Síða 1 af 1
350w PS fyrir Radeon x800pro?
Sent: Sun 04. Júl 2004 00:19
af ErectuZ
Haldið þið að það sé nóg? ég er með AMD 2800XP+ örgjörva, ætla að yfirklukka hann dálítið, 3x minniskubba, eitt geisladrif og eitt DVD-drif , Gigabyte GA-7VT600 móðurborð, 2 kassaviftur, eina örraviftu og einn 60GB harðann disk. Ætti ég að fá mér stærra powersupply fyrir þetta kort, eða?
Sent: Mán 05. Júl 2004 00:52
af machinehead
Ég myndi mæla með því já...
Sent: Mán 05. Júl 2004 00:57
af ErectuZ
Hve stóra, heldur þú?
Sent: Mán 05. Júl 2004 01:53
af machinehead
Allavega 400w, þetta er fínt
hérna...
Sent: Mán 05. Júl 2004 02:22
af fallen
Sent: Mán 05. Júl 2004 11:46
af ErectuZ
Hann þarf ekki neitt að vera neitt svaka hljóðlátur (Bara ekki jafn hávaðasamur og tornado viftan

) og ég vil helst ekki svona svaka dýrann. Já, miðað við pening minn er 9000 kall dýrt. Sérstaklega því ég verð skítblankur eftir að hafa keypt mér skjákortið

Sent: Mán 05. Júl 2004 18:12
af Pandemic
ég heyri ekkert í tornado eftir tónleikana í gær.
Sent: Mán 05. Júl 2004 18:18
af fallen
Iss, mér var gefinn miði á þessa tónleika en ég fór ekki.
Sent: Mán 05. Júl 2004 18:22
af ErectuZ
Hei. Var að fatta. Get ég ekki bara keypt svona Demon kassa á eitthvað 8000 kall og svo hirt bara aflgjafann úr honum? 480watt
Edit: En þessi? Kannast ekki við hann, en hann er 500w og kostar bara 9000 kall
Edit: Gleymdi linkinum
http://store.247.is/catalog/product_inf ... cts_id=240
Sent: Mán 05. Júl 2004 18:25
af fallen
Nei það er ekki hægt.
Jú auðvitað, ennn töff kassi, afhverju ekki bara að nota hann?
Sent: Mán 05. Júl 2004 18:33
af ErectuZ
Heyriði, ég skelli mér þá bara á Demon kassann. Hehe
Sent: Mán 05. Júl 2004 19:13
af Mysingur
ég vil samt benda þér á að þetta demon psu er frekar hávært
ég heyri í því þegar ég er svona 10 metra frá tölvunni og veggur á milli

Sent: Mán 05. Júl 2004 22:18
af gnarr
ég vill bara minna á að psu er ekki sama og PSU..
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=1380
þetta er reyndar ársgömul grein. það væri ekkert vitlaust að skoða rívjúv hjá tommanum og anandtech og finna eitthvað psu sem henntar þér.
Sent: Mán 05. Júl 2004 22:49
af fallen
Hvað er þá psu og PSU ?
Sent: Mán 05. Júl 2004 22:53
af gnarr
PSU = psu²
Sent: Mán 05. Júl 2004 22:54
af fallen
Kveiki ekki ennþá... :/
Sent: Mán 05. Júl 2004 22:56
af gnarr
lestu þráðinn sem ég var að pósta link á..
Sent: Þri 06. Júl 2004 01:35
af machinehead
Það má nú varla heyrast í tölvunni til að þið vaknið um miðjar nætur og haldið að borgarastyrjöld hafi brotist út.
Ég mæli með Dragon kassanum, það heyrist ekki það hátt í honum, hann er flottur, ódýr og loftflæðið í honum er mjög gott.
Sent: Þri 06. Júl 2004 08:16
af ErectuZ
Ég hef ákveðið að kaupa ekki kassann sjálfann, nema ég geti selt núverandi kassa á 9þús kall (sem er ólíklegt því að ég keypti hann á 7þús kall) eða ég geti selt skjákortið á 16þús kall, og skjákortið sem ég er með er bara ekki þess virði. Ég hef ákveðið aðkeupa bara spennugjafann sem er til sölu hjá
http://www.tolvuland.com í staðinn. Hann er 480w, kostar bara 5þús kall og þannig hef ég frekar efni á honum heldur en kassanum sjálfum.