Síða 1 af 1
fittar þetta ekki alveg 100% saman?
Sent: Mið 30. Jún 2004 18:23
af mazo
Sent: Mið 30. Jún 2004 18:27
af WarriorJoe
Mæli mikið frekar með 128mb Radeon9600XT ultra frá tölvuvirkni.. 256mb er allveg gagnlaust, alalvega enn sem komið er og sérstaklega ef þú ert í tölvuleikjum því enginn leikur notar 256mb .. Fínt mobo mæli kannski frekar með IC7 móðurborðinu
Og veit annars ekkert um þennan örgjörva, en veit að medion eru ekki allveg jafn góðar og BT segir

Sent: Mið 30. Jún 2004 19:02
af mazo
já veit medion eru ekki góðar tölvur en örgjörvin er venjulegur 2,66 ghz held ég en eru fleiris sem mæla frekar með IC7 móðurborðinu og þessu 128mb skjakorti?
kannski einhver linkur á smá info um þetta IC7 móðurborð google finnur bara eittvhað á fáranlegu tungumali :S
Sent: Mið 30. Jún 2004 19:34
af OverClocker
WarriorJoe skrifaði:Mæli mikið frekar með 128mb Radeon9600XT ultra frá tölvuvirkni.. 256mb er allveg gagnlaust, alalvega enn sem komið er og sérstaklega ef þú ert í tölvuleikjum því enginn leikur notar 256mb ..
Bull !
Taktu frekar 256mb
Sent: Mið 30. Jún 2004 20:03
af WarriorJoe
Bull? Það hafa _ALLIR_ mælt með að taka 128mb kortið .. Til hvers að kaupa 256mb kort ? Það er ekkert sem styður það nuna.. bara peningasóun..
Sent: Mið 30. Jún 2004 20:05
af Steini
Það er rétt hjá warriorjoe og ég mæli alveg með þessu móðurborði, báðir þessir hlutir virka fínt hjá mér
Sent: Mið 30. Jún 2004 20:12
af MezzUp
WarriorJoe skrifaði:Bull? Það hafa _ALLIR_ mælt með að taka 128mb kortið
care to back that up?
róa sig á því að fullyrða

Sent: Mið 30. Jún 2004 20:48
af WarriorJoe
enda sagði ég _alllir_ áhersla á _ og ef þú skoðar gamla korka sérðu að þetta er allveg rétt hjá mér að allir sem hafa verið að spyrja um svona þá hafi allir mælt með 128mb korti, þar sem engir leikir t.d. eru að styðja 256mb..
Sent: Mið 30. Jún 2004 20:51
af MezzUp
WarriorJoe skrifaði:enda sagði ég _alllir_ áhersla á _ og ef þú skoðar gamla korka sérðu að þetta er allveg rétt hjá mér að allir sem hafa verið að spyrja um svona þá hafi allir mælt með 128mb korti, þar sem engir leikir t.d. eru að styðja 256mb.
OverClocker skrifaði:Bull !
Taktu frekar 256mb
ekki allir, punktur!
ekki einusinni gaman að rífast þegar menn fullyrða svo stórt að þarf ekkert að leggja á sig til að afsanna það
Sent: Mið 30. Jún 2004 20:56
af WarriorJoe
sérðu ekki _ eða.. Á svona aðeins skiljanlegra máli þá þýða það flestir.. Og tjah.. Miðað hvað ég hef lesið hér á spjallinu þá er mikill meirihluti sem mælir með 128mb kortunum, en hey það er bara ég, vill ekkert vera að stofna til rifrilda hérna með þetta..[/b]
Sent: Mið 30. Jún 2004 22:17
af wICE_man
256MB kortin eru hægvirkari í öllum leikjum sem eru til í dag, jafnvel þeim nýjustu, þetta kann að breytast en 256MB minnin eru bara hægvirkari en 128MB sem notuð eru á skjákortum.
Sent: Mið 30. Jún 2004 23:45
af OverClocker
Það er mikið rætt um 128 vs 256 á forums og búið að gera benchmark fram og tilbaka. Munurinn er ekki mikill en 256 kortið er að fara um 5-10fps hraðar í sumum testum, og þá sérstaklega þegar um hærri upplausn og betri gæði er að ræða.
Sum 256 kort eru með DDRII og eru því með hægara minni, en ekki öll, td powercolor er með ddr.
EN flestir eru sammála um að skynsamlegra sé að kaupa 256 kortið upp á framtíðina, enda er sk vaktinni ekki nema 2000kr munur á þessum kortum í dag. Þessi munur var hærri og því segja eldri greinar að skynsamlegra sé að kaupa 128 kortið.
Sent: Fim 01. Júl 2004 00:06
af WarriorJoe
Var reyndar ekki buinn að athuga verðmunin, en fyrst hann er svona lítið myndi ég þá taka 256mb kortið, þar sem eins og overclocker sagði réttilega þá verður það notað í framtíðinni..
Sent: Fim 01. Júl 2004 07:45
af mazo
oki takk fyrir þessi svör ég fæ mér þá 256mb kort (sé að flestir mæla með því) en er enginn linkur á þetta IC7 móðurborð eða er einhver til í að pósta einhverjum info um það hér?
Sent: Fim 01. Júl 2004 17:58
af Steini
Hérna en þarna stendur að það sé ekki með netkorti en ég er með einhverja ic7-g útgáfu sem ég held að kosti sama og það er með netkorti
Sent: Fim 01. Júl 2004 21:02
af mazo
búinn að versla mer skjákortið og plugga það í og allt en eitt vandamál kom upp sjáið hvað þetta er eitthvað skritið....hvernig laga ég þetta (ef það er hægt)
Sent: Fim 01. Júl 2004 21:07
af mazo
ups gleymdi myndinni :S en sjáið stafina þetta er ekki í stillingunum í leiknum sjálfum og svo er destopið óskyrt en ef ég tek print screen af þvi er það ekki þannig....
Sent: Fim 01. Júl 2004 21:10
af gnarr
þetta er antiallias. leikurinn er í mun meiri gæðum með anti allias í gangi, og ég myndi ekki slökkva á því þótt stafirnir séu ill-læsir þannig, það eru MARGFALLT betri gæði með það í gangi. það sem mér þykir líklegast að sé vandamálið með desktopið er að skjárinn sé ekki að ráða vel við refresh-rateið sem er núna í gangi. það er bara að fara í advanced og monitors og prófa annað refreshrate.
Sent: Fim 01. Júl 2004 21:15
af mazo
snilld thx var í 60 hertz setti í 70 hertz allt í fínasta lagi núna

Sent: Fim 01. Júl 2004 21:20
af gnarr
já, prófaðu líka að fikta ái anti allias. þá ferðu í advanced og 3d, svo getur stillt það með því að smella á D3D og fitka í stillingunum þar.