gaman af í lítilli íbúð.
Þannig að ég vil núna taka þetta skrefinu lengra og setja saman tölvu sem er:
1) Mjög hljóðlát
2) Ekki með milljón viftur sem spúa út heitu þurru lofti
3) Frekar lítil, þ.e. ekki stóran atx turn, kannski medium.
4) Allt þetta án þess að fórna performance, en ég vil helst geta keyrt leiki einsog SC2 á full quality án þess að lagga.
Helst vil ég ekki kaupa mér ferðatölvu eða iMac, en það gæti þó komið til greina... allavega vil sjá svör við þessum pósti áður en ég pæli í því.
Það eru ekki vifturnar sem hita loftið, það eru víst íhlutirnir og þeir sjá því miður um performance líka svo að þú verður held ég að velja á milli þeirra...
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 00:20
af appel
Þannig að einhverskonar water cooling er málið?
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 00:22
af AciD_RaiN
En vifturnar ýta heita loftinu frá íhlutunum út úr vélinni

Er ekki hægt að redda bara einhverjum góðum kassa og fá sér bara nýjar viftur í hann? Veit að bæði noctua og tacens framleiða frábærar hljóðlátar viftur. Svo náttúrulega að vera með gúmmílista á viftunum eða einhverskonar noise reducer eða hvað þetta heitir. Ég er með 2 svona
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=819 og það heyrist nánast ekkert í þeim og sama með noctua kælinguna sem ég var með þá var hún nánast alveg silent. Ég er sjálfur einmitt orðinn svoldið anal með læti í viftunum þannig ég skil þessa pælingu mjög vel... Svo ef þú ætlar þér að fara í watercooling þá getur verið smá hávaði í sumum dælum (hávaði og ekki hávaði) þannig að það þarf alveg eins að spá í þeim fítus í vatnskælingum eins og loftkælingum

Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 00:28
af appel
Vélin sem ég er með núna er með hljóðlátar viftur, en blæs frá sér heitu þurru lofti sem mig langar líka að losna við.
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 00:33
af AciD_RaiN
appel skrifaði:Vélin sem ég er með núna er með hljóðlátar viftur, en blæs frá sér heitu þurru lofti sem mig langar líka að losna við.
Ég á einmitt við sama vandamál að stríða með heita loftið. Búinn að slökkva á ofninum og opna gluggann og svo þarf ég bara betri kælingu en með þurra loftið þá mæli ég nú bara með einhverju litlu rakatæki

Þau þurfa ekkert að vera dýr nema þú sért í einhverju rosa stóru rými. Varstu nokkuð með einhvern kassa í huga?
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 00:37
af chaplin
Þetta eru engar smá kröfur, vatnskæling gæti verið það sem þú ert að leitast eftir en auðvita losar vatnskassinn smá hita frá sér, þó oftast talsvert minni en öflugu kælingarnar. Auðvita fylgir mikið viðhald með þessari "lausn".
Þó ef i3 er nóg til að keyra SC2 í fullum gæðum, þá væri i3 liftulaus og skjákort með öflugri kælingu algjörlega málið.
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 00:52
af Garri
Skil þessar pælingar mjög vel.
Ég er er orðinn í dag svo gamall og hljóðlúinn að hálfa væri mikið meir en nóg..
En á yngri árum eða fyrir um 25 árum átti ég Amstrad PC 1640 sem var með enga viftu, fullkomlega hljóðlát. Fyrir hana hafði ég átt nokkra PC kassa, ein sem hét Island (eyland) og hávaðinn í henni var svo yfirþyrmandi og þreytandi að pína var að sitja til lengdar við hana, maður verð bókstaflega þreyttur á því einu að sitja við hana.
En það var ekki fyrr en eftir þessa Amstrad reynslu sem ég kveikti almennilega á þessu. Síðan þá hef ég alltaf haft það að leiðarljósi að hafa eins lítið af tölvusuði og hægt er þegar ég er að vinna við þessar tölvur sem hefur síðan þá verið mitt lifibrauð. Ég hef meðal annars útbúið hljóðeinangraðan kassa og þá utan um tölvukassa (á ennþá til), sett tölvurnar eins langt frá mér og hægt var, skermað þær, verið í mjög stóru rými osfv. osfv.
Í dag er ég með skrifstofu í ágætis rými en tölvurnar engu að síður í litlu hobbý herbergi við hliðina. Algjör snilld þó ég segi sjálfur frá. Gatið á veggnum á milli er sirka 7x7cm og engin vandræði með snúrur. Hugmyndin í framtíðinni er að smíða kassa utan um þessar tölvur þarna hinu megin við vegginn og leiða inn í hann kallt loft að utan (bora 10cm gat á útvegginn) og leiða síðan út úr honum á hinum endanum með hljóðlátum en stórum viftum. Sá kassi yrði að sjálfsögðu hljóðeinangraður þannig að hægt væri að nýta þetta herbergi í eitthvað meira, en í dag er það meðal annars notað fyrir leikjatölvuna og sem bókaherbergi.
Svo er nú það..
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 01:21
af appel
Já, er kominn með meira en nóg af þessu suði og þurra lofti. Það liggur við að maður byggi bara einhvern veðurheldan kassa og geymi tölvuna úti á svölum og verði svo bara með snúrur inn í íbúð.
En já, engin furða að PC tölvur eru að deyja út, venjulegt fólk vill ekkert hafa þetta inni í íbúðinni sinni eða herbergjum. Suðið og heita þurra loftið er ekki eftirsóknarvert. Svo er heljarinnar snúrufargan sem fylgir þessu. Þannig að maður skilur þá sem fá sér bara ipad eða ferðatölvu. En slíkt hentar mér ekki.
En PC tölvur hafa ekkert breyst. Ég held að farsíminn minn sé öflugri en tölvan mín, en samt tekur tölvan mín 10.000 X meira pláss. Absúrd. Hví er ekki búið að búa til einhverskonar mini-pc standarda? Æji, best að hætta að nöldra

Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 01:53
af kizi86
http://www.endpcnoise.com/cgi-bin/e/std ... ss_pc.htmlskoða eitthvað svona lagað? algerlega hljóðlaus tölva, samt með ágætis performance..
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 02:41
af gardar
Færð þér bara vél með intel atom örgjörva... T.d. asus eeebox
Sé reyndar ekki fram á að þú sért að fara að spila neina stórkostlega leiki á slíkri vél
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 02:49
af AciD_RaiN
gardar skrifaði:Færð þér bara vél með intel atom örgjörva... T.d. asus eeebox
Sé reyndar ekki fram á að þú sért að fara að spila neina stórkostlega leiki á slíkri vél

u trollin right?
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 02:55
af gardar
AciD_RaiN skrifaði:gardar skrifaði:Færð þér bara vél með intel atom örgjörva... T.d. asus eeebox
Sé reyndar ekki fram á að þú sért að fara að spila neina stórkostlega leiki á slíkri vél

u trollin right?
Well, það er algerlega óraunhæft að ætlast til þess að fá gríðar öfluga vél sem er algerlega hljóðlát.
Intel atom er eini kosturinn
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 03:04
af AciD_RaiN
appel skrifaði:4) Allt þetta án þess að fórna performance, en ég vil helst geta keyrt leiki einsog SC2 á full quality án þess að lagga.
Ætli þurfi þá ekki að finna einhvern milliveg á þessu... Er ekki að setja neitt út á atom enda á ég tvær fartölvur með atom örgjörva og þær eru bara mjög fínar eeeen þær eru akki með neitt performance.
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 03:06
af appel
Nei, ég myndi ekki vilja fórna performance.
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 03:15
af gardar
Er þetta ekki svolítið eins og að segjast vilja verða milljónamæringur en vilja ekki vera í vinnu?

Þessir hlutir fara mjög illa saman...
En vantskæling eða phase kæling er að mínu mati eina vitið í þessari stöðu.
Vatnskæling með stórum vatnskassa og stórum low-rpm viftum á, jafnvel að ganga svo langt að láta vantskassann standa út um gluggann, til að losna alveg við viftuhljóð
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 03:20
af appel
Ætli maður þurfi ekki að skoða með að fela tölvuna einhversstaðar, í veðurheldum kassa úti á svölum eða inni í einhverjum skáp sem er með tengt loftrör út. Best væri að geta geymt vélina bara í geymslunni og verið með ljósleiðara tengdan upp í einhvern tengihöbb sem skjárinn, músin og lyklaborðið er tengt í. Oh well... má láta sig dreyma.
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Mán 12. Mar 2012 03:44
af worghal
iMac spilar sc2 án vandræða
þá fræðu líka flottann skjá og svona

Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Þri 13. Mar 2012 15:26
af dave57
Ég var með tölvuna á tímabili inní þvottahúsi og notaði, usb yfir cat extender og HDMI yfir Cat extender.
Ódýrt og virkaði mjög. Eini gallinn var að það var alltof heitt inní þvottahúsi þegar þurrkarinn var í gangi og
endalaust ryk.... Svo ég beilaði á þessu, á samt þessa extendera ennþá.
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Þri 13. Mar 2012 15:29
af appel
dave57 skrifaði:Ég var með tölvuna á tímabili inní þvottahúsi og notaði, usb yfir cat extender og HDMI yfir Cat extender.
Ódýrt og virkaði mjög. Eini gallinn var að það var alltof heitt inní þvottahúsi þegar þurrkarinn var í gangi og
endalaust ryk.... Svo ég beilaði á þessu, á samt þessa extendera ennþá.
Hvað var það langt í metrum?
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Þri 13. Mar 2012 15:43
af dave57
Þetta var ca. 10 - 12 metrar. Minnir að HDMI græjan hafi verið gefin upp max 50m, þá með 2x Cat6 til að ná 1080p. Ég notaði 2x venjulegan Cat5 og var að Keyra upplausn 1386x768.
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Þri 13. Mar 2012 16:08
af Frost
AciD_RaiN skrifaði:appel skrifaði:4) Allt þetta án þess að fórna performance, en ég vil helst geta keyrt leiki einsog SC2 á full quality án þess að lagga.
Ætli þurfi þá ekki að finna einhvern milliveg á þessu... Er ekki að setja neitt út á atom enda á ég tvær fartölvur með atom örgjörva og þær eru bara mjög fínar eeeen
þær eru ekki með neitt performance.
Er vel sammála þessu. Fartölvan mín er einmitt með Intel Atom N330 og hann keyrir ótrúlega heitt, ekkert svakalegt performance. Mæli frekar með að fá þér eitthvað stærra og öflugra

Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Þri 13. Mar 2012 17:09
af bAZik
Re: Minimal footprint tölva?
Sent: Þri 13. Mar 2012 19:52
af Klemmi
Það sem ég myndi skoða er svipuð vél og ég er að nota, þ.e.a.s. leggja áherslu á VANDAÐAN vel efficient aflgjafa og skjákort sem hitna lítið.
Fyrir valinu hjá mér var Seasonic X-Series 460W, en hann er Gold Certified og þar með með a.m.k. 88% nýtingu, við hann er svo tvinnuð 2x GTX550 í SLI.
Er svo með óyfirklukkaðan i5-2500.
Ástæðan er einföld, 2x GTX550 eru að gefa svipað performance og 1x GTX570 en dregur minna rafmagn og myndar þar með minni hita og er hljóðlátari en GTX570, auk þess að vera rúmum 12þús krónum ódýrari m.v. ódýrustu verð hér á Vaktinni

.
http://www.tomshardware.com/charts/2011 ... 4834%5D=onÉg púslaði mér svo ódýran i3 server utan um hörðu diskana til að geta líka losnað við þá úr borðtölvunni, aðallega útaf hávaðanum en að sama skapi losnaði ég við hitann frá þeim.