Síða 1 af 1

Öll þessi vinnsluminna hugtök

Sent: Fim 01. Júl 2004 15:47
af traustis
Er einhver sem getur útskýrt fyrir mér nýgræðlingnum :oops: Hvað öll þessi hér þýða :? = Cas latency, aggressive timings, vdimm og ddr ?
ég veit að það er hægt að hafa cas latency í 2.0 2.5 og 3.0 en hver er munurinn á þessu ? og er betra að hafa aggressive timings í 8-4-4 eða 7-4-4 eða hvað ? :S

Sent: Fim 01. Júl 2004 15:51
af ErectuZ
Það eina sem ég veit hvað þýðir af þessu er ddr. Sem er Double Data Rate.

Sent: Fim 01. Júl 2004 16:45
af MezzUp
Hann vill örugglega líka vita hvað það þýðir, ekki bara hvað það stendur fyrir :P

Veit ekki nógu mikið um þetta nema DDR, eða Double Data Rate einsog Rainmaker sagði.
DDR-SDRAM (einnig kallað SDRAM II eða DDRAM) sendir 2 merki á hverjum rafmagnspúls(held ég) sem að í raun tvöfaldar hraðann, þannig að að 133Mhz verða DDR266, 166Mhz verða DDR333 o.s.frv.. Þar sérðu að DDR400 vinnsluminni er ekki 400 heldur 200Mhz.
Einnig er svipuð tækni notuð við Quad-pumped FSB á sumum móðurborðum(pentum?) þar sem að 4 merki eru send á hverju "rafpúls" (?)þannig að 133Mhz verða FSB533 og 200Mhz verður FSB800.

Annars kemstu örugglega fyrr að þessu ef þú notar google :D

Sent: Fim 01. Júl 2004 20:49
af gnarr
já, DDR virkar þannig að það sendir merki bæði á upp sveiflu og niðursveiflu rafmagnsins, semsagt 2x hraðar en rafmagnið. svo að ef þú er með DDR minni sem sendir 200milljón rafpúlsa á sekúndu (200MHz), þá er það að senda gögn 400milljón sinnum á sekúndu.