Síða 1 af 1
Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Lau 03. Mar 2012 21:28
af diabloice
Er með Asus A8N32-SLi borð sem postar ekki , er búinn að prófa 3 Powersupply og 4 Skjákort
Allt fer í gang , örrgjafa vifta, Harðir diskar .drif ,vifturnar á skjákortunum
Specið er :
a8n32-sli
amd athlon 64 3500+
3,5gb DDR 400
2x Msi Nvidia nx7600Gt Kort með Sli braut
Búinn að prufa taka allt annað úr sambandi nema móðurborið og skjákortin og skipta út skjákortunum
Prufaði líka með 6600Gt og 7100GS kortum og 7600gt single
Getur þetta verið eitthvað annað en bara að móðurborið sé ónýtt?
Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Lau 03. Mar 2012 23:17
af DJOli
Búinn að prufa önnur vinnsluminni?
Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Lau 03. Mar 2012 23:28
af diabloice
Vinnslu minni virka fínt í öðrum vélum
Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Sun 04. Mar 2012 00:41
af Cikster
Ég lenti því nýlega að Intel 775 tölva hjá mér startaði í 5 sek og slökkti svo á sér.. startaði sér síðan aftur í 5 sek og slökkti ...
Ég endaði á því að taka örrann af, setja aftur í og nýtt kælikrem og þá alltíeinu fór hún að virka.
Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Sun 04. Mar 2012 01:01
af diabloice
Cikster skrifaði:Ég lenti því nýlega að Intel 775 tölva hjá mér startaði í 5 sek og slökkti svo á sér.. startaði sér síðan aftur í 5 sek og slökkti ...
Ég endaði á því að taka örrann af, setja aftur í og nýtt kælikrem og þá alltíeinu fór hún að virka.
búinn að prufa það (enn sama staða)
Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Sun 04. Mar 2012 04:48
af Bioeight
Þá er þetta líklega ekki power supplyið.
Það sem á eftir að athuga:
Resetta CMOS og sjá hvort það gerir eitthvað.
Er búið að uppfæra í nýjasta BIOS?
Athuga hvort það sé eitthvað sem gæti mögulega verið að leiða út, ofhertar skrúfur sem eru búnar að brjóta eitthvað upp, of stórar skrúfur, vírar á vondum stað, eitthvað sull á móðurborðinu (t.d. kælikrem) og margt fleira skemmtilegt.
Eru beyglaðir/brotnir pinnar á örgjörvanum.
Eru þéttar(capacitors) á móðurborðinu útbólgnir?
Ef það er ekkert af þessu þá getur verið að móðurborðið eða örgjörvinn séu dáin. Þéttar þurfa ekki endilega að bólgna út ef þeir eru skemmdir, móðurborð frá þessu socket 939 tímabili voru oft með lélega þétta sem bólgnuðu auðveldlega út. Örugglega mörg socket 939 móðurborð sem hafa bilað vegna þessa.
Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Sun 04. Mar 2012 07:29
af diabloice
Bioeight skrifaði:Þá er þetta líklega ekki power supplyið.
Það sem á eftir að athuga:
Resetta CMOS og sjá hvort það gerir eitthvað.
Er búið að uppfæra í nýjasta BIOS?
Athuga hvort það sé eitthvað sem gæti mögulega verið að leiða út, ofhertar skrúfur sem eru búnar að brjóta eitthvað upp, of stórar skrúfur, vírar á vondum stað, eitthvað sull á móðurborðinu (t.d. kælikrem) og margt fleira skemmtilegt.
Eru beyglaðir/brotnir pinnar á örgjörvanum.
Eru þéttar(capacitors) á móðurborðinu útbólgnir?
Ef það er ekkert af þessu þá getur verið að móðurborðið eða örgjörvinn séu dáin. Þéttar þurfa ekki endilega að bólgna út ef þeir eru skemmdir, móðurborð frá þessu socket 939 tímabili voru oft með lélega þétta sem bólgnuðu auðveldlega út. Örugglega mörg socket 939 móðurborð sem hafa bilað vegna þessa.
Búinn að taka batterýið út ( er enginn Jbatt jumper eða reset cmos takki )
Get ekki flashad ef ég sé ekkert hvað er að gerast
borið er komið úr kassanum,liggur á blaði á borðinu hjá mér
örgjörvinn er 100% í lagi og heill , tók hann úr öðru borði sem var í notkun
sé ekki neitt á neinum þéttum á borðinu
jæja held að það sé þá óhætt að dæma þetta borð dautt
Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Sun 04. Mar 2012 19:43
af Bioeight
Það á að vera CLRTC (Clear Real Time Clock) jumper á móðurborðinu, hann er notaður til að cleara BIOS settings, bara annað nafn en venjulega á þessum jumper, hann á að vera við hliðina á batteríinu sjálfu.
Til að cleara BIOSinn með því að taka batteríið úr þarf líka oft að taka tölvuna úr sambandi.
Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Sun 04. Mar 2012 19:50
af diabloice
Bioeight skrifaði:Það á að vera CLRTC (Clear Real Time Clock) jumper á móðurborðinu, hann er notaður til að cleara BIOS settings, bara annað nafn en venjulega á þessum jumper, hann á að vera við hliðina á batteríinu sjálfu.
Til að cleara BIOSinn með því að taka batteríið úr þarf líka oft að taka tölvuna úr sambandi.
Já mig grunaði það með þennan jumper , já var búinn að rjúfa strauminn(aftengja aflgjafann frá borðiðnu) og taka batteryið úr líka
Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Sun 04. Mar 2012 19:58
af Eiiki
Ef þú ert búinn að prufa allt og dæma borðið dautt, prufaðu þá að baka það

Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Sun 04. Mar 2012 20:31
af diabloice
Eiiki skrifaði:Ef þú ert búinn að prufa allt og dæma borðið dautt, prufaðu þá að baka það

Nei held ég láti það eiga sig ,var að kaupa þetta notað af vaktara fyrir helgi , held ég skili því bara og fá ferkar peninginn minn til baka

Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Sun 04. Mar 2012 21:01
af Garri
Ég lenti í þessu með glænýtt móðurborð. Kom í ljós að smellurnar í sökklinum fyrir örrann voru skakkar, pinnarnir í örranum skekktust að ég held.
Ég er 100% á því að ég losaði vörnina og tyllti örrann ofurvarlega niður, síðan lokað með klemmunni og enginn möguleiki á klúðri.
Endaði á að taka allt úr sambandi og hafa móðurborðið á svampi, PSU og power takkann, sama sagan og hjá þér... sendi suður og fékk þá þessa skýringu.
Allt glænýtt.. og ég gúglaði eftir að hafa fengið þessar fréttir og þá kom í ljós að þetta var ekki óalgengt með nákvæmlega þessi móðurborð!
Hrikalega ósáttur við þetta.. þar sem þetta var allt saman glænýtt og engin hroðvirkni eða klaufaskapur á ferð.
Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Sun 04. Mar 2012 22:02
af Cikster
Getur reyndar verið að þú sért einstaklega óheppinn ... eru 5 týpur af athlon 3500+ og 4 þeirra virka á borðinu með hvaða útgáfu af bios sem er en ein þeirra þarf bios 0502 eða nýrri til að virka á móðurborðinu.
http://www.asus.com/Motherboards/AMD_So ... luxe/#CPUS
Re: Asus A8n32-sli Postar ekki
Sent: Sun 04. Mar 2012 22:12
af diabloice
Cikster skrifaði:Getur reyndar verið að þú sért einstaklega óheppinn ... eru 5 týpur af athlon 3500+ og 4 þeirra virka á borðinu með hvaða útgáfu af bios sem er en ein þeirra þarf bios 0502 eða nýrri til að virka á móðurborðinu.
http://www.asus.com/Motherboards/AMD_So ... luxe/#CPUS
Var búinn að ath þetta

ég er með E3 (venice ) örgjörva , e4 er Mancherster kubbur (s.s x2 kubbur með óvirkan seinni kjarna)