Síða 1 af 1

Ég vil lækkun!

Sent: Fös 02. Júl 2004 18:36
af ErectuZ
Hvenær koma Radeon x800XT kortin hingað til Íslands? Og hvað haldið þið að Radeon 9800XT kortin lækki mikið í verði, svona ágiskun?

Sent: Fös 02. Júl 2004 18:39
af gnarr
það er spurning hvort þeir klári þennann lager á svipuðu verði og þau eru núna og svo hætti þau bara að vera til. ég myndi samt halda að það þyrfit TALSVERÐA lækkun til að geta selt þessi kort, eða þá að selja x800 talsvert dýrari.

Sent: Fös 02. Júl 2004 18:41
af ErectuZ
Ég er að pæla í að kaupa mér Radeon 9800XT kort, en ég á ekki pening fyrr en um næstu mánaðarmót (fékk svo andskoti lítið borgað núna). Ætli x800XT verði komið þá? Ef svo, þá verð ég víst að vona að 9800XT bara klárist ekki :(

Sent: Fös 02. Júl 2004 19:09
af Mysingur
afhverju færðu þér ekki frekar x800pro heldur 9800xt ?
það munar ekki nema 4k í verði

Sent: Fös 02. Júl 2004 19:31
af ErectuZ
Því þessar 4þús krónur á ég ekki :P. Nei, annars get ég örugglega grafið þær upp. Takk fyrir ábendinguna :D

Edit: En heyriði, mun þá ekki AMD 2800XP+ draga allan kraft úr x800pro? Ég sko nefnilega kann ekki að yfirklukka, þori því ekki og á ekki pening fyrir nýjum örgjörva :(

Sent: Fös 02. Júl 2004 23:27
af wICE_man
Þetta skjákort er náttúrulega overkill fyrir þennan örgjörva, ég myndi fara að hugsa um örgjörvauppfærslu, en þú ættir samt að njóta ágætis leikjaspilunar, ef þú vilt sjá hversu neikvæð áhrif þessi örgjörvi hefur á afköst þá er góð grein um þetta hér:

http://www.hardocp.com/article.html?art=NjMy

AthlonXP 2800+ er mjög svipaður og P4 2.4C í afköstum yfir heildina litið, og kanski eilítið hraðari í leikjum.

Sent: Fös 02. Júl 2004 23:29
af ErectuZ
Ég veit. Tight budget :P En þarf ég ekki bara eilitla yfirklukkun?

Edit: Þýðir þetta þarna að ég get spilað FarCry hiklaust? (min fps barton AMD 2500XP+ 24fps (sem er ekki mjög slow miðað við það sem ég hef séð))

Sent: Lau 03. Júl 2004 00:20
af GuðjónR
FarCry sux....þoli ekki leiki sem ekki er hægt að save'a og maður þarf að spila borðin 100 sinnum. :evil:

Sent: Lau 03. Júl 2004 01:11
af ErectuZ
Það er þá bara þinn smekkur :wink: Mitt mottó er (eitt af þeim) Því erfiðari, því betri :P